Nýtt S.O.S. - 01.08.1959, Side 30

Nýtt S.O.S. - 01.08.1959, Side 30
yj Nýtt S. O. S. var á sólþilfarinu heyrði hrópið og leit í sama mund ósjálfrátt út yfir hafið. Þar í tvö hundruð metra fjarlægð uppgötvaði hún hvíta löðurrák, sem færðist eftir haf- fletinum. Andartak hugði hún, að það væri einhvers konar fiskur. Svo heyrði hún vikadreng hrópa: „Þarna er kafbátur. . . !“ Eins og skýstrókur reis há súla upp úr haffletinum og á næsta augnabliki kvað við ógurlegur þrumugnýr. * * * Lemp og stórskotaliðsforingi hans stóðu í brúnni á U-30 og horfðu gegnum húrnið á skipið, sem stöðugt nálgaðist. Það var enginn vafi, það líktist mjög einu hinna vopnuðu kaupskipa, sem kafbátforinginn hafði skipun um að herja á . . . já, það gat svo sem alveg eins verið herflutninga- skip. Hann ætlaði undir öllum skringum- stæðum að athuga jrað dálítið nánar og gera allt tilbúið til skyndiárásar, þegar hann liafði komizt að niðurstöðu. Lemp gaf skipun um að kafa. ^Tankarn- ir voru opnaðir og strax á eftir hvarf U-30 í öldurnar. „Upp með sjónpípuna!“ skipaði hann frá stað sínum í stjórnturninum og bað um staðsetningu. Stefna U-30 var nú suð- vestlæg, og með 15 mílna hraða þaut kafbáturinn áfram með stefnu fyrir bóg hins stóra skips. Hann vildi fara í boga svo að hann gæti gert árás úr stefnu að framan. Hugarástand það og taugaæsingurinn, sem nú var yfir Lemp kafbátsforingja, var ekki beint til Jress fallinn, að taka raun- hæfar snöggar ályktanir. Ef til vill lét hann glepjast af mögu- leikanum, að geta orðið sá, sem slægi fyrsta höggið fyrir Þýzkaland, í þessum hildarleik, sem var að hefjast. Var það ekki augljóst, að hann hafði þarna í sjón- pípunni vopnað kaupfar? Að vísu gat hann ekki verið alveg öruggur, en skipið leit sannarlega grunsamlega út. Þó að komið væri rökkur, sást hvergi á jrví ljós- glæta. Það vonaði sýnilega að konrast á- fram óséð! Hann vóg í hug sér rökin með og móti, og tók svo ákvörðun sína. Hann ætl- aði að gera árás! Með sjónpípuna niðri hóf hann áhlaup sitt á bráðina. Þegar Iiann hóf sjónpíp- una aftur var hann rúml. 1600 metra frá Athenia, og hann byrjaði að telja æstri og hásri röddu, og að síðu hljómaði skip- unin: „Sleppið tundurskeytinu!" Næstu 30 sekúndurnar heyrðu sögunni til. Áður en þeim lauk var fyrsta skoti heimsstyrjaldarinnar síðari skotið á vestur- vígstöðvunum, og það tók sínar fórnir. Tvö tundurskeyti Lemps misstu marks, en það þriðja hitti í hlið Atlienia og sprakk í lest 5 rétt hjá vélarýminu. Eitt- hvað var einnig að fjórða skeytinu og það festist í tundurskeytisrörinu. U-30 kafaði nú niður á 20—30 metra dýpi. Þegar kafbáturinn rak stjórnturninn aft- ur upp úr sjónum um það bil hálftíma síðar, lá hafflöturinn, sem var dálítið ó- rólegur, baðaður í tuglsljósinu. Hinsch lautinant, sem stóð í brúnni við hlið foringja síns, sá að tunglið var stig- ið 10 gráður yfir liafflötinn. Skammt frá lá bráð þeirra með sigl- ingaljós uppi, en þögular vélar. Þetta stóra skip hafði mikla slagsíðu og aftur- hluti þess lá djúpt í sjónum. Björgunar- bátar voru dreifðir í kringum um skipið.

x

Nýtt S.O.S.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.