Fréttatíminn - 06.06.2014, Qupperneq 17
saman síðar þegar aðstæður voru
breyttar urðum við kærustupar.
Stundum er sagt að maður eyði-
leggi vináttuna með því að hefja
ástarsamband en ég hef mjög góða
reynslu af því að ganga að eiga vin
minn,“ segir Kristín og hlær. „Við
vorum bæði komin til vits og ára
þegar við fórum að vera saman,
ég tæplega fertug og hann 35. Við
lögðum líka til nokkuð af börnum
og eigum eina litla stelpu saman.
Árni átti fyrir tvær dætur og ég
þrjú börn.“ Hún stendur upp og
sækir stækkaða ljósmynd sem
hangir uppi á vegg til að skýra fjöl-
skyldusamsetninguna. Hún bendir
á dætur Árna, Guðrúnu 12 ára og
Elísabetu 7 ára. Þarna eru líka
börnin tvö sem hún og fyrrverandi
eiginmaður hennar ættleiddu frá
Indlandi, Unnur 15 ára og Jakob
13 ára, og loks Tómas Viktor 7 ára
sem hún eignaðist með finnskum
kærasta. Saman eiga þau Heið-
björtu Önnu sem er tveggja og
hálfs árs. Alls eru þetta því sex
börn, 15 ára og yngri.
Ættleidd frá Indlandi
Ættleiðing Unnar og síðan Jakobs
kom til eftir að Kristín og fyrrver-
andi eiginmaður hennar fengu að
vita að þau gætu ekki eignast börn
saman. „Þá stóðum við frammi
fyrir nokkrum möguleikum. Í
staðinn fyrir að reyna tæknilegar
leiðir talaði mjög sterkt til okkar
að ættleiða. Á þessum tíma gekk
það mjög hratt og vel fyrir sig og
þau voru bæði bara um sex mán-
aða þegar við fórum til Kalkútta og
sóttum þau. Það var ógleymanlegt
og stórkostlegt að verða foreldri á
þennan hátt.“ Eftir að þau skildu
eignaðist hún Tómas Viktor.
Hann fer reglulega til pabba síns í
Finnlandi og bíður þessa dagana
spenntur eftir sumarheimsókn
sinni þangað: „Hann vaknar alla
morgna og spyr hvort hann sé að
fara til Finnlands í dag,“ segir hún
og brosir.
„Strákarnir mínir eru báðir
fatlaðir. Tómas Viktor greind-
ist snemma með einhverfu og
þroskahömlun. Jakob hefur alltaf
verið heyrnarskertur en það hefur
komið í ljós að hann glímir einnig
við töluverða þroskaskerðingu.
Hann hefur alltaf verið í almenna
menntakerfinu en byrjar í Kletta-
skóla í haust. Það er víst ekki
óalgengt að þroskaskerðing
komi almennilega í ljós á þessum
aldri þegar þroskamunur eykst.
Almennt er góð reynsla af því að
börn fari í sérskóla á þessum tíma
og ég er viss um að það á eftir að
ganga vel. Það er erfitt á margan
hátt að eiga fatlað barn en það er
líka stórkostlegt að finna fyrir og
kynnast aðstoðinni sem er til stað-
ar í kerfinu fyrir fötluð börn. Við
höfum mjög góða reynslu af því
og erum full þakklætis í garð fag-
fólksins í skólanum og í frístund-
um. Tómas Viktor er að æfa sund
með Öspinni sem er íþróttafélag
Hún er dóttir séra Tómasar Sveins-
sonar sem þjónaði sem prestur við
Háteigskirkju í 45 ár en hann lét af
störfum síðasta haust. „Pabbi var
vígður til prests í Neskaupstað þar
sem við bjuggum þegar ég fædd-
ist. Margar af mínum fyrstu minn-
ingum eru úr messum. Þegar ég
óx úr grasi hafði ég alltaf mikinn
áhuga á trúnni. Vissulega gekk
ég í gegn um tímabil þar sem ég
ætlaði að verða dýralæknir, eitt-
hvað allt annað en prestur. Ég sá
síðan að allar mínar helstu fyrir-
myndir komu úr þessari átt og
það lá beinast við fyrir mér að fara
beint í guðfræðideildina eftir stúd-
entspróf. Þetta var dásamlegur
tími því ég hafði svo mikla gleði og
yndi af faginu, biblíufræðunum og
kirkjusögunni, en ekki síður þessu
praktíska eins og að messa, hitta
fólk og predika. Ég segi alltaf að
presturinn predikar ekki bara í
predikunarstólnum á sunnudög-
um heldur í öllu sem hann gerir og
segir, og öllum samskiptum hans.“
Árni og Kristín kynntust fyrst í
guðfræðideildinni en voru þá bæði
í öðrum hjónaböndum. „Við höfum
vitað af hvort öðru í gegnum
tíðina. Þegar leiðir okkar lágu
Framhald á næstu opnu
Hjónin Kristín Þórunn Tómas-
dóttir og Árni Svanur Daníelsson
ásamt börnunum sem frá vinstri
eru Tómas Viktor 7 ára, Guðrún 12
ára, Unnur 15 ára,Elísabet 7 ára.
Ættleiddu börnin eru 7 ára og loks
Heiðbjört Anna se er á þriðja ári.
Ljósmyndir/Hari
Miðasala er hafin á harpa.is og midi.is
4 dagar. 9 tónleikar. 13.–16. júní.
Listrænn stjórnandi
Víkingur Heiðar Ólafsson
A
3
/
H
G
M
MAHLER
CHAMBER ORCHESTRA
og Pekka Kuusisto 15. júní
4 dagar. 9 tónleikar. 13.–16. júní.
MISSIÐ EKKI AF EINNI FREMSTU HLJÓMSVEIT OKKAR TÍMA
„Þessum tónlistarmönnum hefur tekist að skapa
hina fullkomnu hljómsveit.”
Claudio Abbado
viðtal 17 Helgin 6.-8. júní 2014