Fréttatíminn - 06.06.2014, Blaðsíða 68
Í takt við tÍmann RóbeRt aRon HosteRt
Fer stundum í sjósund með mömmu
Róbert Aron Hostert er 23 ára handboltamaður sem hefur orðið Íslandsmeistari tvö síðustu
tímabil, fyrst með Fram og nú ÍBV. Hann er á leið í atvinnumennsku í Danmörku. Róbert
gengur í litríkum sokkum, horfir á Game of Thrones og hreinsar líkamann að indjánasið.
Staðalbúnaður
Ég held að ég sé mjög afslappaður í fata-
vali en ég geri þær kröfur að fötin séu
þægileg. Ég er eðlilega mikið í íþróttaföt-
um þar sem ég æfi oft tvisvar á dag. Það
má eiginlega segja að það fari eftir veðri
hvernig ég klæði mig. Ég er mjög hrifinn
af munstruðum, litríkum sokkum og flott-
um skyrtum. Það er mjög misjafnt hvar
ég kaupi fötin mín en oftast er það frá
Urban Outfitters, Sautján eða KronKron.
Ég er mikill Converse-maður og fer eigin-
lega ekki út með ruslið án þess að vera í
Converse-skóm. Eini aukahluturinn minn
er teygja í hárið enda myndi ég bara týna
öllu glingri.
Hugbúnaður
Ég æfi á hverjum degi og er duglegur
að fara í potta og ísböð eftir það. Ég fer
stundum í sjósund, en það er oftast yfir
sumartímann og þá með mömmu sem er
sjósundsjaxl. Einnig finnst mér frábært
að fara í svett þar sem ég hírist inni í
tjaldi í 3-4 klukkutíma í steikjandi hita
og svitna rækilega. Þetta er hreinsun á
indjánavísu og mæli ég eindregið með
því. Ég hef eytt mjög góðum tíma í vetur í
bíómyndir og sjónvarpsþætti. Uppáhalds
þættirnir þessa stundina eru Game of
Thrones, The Killing og Breaking Bad.
Ég er ekki mikið fyrir djammið en er þó
ennþá að jafna mig eftir mikinn fögnuð
Íslandsmeistaratitilsins. Nú er ég fluttur
aftur til Reykjavíkur frá Vestmannaeyjum
og er á leiðinni til Danmerkur í atvinnu-
mennsku í handbolta núna í júlí.
Vélbúnaður
Ég er ekki sama tæknitröllið utan vallar-
ins og inni á honum. Ég er ekki mikill Fa-
cebook-maður, en kíki þó reglulega á það
apparat. Ég á síma eins og flestir aðrir en
ekkert af dýrari gerðinni. Var með Nokia
33-10 á þessu ári þangað til pabbi sagði
stopp og gaf mér einhvern nýlegri sem
ég veit varla hvað heitir. Ég er hinsvegar
mikið í Playstation með vinum þegar
tími gefst til og við spilum eiginlega bara
FIFA. Það hefur oft kostað blóð, svita og
tár í vinahópnum, enda tökum við þessu
öllu saman mjög alvarlega. Þeir sem taka
þessu ekki alvarlega fá ekkert að spila
með!
Aukabúnaður
Ég er mikill matmaður og góður matur
skiptir mig miklu máli. Uppáhalds matur-
inn minn er naut, humar og sushi. Ég
hata líka ekkert góðan hamborgara. Einsi
kaldi í Vestmannaeyjum er í uppáhaldi
hjá mér. Hann er alltaf með góðan mat og
mæli ég eindregið með þeim toppstað.
En svo fær Culiacan mitt atkvæði hérna
í bænum þessa stundina enda frábær og
hollur skyndibiti. Þessi fáu skipti sem
ég fer á bar þá panta ég mér oftast
White Russian. Ég hef ekki feng-
ið mikinn frítíma í að ferðast
í gegnum tíðina vegna
landsliðsverkefna í
yngri flokkum. Ég
hef þó farið á ýmsa
staði með þeim.
Sem eru oftast
skrítnir staðir
eins og einhver-
staðar í Serbíu eða
Slóvakíu. En það
sem stendur upp
úr af öllum þeim
stöðum sem ég hef
komið á eru Vest-
mannaeyjar og að
sjálfsögðu er það
minn uppáhalds-
staður!
appafenguR
Frozen Story book Deluxe
Disney-myndin Frozen hefur slegið ræki-
lega í gegn og margir foreldrar eflaust orðnir
þreyttir á að börnin krefjist þess að horfa á
myndina helst daglega. Fyrir litla aðdáendur
er nú komið app þar sem Frozen er orðin að
sögubók sem er lesin upphátt á ensku, og er
hvert orð í bókinni feitletrað á meðan það er
lesið til að auðvelda börnum að fylgjast með.
Appið er ætlað fyrir börn frá sex ára aldri
og er hægt að snúa iPhone-inum eða iPad-
inum í sögunni og þá er skipt um sjónarhorn
– sagan er ýmist sögð frá sjónarhorni Önnu
eða Elsu.
Auk sögunnar er hægt að fara í ýmsa leiki í
appinu, teikna eða púsla saman klakabrotum.
Einnig er hægt að horfa á stutt brot úr mynd-
inni og meira að segja taka upp sína eigin
rödd ef börnin vilja endursegja söguna á sinn
eigin hátt.
Það er hægt að ábyrgjast að aðdáendur Fro-
zen verða ekki fyrir vonbrigðum með að kynn-
ast Elsu og Önnu á þennan nýstárlega hátt.
Appið kostar tæpa 4 dollara en það er ekki
hátt verð fyrir allt það sem appið býður upp á.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
68 dægurmál Helgin 6.-8. júní 2014