Nýtt S.O.S. - 01.08.1959, Blaðsíða 29

Nýtt S.O.S. - 01.08.1959, Blaðsíða 29
Nýtt S O S 29 honum, að eftir nokrkar klukkustundir, yrði hann hylltur sem hetja. * * * Sunnudagsmorguninn 3. september var kaldur og drungalegur þegar hann brauzt fram á vestanverðu Atlantshafi. Athenia var komin góðan spöl út á opið hafið og valt allmikið á öldunum. Inishtrahull — síðasta landkenningin, varla meira en klettdrangur úti fyrir norðvesturhorni írlands — var horfinn sjónum. Cook skipstjóri kom snemma í brúna, en borðaði morgunverðinn í káetu sinni. Hann reyndi að láta líta svo út sem hann væri öruggur og áhyggjulaus, en í raun- inni voru taugar hans háspenntar. Hon- um var fyllilega ljóst, að skipið var nú statt á hættusvæði. Ef styrjöld yrði lýst yfir klukkan 11 myndi skipið sigla í 5 klukkustundir áður en það kæmi út af hættusvæðinu. Nokkrum mínútum yfir ellefu heyrðist stríðsyfirlýsingin í loftskeytaklefanum. Um leið hringdi bjalla í brúnni, og andartaki síðar kom sendill með brúnt, innsiglað umslag til skipstjórans. Cook skipstjóri gekk til klefa síns og opnaði umslagið. Síðan kallaði liann til sín Copland, fyrsta stýTÍmann og Watherspoon yfirþjón. „Gjörði svo vel og fáið yður sæti, herr- ar mínir!“ sagði hann hörkulegur á svip og benti á tvo stóla. Svo yppti hann öxl- um. — „Já — Jrað hefur sem sagt verið lýst yfir styrjöld! Hafið þegar í stað alla báta tilbúna .og athugið að brunavarnir ar! Það er auðvitað mest áríðandi að forð- séu í lagi! Látið athuga vatnsþéttu dyrn- ast að farþegarnir verði óttaslegnir. Við verðum hvað sem það kostar að forðast uppþot. Reynið að forðast að ræða stíðið við þá. Og ef það er óhjákvæmilegt, þá reynið að hughreysta þá. Þögulir þyrptust farþegarnir að tilkynn- ingatöflunni, lásu tilkynninguna um stríðs- yfirlýsinguna og dreifðust svo í smáhópa, sem ræddu ákafir innbyrðis, en aðrir gengu þögulir og áhyggjufullir burtu. Eftir fyrsta áfallið og morgunverðinn fóru menn dálítið að jafna sig um borð í Athenia. Þótt farþegarnir væru óttaslegn- ir og bæru innra með sér ótta og illar grunsemdir, var Jreim það ljóst, að ekkert var hægt að aðhafast, og því þá ekki að reyna að fá það bezta út úr hlutunum. Veðrið var nú orðið gott síðari hluta dags- ins, Jrað var aðeins dálítið kalt á skipinu, J)ar sem vindurinn náði til að blása. Öldu- gangur var nú ekki mikill , og fyrir aug- um farþeganna, sem sátu á þilfarinu, leit hafið friðsamlegt og rólegt út. Það var erfitt að ímynda sér, að þar gæti leynzt nokkur hætta. Þegar sólin um kvöldið var komin að hafsbrún við sjóndeildarhringinn urðu skuggar mastranna langir og eins og sér- kennilega afmyndaðir. Næstum fullkom- inn dagur nálgaðist endalok sín. Kven-farþegarnir, er enn vor klæddir léttum bómullarkjólum, og voru orðnir rauðleitir í andliti og á handleggjum af sólinni og salta loftinu, risu upp af þilfars- stólunum til að ganga til klefa sinna og hafa fataskipti fyrir kvöldverðinn. Copland, fyrsti stýrimaður gekk um skipið ásamt bátsmanninum til að líta eft- ir myrkvuninni um borð. Frá borðsalum með huldum gluggarrúðunum heyrðist hressandi notalegt glamur glasa og diska. Allt í einu heyrðist skerandi óp ofan frá varðtunnunni, þar sem M. MacKinn- on háseti var á verði. Barbara Bailey, sem

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.