Félagsbréf - 01.07.1958, Page 7

Félagsbréf - 01.07.1958, Page 7
STEIIVN STEINARR Steinn Steinarr er látinn. Hann andaðist 25. maí síðast liðinn, 49 ára að aldri, ungur í anda, en farinn að heilsu. Með honum er horfið eitt sérkennilegasta skáld þessara ára, skáldið geig- Jausa, sem varð öðrum fremur lærimeistari yngri skálda. Hann átti því láni að fagna að vera umdeildur alla agvi. Sagt er að hver kynslóð eigi sín skáld. Ég veit ekki hverjir eiga Stein Steinarr. En hann orkaði ótrúlega sterkt á þá, sem voru kringum tvítugt í uppliafi stríðsins, fremur bölsýnir menn, tóku hlutum með varúð og létu ógjarna sjá á sér hrifningu á almannafæri. Ljóðin í Sporum í sandi og Ferð án fyrir- heits gengu þessum mönnum að lijarta. Tíminn og vatnið var fjarlægara, þar virtist Steinn kominn á fund yngri manna. Eins og ljóð Steins Steinars voru sérstæð, svo var og maður- inn. Hann var hægur í fasi, lágur vexti, lágmæltur, laus við faguryrði, en hitti gjarna í mark í athugasemdum. Hann var óbrigðull talsmaður allra, sem áttu bágt, en annars ómild- ur í dónium tim menn og málefni, og gilti einu, livort þeir, sem áttu í hlut, voru viðstaddir eða ekki. Steinn Steinarr var mikill lieimspekingur að okkar dómi. En hann var líka baráttumaður, sem allir máttu vera öruggir um, að brigði aldrei út af sannfæringu sinni, knúinn af innri þörf til að láta aldrei í friði það, sem honum fannst rangt. Hann var kvongaður Ásthildi Björnsdóttur, sem mér er sagt, að liafi verið lionum mikil lieilladís. ^ ið hörmum Stein Steinarr. Sjálfur þakka ég honum nokkr- ar samverustundir, sem eru mér alltaf jafnferskar og þær hefðu átt sér stað í gær. Ljóðin fáum við ekki fullþakkað. Eiríkur Hreinn Finnbogason.

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.