Kjarninn - 15.05.2014, Blaðsíða 39
28/28 eFnahagsmál
yfir tillögurnar síðan, meðal annars Seðlabanki Íslands, hafa
komist að öfugri niðurstöðu. Þó verður að taka fram að þeir
hafa ekki unnið sínar greiningar miðað við sömu forsendur
og lagðar voru fyrir Analytica.
unnu líka að úttekt á húsnæðismálum
Þetta er ekki eina verkefnið sem Analytica hefur unnið fyrir
ríkisstjórnina á undanförnum mánuðum. Fyrirtækið vann líka
úttekt á áhrifum afnáms verðtryggingar fyrir sérfræðinga-
nefnd um afnám verðtryggingar á nýjum neytendalánum sem
starfaði á vegum forsætisráðuneytisins. Sú vinna kostaði tvær
milljónir króna.
Analytica var líka, ásamt KPMG, fengið til að framkvæma
sviðsmyndagreiningar fyrir verkefnisstjórn um framtíðar-
skipan húsnæðismála, sem skilaði umfangsmikilli skýrslu í
byrjun maí. Í skýrslunni segir að verkefnisstjórnin hafi „leitað
eftir tilboðum þar til gerðra aðila til sviðsmyndagreiningar.
Þegar tímafresti lauk, þann 23. október 2013, hafði verkefnis-
stjórn borist tilboð fimm aðila. Var það ákvörðun verkefnis-
stjórnar að ganga til samninga við Analytica og KPMG á
grundvelli tilboða þeirra“.
Kjarninn leitaði eftir upplýsingum hjá Velferðar ráðuneytinu
um hversu mikið þessir aðilar hefðu fengið greitt fyrir vinnu
sína. Í svarinu kemur fram að heildarkostnaður vegna að-
keyptrar þjónustu vegna úttektarinnar sé 37,4 milljónir króna.
Þar af fékk KPMG 22,3 milljónir króna, Analytica 13,7 milljónir
króna og tveir minni aðilar það sem upp á vantar.
hundraða milljóna kostnaður
Kostnaður fjármálastofnana
á borð við Arion banka vegna
skuldaniðurfellinganna
hleypur á hundruðum milljóna
króna.