Fréttatíminn - 06.06.2014, Blaðsíða 67
Á mánudaginn verða haldnir opnunar-
tónleikar Alþjóðlegu tónlistarakademíunnar
í Hörpu. Tónleikarnir marka upphaf tón-
listarnámskeiðs og tónleikahátíðar í Hörpu
dagana 7.-17. júní. Á tónleikunum koma fram
ungir einleikarar á strengjahljóðfæri sem
náð hafa að skara fram úr á tónlistarsviðinu
og unnið til verðlauna. Fremstur í flokki er
hinn 18 ára gamli In Mo Yang frá Kóreu sem
nýverið hlaut önnur verðlaun í alþjóðlegu
Menuhin-fiðlukeppninni, en hún er meðal
virtustu tónlistarkeppna í heimunum.
Á fyrri hluta tónleikanna koma fram þrír
ungir norskir listamenn. Fiðluleikarinn So-
noko Miriam Shimano Welde, 17 ára, hefur
margsinnis unnið til verðlauna og keppir
fyrir hönd Noregs í Eurovision Young Mu-
sicians keppninni 2014, sigurvegari þeirrar
keppni 2012, víóluleikarinn Eivind Holtsmark
Ringstad og sellóleikarinn Sandra Lied Haga
sem hefur verið sigursæl um allan heim.
Ungmennin munu leika saman tríó auk
einleiksverka fyrir sín hljóðfæri.
Þessir ungu einleikarar eru allir komnir
hingað til lands að taka þátt í sumarnám-
skeiði Alþjóðlegu tónlistarakademíunnar,
sem nú er haldið í annað sinn. Á námskeið-
inu munu þau miðla af reynslu sinni og vera
öðrum þátttakendum hvatning til dáða.
Ungir einleikarar í Hörpu
„Kærleiksdiskur“
Labba í Mánum
Ólafur Þórarinsson sem flestu tónlistaráhuga-
fólki er i kunnur sem Labbi í Mánum sendi
nýverið frá sér nýjan disk sem nefnist Lítið ljós.
Tónlistin á þessum nýja disk er á ljúfu nótunum
og er einskonar „kærleiksdiskur“ eins og Labbi
orðar það sjálfur. Telur hann diskinn auka kær-
leika og umhyggju milli manna. Lögin eru 14
talsins og í afar vönduðum bækling sem fylgir
disknum, má lesa frásagnir af tilurð laganna.
Labbi syngur flest lögin sjálfur en fær einnig til
liðs við sig söngkonuna Guðlaugu Dröfn Ólafs-
dóttur og tenórinn Gissur Pál Gissurarson.
Diskurinn er fáanlegur í flestum hljómplötu-
verslunum og er það Zonet sem gefur út.
Svissneski kórinn
Bâlcanto frá Basel og
Söngfjelagið flytja frönsk
sjómannalög, íslensk
sönglög og nokkrar
kveðjur frá svissnesku
Ölpunum á tónleikum í
Listasafni Íslands laugar-
daginn 7. júní klukkan
16. Bâlcanto sækir efnis-
skrá sína í söngvasjóð
franskra sjómanna sem
komu til stranda Íslands
á árum áður og tóku með
sér lög frá Bretagne-
skaganum – föðurlandi
þeirra flestra.
Einnig hefur kórinn
kynnt sér nokkrar ís-
lenskar söngperlur og
fær liðsstyrk úr Söngfje-
laginu við flutning þeirra.
Söngfjelagið er blandaður
kór, undir stjórn Hilmars
Arnar Agnarssonar. Í
kórnum eru 60 manns,
allir ýmist kórvanir eða
tónlistarmenntaðir.
Ekki eru seldir miðar á
tónleikana sérstaklega en
aðgangseyrir að Lista-
safni Íslands er 1.000 kr.
Sótt í söngvasjóð franskra sjómanna
Velkomin á nýja sýningu í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur þar sem Ragnar Axelsson bregður
upp hrífandi mannlífsmyndum af harðbýlum
svæðum í norðri og viðkvæmri náttúru á
hverfanda hveli.
Ljósmyndasafni Reykjavíkur
Tryggvagötu 15, 101 Reykjavík
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 12 – 19
Föstudaga kl. 12 – 18
Helgar kl. 13 – 17
Velkomin á nýja grunnsýningu í
Árbæjarsafni sem færir okkur aftur
til þess tíma er lífsbaráttan breyttist
í lífsgæðakapphlaup. Sjáðu hvernig
Íslendingar urðu á nokkrum áratugum
neytendur í tæknivæddum heimi.
Árbæjarsafni
Kistuhyl 4, 110 Reykjavík
Opið alla daga kl. 10 – 17
SPEGILL LÍFSINS
Ragnar Axelsson
NEYZLAN
Reykjavík á 20. öld
TVÆR NÝJAR SÝNINGAR
hjá Borgarsögusafni Reykjavíkur
Borgarsögusafn Reykjavíkur er nýtt safn í eigu
borgarinnar en undir það heyra: Árbæjarsafn,
Landnámssýningin Aðalstræti, Ljósmyndasafn
Reykjavíkur, Sjóminjasafnið í Reykjavík og Viðey.
menning 67 Helgin 6.-8. júní 2014