Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.06.2014, Qupperneq 32

Fréttatíminn - 06.06.2014, Qupperneq 32
É g og sonur minn höfum safnað þessu í 20 ár,“ segir Guttormur Þor-finnsson, 49 ára húsa- smiður, sem safnar legókubbum. Hann segist hreinlega ekki vita hversu mikið af legókubbum hann á en hluti af þeim er á sýningu sem stendur yfir á 2. hæð í Smáralind. Guttormur segist ekki geta skýrt þennan mikla áhuga sinn á legói. „Ég var bara legópolli. Sumir strákar voru legópollar og eru svo húsasmiðir í dag,“ segir hann kómískur. Þegar sonur Guttorms, Þor- finnur Guttormsson, var lítill drengur byrjaði hann að kaupa legó handa honum. Guttormi fannst legókubbarnir ekki síður heillandi en syninum og ákvað að fara að safna þeim. „Þegar strák- urinn minn var 12 ára spurði ég hann hvaða legó hann vildi í jólagjöf en hann svaraði: „Pabbi, eigum við ekki nóg legó?“ Ég fór þá líka að safna Duplo-kubbum,“ segir Guttormur. Þetta er fjórða sýningin sem Guttormur heldur á kubbunum sínum og sú stærsta til þessa. „Við vorum í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrir tveimur árum. Þá var ekki nógu gott aðgengi fyrir fatlaða og ekki nógu mörg bílastæði en það er allt til staðar hér í Smáralindinni.“ Þó meirihlutinn á sýningunni sé í eigu Guttorms eru þar líka kubbar í eigu annarra feðga sem safna Star Wars-legói, þeir Eyvindur Eggertsson og Hjálmar Alexander Bergrósarson. Óhætt er að segja að öll le- góflóran sé á sýningunni, þar eru stærri kubbar ætlaðir yngri börnum og afar smáir sem krefjast mikillar vandvirkni – þarna eru lestir, frumskógur og kastalar, og þó legóið sé í eigu karlmanna er enginn skortur á prinsessum í bleikum kastala. „Við erum búnir að kaupa allt stelpulegó sem hefur verið gefið út. Við feðgarnir erum miklir femínistar,“ segir Gutt- ormur. Þrátt fyrir að eiga nóg legó til að fylla fjöldann allan af 30 lítra geymslukössum langar Guttorm alltaf í meira legó. „Ég vil enn í dag bara fá legó í jólagjöf. Ég á nóg af bindum og kokteilhristurum. Það er alltaf eitthvað sem vantar í safnið,“ segir hann en er þó ekki búinn að setja saman óskalistann fyrir næstu jól. Fyrir tveimur árum var Gutt- ormur atvinnulaus og flutti til Noregs þar sem hann fékk vinnu við hæfi sem húsasmiður. Hann er því aðeins hér á landi í sumarfríinu sínu, og til að sýna kubbana. Hann fer síðan aftur til Noregs eftir að sýningunni lýkur þann 15. júní. „Ég er bara hérna að monta mig af legóinu mínu.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Guttormur Þorfinnsson húsasmiður fékk ungur áhuga á að byggja úr legókubbum og hefur hann safnað legói í 20 ár. Þegar sonur hans var 12 ára taldi hann að legósafnið væri orðið nógu stórt en Guttormur lét það ekki stoppa sig og enn þann dag í dag vill hann bara fá legó í jólagjöf. Saman eiga þeir feðgar gríðarlegt magn af legókubbum, meðal annars allt stelpulegó sem gefið hefur verið út. Hefur safnað legó- kubbum í 20 ár Guttormur Þorfinnsson hefur ekki tölu á öllu legóinu sem hann á enda hefur hann safnað því í 20 ár. Ljósmyndir/Hari Þeir feðgar hafa jafnan áhuga á legói sem er markaðssett fyrir stelpur og eiga þeir allar gerðir af stelpulegói sem gefið hefur verið út. BENOÎT frá Ethnicraft 3ja sæta sófi 176.000 kr. 2ja sæta sófi 135.200 kr. Stóll 92.000 kr. Einnig til í grænu Einnig til í rauðu CHARLEEN frá Habitat 3ja sæta sófi 196.000 kr. Stóll 99.200 kr. BREYTON frá Habitat 3ja sæta sófi 156.000 kr. 20% afsláttur sófadagar af öllum sófum í júní TEkk COmpANY Og HABiTAT kAupTúN 3 Sími 564 4400 vEfvERSLuN á www.TEkk.iS Opið mánudaga til laugardaga kl. 11-18 og sunnudaga kl. 13-18 Ath. Öll birt verð eru afsláttarverð ESpOO svefnsófi 284cm br. Litir: grátt, brúnt 196.000 kr. 32 viðtal Helgin 6.-8. júní 2014
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.