Nýtt S.O.S. - 01.08.1959, Blaðsíða 14

Nýtt S.O.S. - 01.08.1959, Blaðsíða 14
14 Nýtt S O S ekki með öllu óeðlilegt, þó skipstjórinn hafi tekið þá ákvörðun fyrri hluta dags hins 19. september, því gera verður ráð fyrir, að skipstjórinn hafi reiknað með austlægri stefnu stormhvelsins. Hitt er svo annað mál, að aldrei er unnt að vita með fullri vissu hvaða stefnu stormhvel kann að taka. 20. september um hádegisbilið, er Pamir var kominn það langt norður, að hann hefði átt að geta verið kominn úr allri hættu samkvæmt veðurspánni daginn áður, var spáð austlægri stefnu felli- bylsins, sem þýddi, að hann mundi stefna beint á Panrir. Stormhvelið hefur þá breytt um stefnu í aust-norðaustur og fer nú með mun meiri hraða, og bendir þetta til þess, að Pamir muni lenda í því þá um nóttina. Þetta getur vissulega kall- azt sorgleg rás atvikanna. Þessi breyting, sem segja má, að hefði mátt sjá fyrir, gat engu síður átt sér stað einum eða tveim- ur sólarhringum seinna. 19. september gefst skipstjóranum raun- verulega síðasta tækifærið til að velja og hafna. Úr því að ekki var tekin sú á- kvörðun að beita upp í og bíða átekta, átti skipstjórinn ekki annarra kosta völ en halda áfram ferðinni sömu stefnu til norðurs og eins liratt og auðið var. Sjálf- sagt var að nota vélaaflið til hins ítrasta meðan veður var kyrrt til þess að reyna að komast framhjá stormhvelsmiðjunni, sem nálgaðist óðum. Áframhaldandi stefna norður var því, úr því sem komið var og að öllum veður- fregnum athuguðum, skiljanleg frá skip- stjórnarlegu sjónarmiði, og telst ekki hægt að kveða upp áfellisdóm yfir skipstjóran- um fyrir að velja þann kost.“ Með þessum útdrætti úr embættisbók- um vegna Pamir-slyssins höfum við gripið fram fyrir rás atburðanna. En þetta er nauðsynlegt til þess að skilja til fulls, hvað hefur valdið hinlim sorglegu endalokum þessa glæsilega skólaskips. 21. september. Það er fyrst þennan morgun, að áhöfnin fær vitneskju um, að fárviðrið er að nálgast skipið. Um klukkan 6 stingur vakthafandi stýrimaður upp á því við Diebitsch skip- stjóra, að setja upp fleiri segl. Þá eru vindstig 7 til 8. En Diebitsch hafnar þess- ari tillögu stýrimannsins. Hann virðist vera viss um, að skipið gerði næga ferð til þess að komast út úr hættusvæðinu, með þeim seglum, er þá voru uppi. Af hverju varúðarráðstafanir eru ekki gerðar fyrr en raun varð á, verður víst aldrei skýrt til fulls. Falsliurðirnar að aftari ká- etu voru ekki skrúfaðar fastar fyr en nokkrum klukkustundum eftir að skipið lenti í ofviðrinu og járnhurðunum að aft- ara íbúðaþilfari bakborðsmegin er ekki lokað fyrr en sjórinn flæddi yfir þilfarið. Auðsætt þykir þó, að þetta hafi farizt fyrir vegna þess, að skipstjóri hafi litið svo á, allt til kl. 9 fyrir hádegi, að skipið væri ekki í neinni hættu statt, að hinu leytinu mun hann sennilega hafa treyst um of á það, hve sterkbyggt skipið væri og sjóhæfni þess. Hinu er heldur ekki að leyna, að Diebitsch skipstjóra skorti starfs- reynslu á stórum seglskipum. Ef skipstjór- inn hefði íhugað hættuna í tíma, þá hefði hann áreiðanlega gert fyrr ráðstafanir til að loka hurðum og einnig að bjarga fleiri seglum. Klukkan 9 um morguninn, er veður- hæðin hafði náð hámarki og hallinn á Pamir jókst jafnt og þétt, snéri Buscher, annar stýrimaður, sér til skipstjórans. Hann spurði Diebitsch hvort ekki mundi rétt, að tilkynna öðrum skipum, er kynnu

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.