Fréttatíminn - 06.06.2014, Blaðsíða 4
Arkitektúr DeiliskipulAg og byggingAr
Handbært fé frá rekstri
ríkissjóðs 11. 8 milljarðar
11,8
milljarðar
Handbært fé
Fyrstu 4 mánuði
2014
Ríkissjóður
veður FöstuDAgur lAugArDAgur sunnuDAgur
Hæg breytileg átt eða Hafgola.
Hiti 12 til 20 stig.
Höfuðborgarsvæðið: Hægviðri
eða Hafgola og léttskýjað.
breytileg átt eða Hafgola,
léttskýjað og 12 til 22 stiga Hiti.
Höfuðborgarsvæðið: Hægviðri eða
Hafgola og léttskýjað.
Hægviðri, og þykknar smám
saman upp. áfram Hlýtt í veðri.
Höfuðborgarsvæðið: Hægviðri eða
Hafgola og skýjað með köflum.
má jafnvel tala um
hitabylgju um helgina
sólríkt og hlýtt um helgina jafnvel
svo að við getum talað um hitabylgju.
víða við sjávarsíðuna er þó viðbúið að
hafgolan kæli niður um miðjan dag og
því er hlýjast í innsveitum
en við austurströndina
má búast við þokulofti.
Það er því viðbúið að
margir bregði undir
sig betri fætinum
þessa fyrstu
ferðahelgi sum-
arsins.
15
16 17
16
16
15
16 17 16
15
14
14 16 14
13
elín björk jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Í fréttaskýringu Fréttatímans í síðustu viku kom fram að gamla deiliskipulagið við Aust-
urhöfn væri á skjön við breyttar
áherslur borgarinnar í dag og þær
hugmyndir sem nýtt aðalskipulag
vill endurspegla. Arkitektastofan
T.ark er hluthafi í fasteignafyrir-
tæki sem á eina lóð af fjórum við
Austurhöfn. Halldór Eiríksson,
arkitekt og einn eiganda T.ark,
er ekki sáttur við ummæli sviðs-
stjóra umhverfis-og skipulagssviðs
borgarinnar um deiliskipulagið
og er ekki sammála Hilmari Þ.
Birgissyni arkitekt um að óvenju-
legt verklag á byggingarreitunum
hvetji til hagsmunaárekstra.
borgin eigandi lóðanna frá
2009 til 2013
Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri um-
hverfis- og skipulagssviðs Reykja-
víkurborgar, sagði í greininni að
erfitt væri að fella gamalt deili-
skipulag úr gildi. Alltaf þurfi að
fara í samningaviðræður við lóðar-
hafa til að gera breytingar á deili-
skipulagi. Það hafi nú verið gert og
byggingarmagn í kjölfarið lækkað.
Halldór segir þessi ummæli ekki
gefa rétta mynd af ástandinu.
Borgin, ásamt ríki, hafi verið eini
eigandi lóðanna frá hruni, 2009 til
2013.
„Þessi gagnrýni stenst enga
skoðun því deiliskipulagið við
Austurhöfn var gert í samvinnu
við Portus, þáverandi fyrirtæki
Björgólfs Guðmundssonar, og var
samþykkt árið 2006. Þegar Portus
fór á hausinn yfirtóku ríkið og
borgin fyrirtækið. Svo það voru
ríkið og borgin sem áttu þessar
lóðir alveg þangað til núna í vetur
þegar þær voru seldar, án þess
að gera nokkrar breyt-
ingar á byggingarmagni
eða hæð húsanna. Svo
það hefur aldrei neinn
lóðareigandi komið að
samningum um bygg-
ingarmagn á svæðinu.
Þetta byggingarmagn er
svo sannarlega barn síns
tíma en hafi einhver póli-
tískur vilji verið til að minnka þetta
byggingarmagn þá hefur það vald
legið hjá borginni, sérstaklega
eftir hrun þegar hún átti helmings
hlut af þeim,“ segir Halldór og
bendir auk þess á að það hafi verið
T.ark sem hafi haft frumkvæðið
að lækkun bygginganna við hlið
Hörpu, en ekki borgin.
aukin ábyrgð arkitekts sem
einnig er lóðareigandi
Hilmar Þ. Birgisson arkitekt sagði
í greininni hluta vandans við Aust-
urhöfn mega rekja til óvenjulegs
verklags á lóðunum þar sem hönn-
uðir bygginganna væru í sumum
tilfellum einnig eigendur lóðanna.
Halldór er ekki sammála þessari
fullyrðingu. „Arkitektar eru eðli
málsins samkvæmt fjárhagslega
háðir verkefnum sínum, hvort
sem þeir eru ráðgjafar eða hluti
eigendateymisins. Það að arki-
tektinn sé líka verkkaupinn gefur
honum einmitt sterkari rödd inn í
ákvarðanatöku verksins, til viðbót-
ar við hans eigin metnað gagnvart
verkinu, og hlutverki hans eins og
Hilmar lýsir því. Ég veit ekki til
annarra dæma þar sem lóðarhafi
hafi óskað eftir því að bygging sé
lækkuð,“ segir Halldór. „Þar að
auki getur arkitekt í þessari stöðu
síður haldið því fram að lóðarhafi
hafi þvingað hann sem arkitekt
til að gera eitt né neitt.
Þessari stöðu fylgir í
raun aukin ábyrgð.“
framtíðarsýn t-ark
Á reitnum sem T-ark
hannar og byggir á mun
rísa hótel og íbúðar-
hús sem eiga að tengja
Hörpu við borgina. „Við
viljum ekki að Harpa standi eins
og eyland í borginni og við erum
að reyna að nálgast borgina með
því að trappa stærðina niður frá
Hörpu, en stærðin er ekki meiri en
svo að hótelið við Hörpu verður í
hliðstæðri hæð og Hótel Borg. En
þetta deiliskipulag heldur svo auð-
vitað áfram í öðrum reitum, hinum
megin við Geirsgötuna, sem ég
veit ekki hvernig mun líta út,“
segir Halldór sem er ekki hrifinn
af því að byggja í gömlum stíl.
„Fyrir kosningar voru einhverj-
ir að tala um timburhúsabyggð
á hafnarbakkanum. Þá stæði
Harpa eins og kastali yfir Þyrni-
rósardal sem aldrei var. Svo má
ekki gleyma Tollhúsinu, Hafnar-
húsinu og Seðlabankanum. Það er
búið að rjúfa tengslin við Kvosina
frá hafnarbakkanum á þessu
svæði fyrir löngu og það er líka
hluti af okkar sögu. Auðvitað á
að vernda og gera upp gömul hús
en þú byggir ekki gömul hús. Það
er mjög rómantískt að búa til þá-
tíðina og Jónas frá Hriflu var mjög
duglegur við það í sinni sögu-
skoðun en mér finnst ekki að við
eigum að fara þá leið. Við teljum
að arkitektúrinn eigi ávallt að
endurspegla sinn tíma.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Byggingar við Austurhöfn
munu endurspegla nútímann
Halldór eiríksson arkitekt hjá t.ark, sem á hlut í einni lóð af fjórum við austurhöfn, segir borgina
ekki gefa rétta mynd af ástandinu við höfnina. Það séu ekki núverandi lóðaeigendur sem hafi
hindrað breytingar á deiliskipulagi heldur borgin sjálf, sem átti lóðirnar frá hruni og þar til nýlega.
Halldór eiríksson,
arkitekt hjá t-ark.
„Það er búið að
rjúfa tengslin
við kvosina frá
hafnarbakk-
anum á þessu
svæði fyrir
löngu og það
er líka hluti af
okkar sögu.
auðvitað á að
vernda og gera
upp gömul hús
en þú byggir
ekki gömul hús,“
segir Halldór
eiríksson,
arkitekt hjá t-
ark, sem á hlut í
reitnum við hlið
Hörpu.
nýtt borgarsögusafn vígt
reykvíkingar hafa eignast nýtt safn sem fengið hefur
nafnið borgarsögusafn reykjavíkur en undir það heyra
söfnin og sýningarnar: Árbæjarsafn, landnámssýningin
aðalstræti, ljósmyndasafn reykjavíkur, sjóminjasafnið
í reykjavík og viðey. tilgangur og markmið borgar-
sögusafns reykjavíkur er að varðveita og rannsaka
menningarminjar í reykjavík og miðla þekkingu um sögu
og lífskjör íbúanna frá upphafi byggðar til nútímans.
starf safnsins miðar að því að glæða áhuga, skilning og
virðingu fyrir sögu höfuðborgarinnar og að tryggja að
allir hafi aðgang að menningararfi hennar, að því er fram
kemur í tilkynningu. -sda
greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins
2014 liggur fyrir og var handbært fé frá rekstri jákvætt
um 11,8 milljarða króna en var neikvætt um tæpa 4
milljarða króna á sama tímabili árið 2013, að því er fram
kemur á síðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. inn-
heimtar tekjur hækkuðu um 30,1 milljarð króna milli ára
en greidd gjöld jukust um 16,5 milljarða króna. greiðslu-
uppgjörið gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á
grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. -jh
vöruskipti í maí
hagstæð um
2,4 milljarða
samkvæmt bráðabirgða-
tölum fyrir maí var
útflutningur 50,3 milljarðar
króna og innflutningur tæpir
48 milljarðar króna. vöru-
skiptin í maí voru því hag-
stæð um tæpa 2,4 milljarða
króna, að því er Hagstofa
Íslands greinir frá.
*ATH. takmarkað magn á einstökum vörum.
sala@nyherji.is // 569 7700
Bleksprautuprentarar, fjölnotaprentarar, laserprentarar,
ljósritunarvélar og teikningaprentarar.
Prentaradagar
Allt að 40% afsláttur*
4 fréttir Helgin 6.-8. júní 2014