Sagnir - 01.04.1981, Blaðsíða 37
35
Aff lesa söguna út úr landinu
Hvenær vaknaði fræðaáhufji
þinn?
Hann vaknaði mjög snemma.
Eg var alinn upp við áhuga á
Þjóðlegum fróðleik. Föðurbróð-
ir minn, sem var heimilisfastur
hjá foreldrum mínum, var mikið
gefinn fvrir þjóðlegan fróðleik
af vmsu tagi og þá sérstaklega
sögu. Hann veitti mér af visku
sinni og vakti hjá mér fróðleiks-
fýsn, sem ekki hefur dofnað síðan.
A heimili mínu í sveitinni
v°ru Islendingasögurnar lesnar
svu að segja upp til agna eins
°g svo víða á þeim árum. ls-
lendingasagnalesturinn átti
stóran þátt í að ég tók að rækta
með mér áhuga á sögulegum fróð-
leik. Fólk var mjög gefið fyrir
Islendingasögurnar um það leyti
sem ég var að slíta barnsskónum
°g það trúði þeim eins og nýju
neti. Nú virðist áhugi almenn-
ings á sögunum svo til horfinn og
það miður. Þá hafa fræðimenn
a seinni árum tekið að draga í
efa sannleiksgildi Islendinga-
sagna. Þótt þessir menn hafi
vafalaust eitthvað til síns máls
held ég að í Islendingasögunum
ielist mun fleiri sannleikskorn
en þeir vilja vera láta.
Hvers konar
einkum við þín
heimildir notarðu
fræðistörf?
Auðvitað fara mínar heimildir
eftir því hvað ég er að fást við
hverju sinni. 1 sagnaþáttum mín-
hef ég til dæmis stuðst mikið
við munnlegar frásagnir fólks,
annars staðar hafa skráðar heim-
ildir komið meira við sögu. í
þessu sambandi megum við þó ekki
Sleyma því að það er að nokkru
feyti líka hægt að lesa söguna
uf úr landinu sjálfu. Landið
heíur í sér fólgnar ýmsar heim-
^ldir. sem geta sagt okkur margt
eí þær eru notaðar á réttan hátt.
f rannsóknum mínum á sunnlensku
lreppaskipaninni hef ég til dæm-
is reynt að notast við það sem
andið sjálft hefur að segja.
Hvernig er háttað lestrar-
venjum þínum í sambandi við verk
sögulegs eðlis?
Yfirleitt les ég allt sem ég
kemst í tæri við af íslenskum
bókum, sem hafa að geyma sögu-
legan fróðleik, hvort sem þær
eru ritaðar af menntuðum sagn-
fræðingum eða ómenntuðum áhuga-
mönnum. Auk þess ber ég mig
talsvert eftir ýmsum tímaritum,
sem fjalla um söguleg efni, svo
sem Sögu og ýmsum héraðstímarit-
um. Sé litið út fyrir land-
steinana er það einkum breska
sagan sem hefur heillað mig og
les ég talsvert af bókum þar að
lútandi. Bresk sagnfræði stend-
ur mjög framarlega.
Hvert er álit þitt á tíma-
ritinu Scgu?
Tímaritið Saga er vísir að
nauðsynlegum vettvangi fyrir Is-
lenska sagnfræðinga. Að mörgu
leyti finnst mér Saga góð en hún
mætti þó að ósekju höfða meir til
almennings en hún gerir í dag.
Það væri vafalaust unnt að auka
mjög útbreiðslu tímaritsins með
því að birta í því aðgengilegri
og léttari greinar en þar hafa
oft birst. Enginn er kominn
til með að segja að fræðilegt
verk þurfi nauðsynlega að vera
leiðinlegt aflestrar. Sagnfræð-
ingar ættu að gera sér meira far
um að sameina fræðilega rannsókn
og aðgengilega framsetningu.