Nýtt S.O.S. - 01.08.1959, Blaðsíða 20
20 Nýtt S O S
inn sagði, að hann hefði náð sambandi
við fjögnr skip, hefði fengið stöðu þeirra
og sagt þeim stöðu okkar. Hann sagði þá,
að þó neyðarkall yrði sent, gæti fyrsta
skipið ekki verið komið fyrr en að sex
klukkustundum liðnum. Þegar ég kom
aftur upp, kom líka skipunin frá skipstjór-
anum. Boðin voru flutt mann frá manni.
Eg heyrði ekki hvað var sagt, en ég vissi,
að þetta voru skilaboð til loftskeytamanns-
ins, um að senda neyðarkall.
Um fát, æsingu eða ótta var alls ekki
að ræða. Ungu sjómannaefnin sóttu jafn-
vel myndavélar sínar og fóru að taka
myndir af skipinu í þessu válega ásig-
komulagi.
Læknirinn hafði gert samfellda kvik-
mynd, sem átti að heita: „Skip og skip-
stjóri". Hann var enn að taka myndir í
kortaklefanum. Hann breiddi vaxdúk yfiv
myndavélina, svo hún blotnaði ekki til
skaða. Sem sagt, ég held, að enginn hafi
búizt við því, að skipið mundi farast.
En þetta kom allt svo hræðilega fljótt.
Eg sá nokkra menn saman í hóp, fjóra,
fimm eða fleiri, sem voru á sundi. Eftir
hálftíma sá maður kannske tvo þar og
einn hér, eftir klukkustund voru margir
horfnir."
Þetta voru orð Dummers yfirmatsveins
við réttarhöldin.
Þá segir Haselbach í sinni skýrslu:
,,Það var laugardagur, hinn 21. sept-
ember 1957. Við fórum með stjórnborðs-
hálsi. Mestöll segl voru uppi. Skipið gerði
hér um bil átta mílur.
Um klukkan ellefu rifnuðu fram-stag-
segl og innra-brandaukaserfl. Stormurinn
fór vaxandi.
Það var reynt að rifa seglin, en það
reyndist ógerlegt, því seglin slógust til og
frá af feikna afli og var stórhættulegt að