Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.06.2014, Side 47

Fréttatíminn - 06.06.2014, Side 47
grænn lífsstíll 47Helgin 6.-8. júní 2014 N ýjasta endurvinnslu-stöð SORPU á höfuð-borgarsvæðinu var opnuð fyrir þremur árum við Breiðhellu í Hafnarfirði. Stöðin byggir á ann- arri hönnun en eldri endurvinnslu- stöðvar SORPU sem gerir hana ennþá notendavænni og öruggari en aðrar stöðvar. Hönnun stöðvarinnar er þannig að hún er á tveimur hæðum og aka viðskiptavinirnir inn á efra planið til að losa úrgang en þjónustuaðili sem sér um að tæma gáma og koma með nýja er á neðra plani. Er þetta gert til að lágmarka hættu á árekstrum og óhöppum milli viðskiptavina og þjónustuaðila. Að sögn Guðmundar Tryggva Ólafs- sonar rekstrarstjóra er stöðin við Breiðhellu rúmbetri en aðrar stöðvar og með þremur akreinum um svæðið og því er auðvelt að færa sig á milli gáma sem taka við Moltublanda SORPU sem inniheldur moltu og mómold er nú kominn í sölu á allar endur- vinnslustöðvar nema í Mosfellsbæ, vegna plássleysis og verður hún í sölu á meðan birgðir endast. Á endurvinnslustöðvunum sjá viðskiptavinirnir sjálfir um að moka moltunni á kerrur eða í ílát, en þeir sem eru stórtækari og vilja láta moka á kerrurnar fyrir sig geta farið í Álfsnes þar sem starfsmenn SORPU hafa tæki til þess. Moltan sem framleidd er í Álfsnesi er blanda af grasi og kurluðum trjá- greinum. Við vinnsluna er þessum tveim hráefnum blandað saman í ákveðnum hlutföllum og efnið lagt í múga. Múgunum er snúið reglulega til að flýta fyrir niðurbroti og tekur sú vinnsla um 10 vikur. Að þeim tíma liðnum er efnið látið standa fram á næsta vor en þá er það sigtað og búnar til úr því tvær afurðir, annars vegar Molta og hins vegar Moltu- blandan sem seld er á endurvinnslu- stöðvunum.  Nýjasta eNdurviNNslustöð sOrPu Rúmgóð og notenda- væn stöð við Breið- hellu í Hafnarfirði Moltan á endur- vinnslustöðvunum Moltan er komin á endurvinnslustöðvarnar og verður til sölu þar í sumar á meðan birgðir endast. Endurvinnslustöðin í Breiðhellu er mjög rúmgóð og er auðvelt að komast þar um á annatímum. Stöðin er á tveimur hæðum og athafna viðskiptavinir sig á efri hæðinni en þjónustuaðilar stöðvarinnar á þeirri neðri. Þetta dregur úr hugsanlegri árekstrar- hættu. Endurvinnslustöðin við Breiðhellu í Hafnarfirði er nýjasta og stærsta endurvinnslu- stöð SORPU mismunandi efnum. Með þessum hæðamismun standa gámarnir lægra gagnvart viðskiptavinum og því verður aðgengi þeirra betra og fólk þarf ekki að lyfta eins mikið og áður. Stöðin við Breiðhellu er opin lengur því hún opnar klukkan 8 á virkum dögum, á meðan aðrar stöðvar opna klukkan 12.30. Allar stöðvarnar eru opnar til klukkan 19.30 á virkum dögum og um helgar eru þær opnar frá klukkan 12-18.30. Um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á nýja aðstöðu til að taka á móti skilagjaldsskyldum umbúðum á stöðinni við Breið- hellu. Guðmundur segir mikla framför og þjónustubót felast í að koma upp dósa- og glermóttöku í rúmgóðu húsnæði. „Ég sé fyrir mér að með stöðinni við Breið- hellu hafi orðið til ákveðin fyrir- mynd og í framtíðinni muni fleiri endurvinnslustöðvar breytast og verða á tveimur hæðum. Næsta skrefið er að stækka og endur- skipuleggja stöðina í Ánanaust- um en það mun gerast á næstu misserum. Þar er einnig verið að byggja upp móttöku fyrir skila- gjaldsskyldar umbúðir,“ segir Guðmundur. KYNNING

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.