Fréttatíminn - 02.05.2014, Blaðsíða 44
44 matur & vín Helgin 2.-4. maí 2014
vín vikunnar
Giacondi
Chardonnay
Gerð: Hvítvín
Þrúga: Chardonnay
Uppruni: Ítalía,
2012
Styrkleiki: 12,5%
Verð í Vínbúð-
unum: kr. 1.599
Þó svo að
Chardonnay sé
vinsælasta hvít-
vínsþrúgan er hún
ekkert endilega
sú vinsælasta á
Ítalíu. Þetta ítalska
Chardonnay er í
léttari kantinum,
þurrt og sýruríkt
með klassískan
sítrus- og eplakeim.
Frískandi vín á
frábæru verði.
Cuvee Jean-Paul
Demi Sec
Gerð: Hvítvín
Uppruni: Frakk-
land, 2012
Styrkleiki: 11,5%
Verð í Vínbúð-
unum: kr. 1.570
Þetta vín hefur
frískan keim og
létta sætu. Bragðið
er ávaxtaríkt og
sætan gefur góða
fyllingu. Þetta
er frábært vín í
stúdentsveislum,
sameinar eiginleika
hvítvíns og sætari
freyðivíns. Þetta er
líka ágætis vín með
sterkum og mikið
krydduðum mat.
Adobe Char-
donnay Reserva
Gerð: Hvítvín
Þrúga: Chardonnay
Uppruni: Chile,
2013
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúð-
unum: kr. 1.570
Víngerðarvinir
okkar í Chile eru
verulega góðir í
því að gera óeikað
frískt Chardonnay á
góðu verði og þetta
vín fellur vel í þann
flokk. Suðrænir
ávextir, fersk
sýra og léttleiki.
Frískandi fordrykkur
og smellur líka með
feitari fiski.
Brakandi ferskleiki inn í vorið
Það hlaut að koma að því. Vorið er komið, halelúja. Þá er bara eitt að gera; fara út að grilla og
grilla mikið og grilla allt. Grillið er ekki bara fyrir steikur og hamborgara. Það er gaman
að prófa sig áfram og grilla það sem hugurinn girnist, þetta er jú bara tegund að
hitagjafa eins og ofninn eða eldavélin inni hjá þér. Hver einasti heima-
kokkur á að hafa metnað
fyrir því að útbúa heilar
máltíðir á grillinu, allt frá
salati í forrétt að grill-
aðri köku í eftirrétt. Eitt
það allra besta á grillið er
fiskur og skelfiskur og þar
er Sauvignon Blanc þrúgan á heimavelli. Þetta vín frá Marlbourough-
héraðinu í Nýja Sjálandi er erkitýpan af nýsjálenskum sauvignon með brakandi
ferskleika, suðrænum ávöxtum, greipaldin og steinefnum. Það steinliggur með skelfiski
en það er alveg þess virði að prófa það með grilluðu grænmeti eða grænmetisréttum.
Saint clair Sauvignon Blanc
Marlborough Vicar's Choice
Gerð: Hvítvín
Þrúga: Sauvignon Blanc
Uppruni: Nýja Sjáland, 2013
Styrkleiki: 13%
Verð í Vínbúðunum: kr. 2.499
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Fréttatíminn mælir með
Uppskrift vikunnar
Sumargrillspjót Fiskikóngsins
Sumarið er komið og nú má finna angan
af grillmat úr öðru hverju húsi á kvöldin.
Fiskikóngurinn Kristján Berg er atvinnu-
maður við grillið og leggur til að lands-
menn renni þremur eðal fisktegundum
upp á spjót þetta sumarið ásamt gómsætu
grænmeti.
Grillspjót fyrir 4
500 g laxaflak, roðlaust og beinlaust
300 g lönguhnakki, roðlaus og beinlaus
300 g keila, roðlaus og beinlaus
1 rauð paprika
1 gul paprika
1 sítróna
2 rauðlaukar
Allur fiskurinn og allt grænmetið er
skorið í jafna ferninga. C.a. 3x3 cm. Nema
sítrónan, hún er skorin í sneiðar.
Maríneringar:
Heimatilbúin hvítlauks marínering
5 hvítlauksrif
1 búnt steinselja
3-4 dl rapsolía
1/2 - 1/1, búnt fersk steinselja
1 tsk gróft salt
1/2 ferskur chilli m/fræjum
Allt sett í mixerinn og tilbúið á 30
sekúndum.
Afganginn af maríneringunni má nota í
næstu pítsuveislu.
Barbiecuesósa, bara þín uppáhalds
Sojasósa (Kikkoman)
Hún er sölt og góð.
Þegar búið er að skera fiskinn í
hæfilega bita þá er laxinn settur
í Kikkoman sojasósu – hún er sölt
og góð. Langan sett í hvítlauks-
maríneringu og keilan í eftirlætis
Barbecue-sósuna þína. Fiskurinn
er látinn marínerast í um það bil 30
mínútur.
Krakkarnir geta síðan hjálpað við að
raða fiskinum á grillspjótin. Allt gert
til skiptis, fyrst paprika, lax, laukur,
langa, sítróna, keila, paprika og
svona er haldið áfram þar til grill-
spjótið er fullt.
Grillað á góðum hita í 3-4 mínútur á
hverri hlið. Helst með lokað grillið til
þess að fá „smokey bragðið“.
Borið fram með bakaðri kartöflu,
fersku salati og ísköldu sódavatni.
Bjór fyrir þá sem eru eldri en 20 ára.