Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Blaðsíða 83
ingar- og viðskiptatímamót í sögu íslenzku
þjóðarinnar". Með öðrum orðum saga um ör-
lög íslenzku þjóðarinnar síðustu árin.
Þar hefst frásögnin, að ungur maður íslenzk-
ur, Aki Geirsson frá Hellisvík, situr niðri á
einum af hafnarbökkum Manhattaneyjar og
les Njálu. Hann bíður eftir skipi, sem er að
koma heiman frá íslandi. Áki er sögumaður
höfundar og segir víðast frá í fyrstu persónu.
Þegar sagan hefst, hefur hann dvalizt nokkra
mánuði í New York, en finnur engu að síður,
þegar fossinn íslenzki kemur og skipverjar á-
varpa hann, að honum er orðið stirt um móð-
urmál sitt. Með skipinu kemur ung stúlka,
Erla Ólafs. Hún ætlar til Minneapolis til
náms þar. Hún er ókunnug í New York, og
Áki gerist þar leiðsögumaður hennar. Hún kall-
ar hann óðara „verndara sælan“, en hann hana
„laukastcrð".
Af því segir síðan, að verndarinn velur nýj-
an kjól á laukastorð sína, og er mjög fjölyrt
um smekkvísi hans á kvenfatnað. Þau sofa
saman nóttina eftir, en að morgni fer laukastorð
vestur til Minneapolis.
Þá verður það tíðinda, að Áki tekur nýtt
herbergi á leigu. Jafnskjótt og hann mælir hÚ6-
móðurina á nýja staðnum málum, heyrir hann,
að enska er ekki móðurmál hennar. Frúin sér
óðara, að Áki er menntamaður, sennilega rit-
höfundur eða námsmaður við Columbiaháskól-
ann, sem er þarna skammt undan.
Næst segir af því, að æskuvinur Áka og leik-
bróðir, Þorlákur Hákonarson heildsali í Reykja-
vík, kemur til New York í verzlunarerindum.
Hann Ieitar Áka uppi og kemst fljótlega í
kunningsskap við dóttur húsmóður hans, en sú
er verðandi söngkona. Sá kunningsskapur leið-
ir til þess, að þeir leikbræðurnir fornu fara á-
samt dóttur hússins cg vinstúlku hennar á bað-
strönd. Hún heitir Helena og vinnur hjá út-
gáfufyrirtæki. í þessari för er Áki kallaður
„drumbur". Lfður nú skammt, unz Helcna
hringir til hans og býður honum í skemmti-
ferðalag, sem Áki þiggur. í þeirri för rekur
hann ævi sína fyrir Helenu, les henni smásögu
eftir sig og sefur hjá henni. Er hann kemur
heim aftur, bíður hans bréf frá Erlu Ólafs,
sem raunar hafði verið efst í huga hans allt til
þessa. I bréfinu biður hún Áka að taka á móti
sér, er hún komi til New York, hefur komið,
meðan hann var í reisunni með Helenu, og er
honum nú týnd í stórborginni. Áki heldur því
áfram að hafa gaman Helenar og gæði, og hún
DAGSKRÁ
kemur sögu hans á framfæri við útgefanda
þann, sem hún vann hjá, en án árangurs.
Nú kemur til sögunnar Hallmundur Hólm-
fjörð, sportfífl utan af íslandi. Hann færir
Áka bréf og þúsundir dollara frá Þorláki. Biður
Þorlákur æskuvin sinn að ná sambandi við
Erlu Ólafs, kosta hana til kjólamenntar og
ráða sem forstöðukonu í tízkuhús sitt.
Verða til sögunnar hraðir atburðir.
Áki lætur ráðninguna lönd og leið og leitar
Erlu ekki, en þá vill svo til, að hann hittir
hana í brennivínsboði hjá íslenzkri verzlunar-
sendinefnd. Þar vill hún lítt þýðast hann, ek-
ur brott með ölmóðum heildsala, lendir í bíl-
slysi, særist ekki, en fær taugaáfall. Áki er
kvaddur til af lögreglunni, því að konan hafði
nafn hans og símanúmer í pússi sfnum. Þarna
hirðir Áki Erlu örvita, fer með hana heim í
ból sitt, og hefjast nú stríðlegar ástir þeirra
á nýjan leik. Um Helenu hirðir Áki ekki að
sinni.
Svo æxlast nú, að Áki ræður Erlu til Þor-
láks, og eftir hóflegan ta'ma kemur Láki aftur
til New York. Hefst þá æðimikil togstreita
milli vinanna. Þorlákur vill eiga vingott við
Erlu um skör fram, en Áki vill ógjarna sleppa.
Enn fremur vill Þorlákur fá Áka með sér til ís-
lands. Hann hefur í hyggju að bjóða sig fram
til þings, og Áki á að verða eins konar and-
Iegur brimbrjótur hans í kjördæminu, fæðing-
arsveit þeirra. Þeir vinirnir báðir höfðu hlotið
uppeldi sitt meðal verklýðshreyfingar í litlu
sjóþorpi, og Áki hefur lengi verið málstað lít-
ilmagnans trúr. Hann er „sósíaldemókrat" og
svíkur ekki málstað alþýðunnar.
Svo fer baráttan um ungfrúna Erlu, að Þor-
lákur fær hana með sér í skemmtiför til
Boston, en Áki situr eftir með sárt ennið. Er
hún kemur aftur úr þeirri ferð, hringir hún til
Áka til þess að skýra framkomu sína. Kemur
þá upp úr dúrnum, að konan hefur barnung
látið giljast af læknisfræðistúdent og síðan
engum manni unnað heilum huga. Er það nú
helzt áform hennar að hafa gott af Þorláki, en
ala lækninum barn, sé hann fáanlegur til
þeirra framkvæmda, sem slíkt fyrirtæki krefst.
Áki gerist því viljandi strandaglópur, gengur
niður á hafnarbakka þar í New York, hendir
handriti að skáldsögu, sem hann hefur haft í
smíðum, í Hudson River, hringir til konunn-
ar Helenu, sem hans bíður opnum örmum, og
leggur af stað þangað.
Sú er í stórum dráttum þessi örlagasaga.
81