Félagsbréf - 01.07.1958, Síða 16

Félagsbréf - 01.07.1958, Síða 16
12 FELAGSBBEP ust sjá betur, — að minnsta kosti greintlu þeir betur ruglinginn, sáu greinilegar þá liugmyndastrauina, sem verið liöfðu að verki einnig á ófriðarárunum, og þær breytingar, sem orðið höfðu á viðliorfi manna. Þar var ekki aðeins um stjórnmálalegt og félagslegt mat og endur- inat að ræða, Iieldur einnig, og það svo mn munaði, heimspeki og trúarbrögð og ekki aðeins þetta lieldur einnig form listanna. Nafnaskrá yrði löng. Þar eru nöfn uppgötvara og táknaþvðara, endurmatsmanna og nýskapenda eða þeirra, sem fullkoinna. Það er atburðarás og liugmyndir, sem lúta nöfnum eins og Spengler, Freud eða Gandi, nöfnum eins og Lenín og Mussolíni, og þar eru lijá liugtök eins og dadaismi, nýtt raunsæi, konstruktivismi og surreal- ismi. Það má minna á það aftur, að allt var á tjá og tundri, ástandið margrætt, og, svo að liöfð séu sem fæst orð, öðrum megin á sviðinu stóðu spámenn eða tilvonandi spámenn, binuni megin böðlar eða verðandi böðlar. Allt varð þetta efniviður og ekki aðeins á liinum mörgu sviðuin sagnaritunar heldur einnig lianda skáldsagnaböfundinum. Álirif styrj- aldarinnar liéldu áfram að segja til sín, eins og við vitum, langt inn í hinn svo kallaða heim friðarins. Sumum liinna miklu verka í skáldsagnalist nútímans var einmitt lokið þá eða þau voru í smíðum. Ég nefni liér Á la recherche du Temps Perdu eftir Marcel Proust, niðurstöðu lians í leit að hinuin glataða tíma, og skáldsöguna Les Faux-Monnayeurs eftir André Gide, einu verulegu skáldsögu lians. James Joyce lauk við Ulysses, mestu tilraun í skáldsagnagerð á okkar dögum. Ameríska skáldsagnaflóðið eftir styrjöldina eða milli styrjaldanna eins og nú er sagt, streymdi fram, og þeir settu svip sinn á það Hemingway, Dos Passos, Faulkner og fleiri. Út kom Der Zauberberg eftir Tliomas Mann og Jósefsflokkur lians var í undirbúningi eða smíðum. Hinar ábrifamiklu skáldsögur eftir D. H. Lawrence komu út og ásjónu Franz Kafka frá fyrir. Samtíðin sjálf, nakin eða með auðlegð sinni og allsleysi, breyting- um, spennu og sæluforskriftum, var voldugasta skáldsöguefnið, sem nokkru sinni liafði verið fengið viljugum eða nauðugum, bressum eða tregum aðliyggjendum og höfundum. Nýr heimur koni, eða svo var talið, — að minnsta kosti setti heim- urinn upp nýjan svip. Það voru nýjar fjárbags- og stjórnmála- kreppur. Það kom ný ljóðagerð, ný tónlist, ný myndlist, nýir draum- ar5 nýjar leiðir eða nýlega endurfundnar gamlar leiðir tii nýrra

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.