Sagnir - 01.04.1980, Blaðsíða 56
®
Að lokum: Hvað getur sagn-
fræðinám við H.f. tekið sér
til fyrirmyndar að utan?
Það er eitt sem ég tel að sé
til fyrirmyndar í breskum há-
skólum og það er að alveg frá
upphafi er lögð áhersla á að
nemendur beiti sjálfstæðum
vinnubrögðum. Hlutverk kenn-
ara er að þjálfa nemendur í að
vinna á slíkan hátt. Þetta
setur mark á þau verkefni sem
lögð eru fyrir nemendur, þ.e.
a.s. hvernig bæði ritgerðar- og
prófverkefni eru úr garði gerð.
Lögð er áhersla á að verkefnin
séu krefjandi, þannig að á það
reyni að fólk hafi kynnt sér
tiltekið efni og síðan tekið
ákveðna rökstudda afstöðu til
þess. Minna er lagt upp úr
framsetningu staðreynda sem
fólk getur flett upp í hand-
bókum. Að þessu leyti eru al-
veg skýr kennslufræðileg mark-
mið með náminu . í sagnfræði-
kennslu hér tel ég að leggja
beri meiri áherslu á kennslu-
fræðileg markmið af þessu tagi
en gert hefur verið til þessa.
Þá fellur mér að mörgu leyti
vel hvaða skilningur er lagður
í akademiskt frelsi við breska
háskóla. Lögð er áhersla á að
nemendur hafi sjálfræði um að
velja sér viðfangsefni innan
einstakra námskeiða. Hins veg-
ar er við það miðað að fólk
vinni jafnt og þétt og ætlast
er til þess að það skili ár-
angri. Akademíska frelsið kem-
ur þannig fram í því að hafa
mikið svigrúm innan einstakra
námskeiða. Stefnt er að því að
nemendur séu skapendur en ekki
eingöngu þiggjendur.
MÍn reynsla er sú að margir
sagnfræðinemar við H.l. vinni
mjög vel en of stór hópur
stundar námið í hjáverkum.
Margir eru eflaust nauðbeygðir
til þess sökum ytri aðstæðna.
Þeim þarf því að breyta.
SAGA í □ÖNSKUM SKQLUM frh-
Margt er þannig óvissu hul-
ið, en þó raá nú sjá ýmsa drætti
nýskipunarinnar greinilega:
færri námsgreinar verða í
menntaskólunum en áður, og
möguleikar munu gefast á lengri
samfelldum vinnutíma með nem-
endum en sundurslitnar stunda-
skrár með 45 rain. löngum
kennslustundum hafa hingað til
gert. í þessu sambandi skiptir
það verulegu máli, að á þeim
atvinnuleysistímum, sem nú
ríkja, leita um 5o % hvers ár-
gangs yfir í menntaskólana, en
það hefur leitt af sér gjör-
breytta samsetningu nemenda-
hópsins ásamt þeirri staðreynd
að minnihluti raenntaskólanema
leitar sér æðri menntunar að
námi loknu.
Grein þessi, sem Sigurður
Ragnarsson léði til birtingar,
er upphaflega bréf tii Samtaka
íslenskra sögukennara frá
Foreningen af gymnasie- og hf
lærere i historie i Danmark.
Nanna Rögnvaldardóttir þýddi.