Sagnir - 01.04.1980, Blaðsíða 51
Hvers vegna smáflokkaframbod?
Þær aðstæður sem einkum
hafa verið fyrir hendi við
framboð smáflokkanna eru þær
sömu og vísað er til í umfjöll-
uninni um stefnumál þeirra,þ.
e. lýðveldisstofnunin og stjórn-
arskrárdeilan í kjölfar hennar;
vera hersins á stríðsárunum og
endurkoma hans 1951; og stefnu-
ágreiningur eða valdaátök inn-
an þingflokkanna er leitt hef-
ur til klofnings. Þó mætti enn
bæta við óljósu atriði,- eigin-
lega viðbrögðum kjósenda við
stöðnun.sem sprottin er af al-
mennri stjórnmálaþreytu. Þetta
kemur m.a. fram í kosningunum
1971, eftir tólf ára samfellt
stjórnartímabil Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks. Hafa
smáflokkarnir hvorki fyrr né
síðar hlotið stærra hlutfall
heildaratkvæðamagns samanlagt
yfir allt landið.(Sjá töflu 4).
Framboðsflokkurinn var dæmi-
gerður fyrir þessar aðstæður
og miðaði allan málflutning
sinn við þær. Svipað hluífáll
fékkst einnig í kosningunum
1953 og réð herstöðvarmálið
þar mestu um. Þó ber að geta
þess að undanfarandi 2-3 ár
fyrir kosningarnar 1953 og
1971 hafði verið kreppa í ís-
lensku atvinnulífi og mikið
Tafla 4
Hlutfall heildaratkvæða-
tölu smáflokka í alþingis-
kosningum 1942-1974.
Ar Hlutfall
1942 V 1.3 *
1942 h 2.2 -
1946 o.5 -
1949 1953 9.3
1956 4.5 -
1959 V 2.5 -
1959 h 3.4 -
1963 o. 2 -
1967 4.8 -
1971 lo.9 -
1974 5.0 -
atvinnuleysi,þótt ástandið væri
betra sjálf kosningárin. Vantrú
fólks á hæfni þingflokkana til
að leysa efnahagsvandann kann
því að hafa ráðið nokkru um.
Stjórnarþátttaka eða af-
staða þingflokkanna til ríkis-
stjórna getur einnig valdið
nokkru um framboð smáflokkanna.
Andrés Kristjánsson skýrði
þetta þannig í grein um Möðru-
vallahreyfinguna:
Það getur líka verið um-
deilanlegt hvort Framsóknar-
flokkurinn hefur í stefnu
og forustuliði færst meira
til hægri en góðu hófu gegn-
ir, en rétt er þó að benda
á eina loftvog, sem gjarn-
an segir til um það, á
hvora höndina flokkar hall-
ast. A árunum milli 193o og
194o, þegar Framsóknarflokk-
urinn hafði náið samstarf
við skyldasta flokk til
vinstri, svo að sumum'for-
ingjum hans var stundum
brugðið um sósíalisma fyrir
bragðið, mynduðust átök í
hægri jaðri hans, sem ollu
stofnun Bændaflokksins. Nú
eru jaðarátök í vinstra
armi, gagnrýni á flokkinn
hjá félagshyggjufólkinu.
Milli 193o og 194o myndað-
ist rúm fyrir nýjan flokk
milli Framsóknarflokksins
og Ihaldsflokksins /svg7 en
þá var ekkert rúm til vinstri
fyrir nýjan flokk. Nú er
þessu öfugt farið. Nú er
rúmið ekkert hægra megin,en
allir vita hvað gerðist í
síðustu kosningum /*þ.e.
kosningasigur Samtakanna
1971/. Þannig stendur þessi
loftvog núna og segir sína
sögu.(2)
Þetta kemur heim við þá
staðreynd að Framsóknarflokkur og
Sjálfstæðisflokkur höfðu setið
(2) Þjóðmál, 14.nóv. 1973