Sagnir - 01.04.1980, Side 74
SIC3URGEIR ÞORGRItVlSSOIM
Sagnfrædinám vicJ
Oslóarháskóla
IMámsefnicS
SíSastliðið sumar átti ég
þess kost að heimsækja Osló og
ræða við Knut Kjeldstadli kennara
við sagnfræðistofnun Oslóarháskóla
um sagnfræðinámið þar. Hér verður
á eftir leitast við að draga
saman nokkrar staðreyndir af því
sem ég varð þar vísari.
Heimspekideild Oslóarháskóla
er stærsta deildin af þeim sjö
deildum sem háskólinn samanstendur
af og hefur í dag um 4500 nemendur
og er þar hægt að velja á milli
52 greina. 1 næstum öllum er hægt
að taka tvö eða þrjú mismunandi
pr óf.
Heimspekideildarnámið saman-
stendur af forprófi og þremur
sérefnisprófum. Forprófið er
examen philosophicum. t>að verður
að taka seinasta misseri áður
en nemandinn skráir sig í sér-
efnispróf. Prófið inniheldur:
heimspekisögu, rökfræði og eitt
sérefni. Námið fer fram í formi
opinna fyrirlestra, æfinganám-
skeiða, rökræðuhópa og umræðuhópa.
Prófið stendur yfir í 5 tíma og
nemandinn verður að standast alla
þætti prófsins.
Þrenns konar embættisprófi er
hægt að ljúka frá deildinni.
Lægra stigið er cand.mag. próf
en hærri stigin eru cand.philol,
og mag. art. próf. Cand.mag. próf-
ið er þrjár prófgreinar auk
examen philosophicum og meðal
námstími er 4,5 ár. Prófgreinarnar
eru eitt "grunnfag", meðalnámstími
tvö misseri og tvö "mellomfag"
sem tekur yfir þrjú misseri, þ.e.
eitt misseri umfram "grunnfag".
Cand. philol. próf samanstendur
af examen philosophicum, einu
"grunnfagi", einu "mellomfagi" og
einu "hovedfagi". Meðalnámstíminn
er um 6,5 ár en sumar greinar
krefjast lengri námstíma.
Mag.art. nám samanstendur af
tveimur stoðgreinum ("grunnfag"
eða "mellomfag"), og einni aðal-
námsgrein "hovedfag" og er aðal-
verkefnið að semja kjörsviðsrit-
gerð. I náminu ræðst val stoð-
greinanna af aðalgreininni en
innan magisternámsins eru miklir
valmöguleikar. Námstíminn er
venjulega um 6,5 ár. Mag. art.
gráðan er ekki tekin í sagnfræðinn
Einkunnir eru gefnar með einum
aukastaf frá l,o til 4,o. Hæsta
einkunn er l,o en lægsta 4,o.
Nemandi sem fær lægri einkunn en
4,o í einni námsgrein, hefur ekki
staðist prófið, jafnvel þótt meðal
einkunnin sé 4,o eða betri.
Þróunin í sögunámi frá "grunn-
fagi" til "mellomfags" og
"hovedfags", einkennist af vax-
andi kröfum til skilnings. Þetta
kallar á aukna einbeitingu um
afmörkuð tímabil og efni,
Stúdent sem hyggur á sögunám
verður fyrst að taka tvær auka-
greinar og velur þær yfirleitt
úr hópi hjálpargreina sagnvís-
indanna eða þá greinar sem kenndar
eru í skólanum. 1 grunnfagsnáminu
skal nemandinn fá yfirlit yfir
ákveðnin tímabil mannkynssögunnar
og Norðurlandasögunnar og nánara
yfirlit yfir tvö sérefni, einnig
er það tilgangur að gefa nemendum
þekkingu í aðferðafræði og heim-