Fréttatíminn - 06.06.2014, Side 50
50 fjölskyldan Helgin 6.-8 júní 2014
Fjölskyldusamvera í sumarfríinu
S umarfrí er fram undan. Einmitt tími mikillar fjölskyldusamveru og nú nota ég tæki-færið fyrir ögn af heilræðum. Fríin verða meðal þeirra minninga sem fjölskyldur munu eiga saman rétt eins og stórhátíðir því þar víkur hið daglega mynstur sem
flest börn muna lítið eftir.
Þá er komið að kveðjustund, elsku vinkonur mínar og vinir í pistlaveröldinni. Reyndar
bara í bili því að það er engin leið að hætta að syngja þegar einhver hlustar. Ég held áfram
í haust því þið hafið verið mér einstök hvatning með hreint frábærum viðtökum sem mig
hefði ekki órað fyrir þegar ég afréð að ávarpa þjóð mína í rituðu máli heilan vetur. Bæði
rafrænar viðtökur í formi „læka og sjerana“ eða „líka og deilana“ í þúsunda vís og svo
með póstum, fasbókarskilaboðum og svo spjalli á kaffihúsum, verslunarmiðstöðvum og
almennt svona á almannafæri.
Oftast höfum við, þ.e. pistlahöfundur og lesendur, verið á sama máli og keppst við
að dýpka umræðuna og hvetja okkur öll til dáða. Stöku sinnum tökum við snarpa
rökræðu með ólíkum skoðunum en af mikilli virðingu og vilja til að skapa betri heim
fyrir börn. Öll ykkar dásemdarviðbrögð hafa sannfært mig um mikilvægi þess að
halda ærlega á lofti öllu því sem varðar börn og ungmenni. Bæði á einkaheimilum, í
faðmi fjölbreyttra barnafjölskyldna og að heiman í leik- og grunnskólum og því kerfi
sem samfélagið hefur skapað um útvistun á uppeldi og menntun. Þörfin er algjör og
Fréttatíminn gerði vel að byrja með fjölskyldusíðu í hverju blaði. Takk, takk og enn
og aftur takk.
Sumarfrí er fram undan. Einmitt tími mikillar fjölskyldusamveru og nú nota ég
tækifærið fyrir ögn af heilræðum. Fríin verða meðal þeirra minninga sem fjölskyldur
munu eiga saman rétt eins og stórhátíðir því þar víkur hið daglega mynstur sem flest
börn muna lítið eftir. Á næstu vikum munuð þið skapa þessar minningar og jafnvel
leggja grunninn að framtíðarfríum barna ykkar með barnabörnin ófæddu. Við erum
nefnilega fyrirmyndir barna okkar.
Nú þarf að skipuleggja fríið á barnvænan hátt. Sumir munu aka um landið og munið
þá að taka með nesti og stoppa oft á leiðinni. Áning við lítinn læk með fótabaði slær
alltaf í gegn, bara rétt að beygja inn á fáfarinn veg eða renna út í kantinn. Nestisstopp
á útsýnisstað eða leggjast í grasið og lesa í skýin er líka ógleymanlegra en sjoppuheim-
sókn. Slökkvið líka á símunum og syngið saman í bílnum eða farið í spurningaleik. Allir
með hvað svo sem unglingar mótmæla. Þeim mun hallærislegra, þeim mun betra. Kvöld-
grillið þarf líka að vera barnvænt. Bjórinn er óþarfur nema í algjöru hófi meðan börn eru
vakandi enda eru foreldrar fagfólk sem þarf að vera allsgáð í uppeldinu. Frelsi kvöldsins
er líka dásamlegt þar sem börn vaka frameftir á íslensku kvöldi en verið vakandi fyrir
þreytumerkjum eins og æsingi og of miklum látum sem þreytt börn nota til að halda sér
uppi. Þá er gott að einhver fullorðinn taki litla stund í að koma þreyttum í hátt og svefn.
Flugferðir krefjast líka barnvænnar skipulagningar. Flug frá Íslandi krefst þess oft að
þreyttir foreldrar þurfi að rífa börn upp um miðja nótt sem er býsna erfitt. Fullorðnir verða
þá að axla ábyrgðina á jákvæðum samskiptum og hjálpa barni og börnum að ná gleði sinni.
Hafið vel valin viðfangsefni með í för til að mæta athafnaþörf ungviðisins og hreyfing og
smáhlaup er alls ekki bannað á flugstöðvum – ef friðarþörf annarra ferðalanga er virt. Börn
þurfa margar og smáar hressingar yfir daginn og þess vegna er best að vera með hæfilega
aukabita með sér. Svo finna þau ekki fyrir þorsta þótt svo að líkaminn sé í vökvaþörf eins
og í löngu flugi og í miklum hita. Einkennin birtast bara í pirringi og þess vegna þarf að
hafa nóg vatn og aðra svaladrykki tiltæka. Í matartímum minni ég á að áfengisneysla og
börn eiga heldur ekki samleið í útlöndum nema í algjöru hófi.
Stillið svo endilega verslunarferðum í hóf eða skiptið liði þannig að hluti fullorðinna
sinni börnum í skemmtiverkefnum meðan aðrir versla. Takið lengri ferðir í áföngum
með góðri hvíld á milli og oft má finna græn svæði og leikvelli sem endurnýja lífsgleðina.
Njótið sumarsins, elsku lesendur og ræktum nú okkur sjálf í gróanda sumarsins. Við;
börnin og ungmennin og fullorðnir og aldraðir og einfaldlega stórfjölskyldan sjálf í öllum
sínum dásamlega fjölbreytileika.
Nestisstopp á útsýnisstað eða
leggjast í grasið og lesa í skýin
er líka ógleymanlegra en sjoppu-
heimsókn. Slökkvið líka á sím-
unum og syngið saman í bílnum
eða farið í spurningaleik.
Frí fyrir alla
Margrét
Pála
Ólafsdóttir
ritstjórn@
frettatiminn.is
heimur barna
Hamarshöfði 4 - sími 587-1960 - www.mosaik.is
Vönduð vinna
Stofnað 1952
Mikið úrval af
fylgihlutum
Steinsmiðjan Mosaik
Legsteinar
2 0 1 4
00000
w w w . v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
36 vötn
6.900 kr
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
2 0 1 4
Nýr opnunartími
Stilling hf. | Sími 520 8000 | stilling.is/vorur/ferdavorur | stilling@stilling.is
Frá og með 1. júní
verða verslanir
okkar opnar frá
kl. 08.00-17.30
á virkum dögum.
Opnunar
tími í Ske
ifunni
á laugard
ögum
frá kl. 10
.00-14.0
0
fonix.is • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • S. 552 4420
Kæliskápadagar út apríl
20% afsláttur