Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.06.2014, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 06.06.2014, Blaðsíða 6
Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is Fimm stórmót skáta verða í sumar, tvö þau fyrstu nú um hvítasunnuhelgina. Ljósmynd/Skátamál  Skátar Mót SuMarSinS byrja nú uM hvítaSunnuhelgina Sápurennibraut á skátamóti Skátar halda í sumar fimm stórmót. Fyrstu mótin verða haldin nú um hvíta- sunnuhelgina og síðan er nóg um að vera fram að Landsmóti skáta á Akur- eyri sem haldið verður í júlí. Tvö mót eru um helgina: Vormót Hraunbúa verður haldið í Krísuvík en drekaskátar safnast saman á Úlfljótsvatni, að því er fram kemur í tilkynningu. Vormót Hraunbúa í Krísuvík er ár- visst um hvítasunnuna en þetta er í 74. skipti sem skátafélagið Hraunbúar í Hafnarfirða stendur fyrir mótinu. Þema mótsins er „Þrír á Richter“ sem táknar bæði jarðfræðilega virkni á svæðinu og það dúndrandi fjör sem verður undir Bæjarfelli um hvítasunnhelgina. María Björg Magnúsdóttir mótsstjóri segir að dagskráin sé sniðin fyrir fálka og dróttskáta. „Póstaleikir, útieldun, sig í klettum, FlyFox, skyndihjálp og svo er sápurennibrautin alltaf vinsæl,“ seg- ir María Björg. Fjölskyldubúðir eru í tengslum við mótið. Drekaskátamót verður einnig hald- ið um helgina en það er fyrir yngstu skátana sem eru á aldrinum 7-9 ára. Mótið verður á Úlfljótsvatni sem býður upp á margvíslega möguleika svo sem vatnasafarí og klifurvegg. Tjaldsvæðið á Úlfljótsvatni er opið almenningi þessa helgi. Síðar í júní stendur Skátafélagið Landnemar fyrir sínu hefðbunda Land- nemamóti í Viðey. Það er opið öllum skátum á landinu. Viðeyjarmótið verður sett föstudagskvöldið 20. júní, klukkan 22, við fjörueld. Þá verður 40+ Landsmótið haldið öðru sinni á Úlfljótsvatni. Stærsta mót sumarsins er svo Lands- mót skáta sem í ár verður haldið á Ak- ureyri og stendur í eina viku, frá 20.-27. júlí. Gert er ráð fyrir um 1.250 þátttak- endum og eru yfir 500 erlendis frá. Ljósmyndasýningin „Minn líkami, mín réttindi“ opnar þann 11. júní næstkomandi í sýningarsal Gym&Tonic á Kex Hostel. Þar verður hægt að sjá hvernig Ásta Kristjánsdóttir ljósmyndari túlkar þær tilfinn- ingar sem fólk upplifir þegar það sætir brotum á réttindum sem lúta að kynferði, líkam- anum, kynhneigð og frjósemi. Í hlutverkum þolenda eru: Álfrún Örnólfsdóttir, Andrea Marín Andrésdóttir, Arnmundur Ernst Backman, Brynhildur Guðjónsdóttir, Daníel Ágúst Haraldsson, Erna Ómars- dóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Saga Garðarsdóttir og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir.  Mannréttindi Minn líkaMi, Mín réttindi er ný herferð aMneSty Uggvænleg þróun í mannréttindamálum Bakslag í baráttunni gegn kyn- og frjósemisréttindum er tilefni nýrrar herferðar Amnesty Inter- national. Bryndís Bjarnadóttir, herferðastjóri Amnesty International á Íslandi, segir þróunina í nágrannalöndunum uggvænlega. h ugtakið kyn- og frjósemis-réttindi vísar til þeirra mannréttinda sem viðkoma kynhneigð, kynferði og frjósemi. Kyn- og frjósemisréttindi tengjast jafnframt frelsi frá mismunun, þvingun og valdbeitingu og rétt- inum til að njóta bestu mögulegu kyn- og frjósemisheilsu. Nú hefur Amnesty International hrint af stað herferð til að minna okkur á að allir hafa rétt á frelsi til ákvarðana um líf sitt og líkama og að ríkisstjórnum allra landa beri að virða þessi rétt- indi. Þolendum kynferðisofbeldis víða refsað Víða eru þessi mannréttindi, sem við teljum sjálfsögð, brotin á degi hverjum. Bryndís Bjarnadóttir, her- ferðastjóri Amnesty International á Íslandi, nefnir nokkur dæmi af mörgum. „Mjög nærtækt dæmi, sem hefur verið mikið til umfjöll- unar upp á síðkastið, er Úganda. Þar er fólk sett á bak við lás og slá fyrir það eitt að elska einstak- ling af sama kyni. Annað dæmi er Níkaragva en þar er fortakslaust bann við fóstureyðingum jafnvel þótt líf konu eða stúlku sé í húfi eða þungun afleiðing nauðgunar eða sifjaspells. Fyrir nokkru var níu ára stúlku þar nauðgað og fékk svo ekki að gangast undir fóstureyðingu. Níu lögfræðingar, allt konur, tóku mál hennar upp en voru fyrir vikið allar settar í fangelsi. Mjög víða er þolendum kynferðisofbeldis refsað frekar en að njóta stuðnings, til að mynda í El Salvador, sem er í for- grunni í herferð okkar. Í Túnis og Alsír er löggjöfin til dæmis með þeim hætti að gerendur nauðgana geta sloppið undan dómi ef þeir gift- ast þolanda sem er undir 18 ára.“ Bakslag í baráttunni „Minn líkami, mín réttindi“ er al- þjóðleg herferð til tveggja ára. Bryndís segir herferðinni hafa verið ýtt úr vör vegna þess bakslags sem komið sé í baráttuna fyrir þessum mannréttindum. „Víða er þessara réttinda gætt og til að mynda eru frjósemisréttindin samþykkt af flest öllum ríkjum, en ekki réttindi sem lúta að kynferði og kynhneigð. Við sjáum líka hvað er að gerast í kringum okkur. Mikið af íhalds- sömum ríkisstjórnum eru að taka við sem reyna að útvatna þessi rétt- indi, svo þróunin er á margan hátt uggvænleg.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Bryndís Bjarnadóttir, herferðastjóri Íslandsdeildar Amnesty International. Leggur grunn að góðum degi Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477 Opi› virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 11-16 Dalsbraut 1, Akureyri • Sími: 558 1100 og Skeiði 1 Ísafirði • Sími 456 4566 betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is Betra Bak 20 Á R A A F M Æ L I 20% AFMÆLISAFSLÁTTUR AF C&J HEILSURÚMUM Dýna og AFMÆLIS Tegund Stærð Classic-botn TILBOÐ Platinum 120x200 99.900 kr. 79.920 kr. Platinum 140x200 114.900 kr. 91.920 kr. Platinum 160x200 127.900 kr. 99.990 kr. Platinum 180x200 134.900 kr. 107.920 kr. Gold 120x200 119.900 kr. 95.920 kr. Gold 140x200 139.900 kr. 111.920 kr. Gold 160x200 152.900 kr. 122.320 kr. Gold 180x200 164.900 kr. 131.920 kr. 6 fréttir Helgin 6.-8. júní 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.