Fréttatíminn - 06.06.2014, Side 70
Hjólreiðar járn-afar í WOW CyClOtHOn
Maður verður gamall ef maður hættir að leika sér
WOW Cyclothon er hjólreiða-
keppni þar sem hjólað er í
kringum landið og safnað
áheitum. Þetta árið er það
söfnun fyrir bæklunarskurð-
deild Landspítalans og verður
hjólað í júní í miðnætursól og
Jónsmessublíðu.
Einn hópurinn sem hefur skráð
sig til leiks kallar sig Járn-afana, en
það eru 4 félagar sem hafa það sam-
eiginlegt fyrir utan að hafa keppt í
Ironman (Járnmaður) að vera afar.
Í Járnmanni synda keppendur 3,8
km, hjóla 180 km og hlaupa að lok-
um 42,2 km. Samtals hafa afarnir
lokið 10 svona keppnum.
Þetta eru þeir Gísli Ásgeirsson,
Trausti Valdimarsson, Pétur Helga-
son og Sigurður H. Sigurðarson og
er meðalaldurinn 58 ár. „Við lítum
á þetta sem góða leið til þess að
halda okkur í skikkanlegu formi og
minnum fólk á að það eigi ekki að
hætta að leika sér þegar það verður
gamalt, það verður gamalt ef það
hættir að leika sér“ segir Gísli Járn-
afi. Þeir vilja hvetja afa og ömmur
landsins að gefa sér tíma til leikja,
ýmist með börnum og barnabörnum
eða góðum vinum. Þetta eigi fólk að
gera meðan það getur.
Járn-afar eru þess fullvissir að
þetta fagnaðarerindi renni ofan í
fólk eins og heitar lummur og veðja
á að þeir verði vinsælasti hópurinn
þetta árið, „við erum allir glaðsinna
og krúttlegir með afbrigðum“.
Aðspurðir segja þeir að konurnar
þeirra séu afar ánægðar með þetta,
og vonandi verður þetta hvatning
til þess að á næsta ári skrái sig ein-
hverjar Járn-ömmur til leiks. Helsti
styrktaraðili þeirra í keppninni er
hjólreiðaverslunin TRI á Suður-
landsbrautinni og þeim til halds og
trausts verða bílstjórarnir Stefán
Smári Skúlason og Freyr Sigurðar-
son.
Við mælum með því að fólk um
allt land hafi augun opin dagana 24.-
27. júní þegar afarnir verða á ferð-
inni um landið. -hf
Gabríel Þór,
Benjamín og
Katrín Rós af-
greiða íslenska
kjötsúpu úr
vagni í miðbæ
Reykjavíkur.
Ljósmynd/Hari
Systkini selja íslenska
kjötsúpu úti á götu
Ungum bræðrum úr Garðabæ fannst vanta meiri fjölbreytileika í götumatarmenningu
Reykjavíkur og ákváðu að taka málin í sínar eigin hendur. Eru búnir að fullkomna kjötsúpu-
uppskrift á síðustu sex mánuðum og opna vagninn um helgina.
Okkur
fannst
vanta eitt-
hvað nýtt í
götumatar-
menningu
Reykjavík-
urborgar.
U ngir bræður úr Garðabænum fengu hugmynd og ákváðu að framkvæma hana. Þetta eru þeir
Gabríel Þór og Benjamín Gíslasynir, 24
og 21 árs gamlir. Þeir fengu þá hugmynd
að opna veitingavagn sem þeir kjósa að
kalla því lítilláta nafni Súpuvagninn – The
Essence of Vikings.
„Okkur fannst vanta eitthvað nýtt í
götumatarmenningu Reykjavíkurborgar,
og langaði að opna vagn með sérstöðu, og
bjóða upp á bragðgóða, holla, orkuríka,
saðsama og fljótlega gæða máltíð á lágu
verði. Það er smá sérstaða í þessu, hvað
er íslenskt, hvað er gott og hvað er auðvelt
að borða standandi? – og um leið var svar-
ið einfalt, íslensk kjötsúpa,“ segir annar
bræðranna, eldhuginn Gabríel Þór.
Þeir fóru af stað, redduðu sér vagni og
byrjuðu að elda. Mikill metnaður hefur
farið í eldamennsku súpunnar og prófaði
Benjamín, yngri bróðirinn sem er yfir-
kokkurinn, að elda súpuna um 100 sinn-
um til þess að fullkomna uppskriftina „Það
finnst öllum kjötsúpan best hjá mömmu
eða ömmu og það er vegna þess að það er
búið að elda hana svo oft í gegnum tíðina
og breyta og bæta þannig að uppskriftin er
fullkomin og okkur langaði að fara þá leið
með okkar súpu. Þá notum við eingöngu
ferska matvöru í uppskriftina, hvort sem
það er kjöt eða grænmeti, þannig vitum
við að við erum að bjóða upp á gæðafæðu.“
Þegar þeim fannst súpan vera orðin full-
komin þá fengu þeir nokkra af færustu
matreiðslumönnum landsins til þess að
smakka og voru þeir allir mjög ánægðir
og gáfu þeir henni bestu einkunn. „Við
erum mjög stoltir af því,“ segir Benjamín,
en hann hefur viljað eiga sinn eigin veit-
ingastað síðan hann var fimm ára gutti.
Þeir ætla báðir að vinna í vagninum
ásamt 17 ára systur sinni, Katrínu Rósu,
og eflaust fleirum því vinnudagurinn er
langur. „Við erum búin að hugsa þetta í
um tvö ár en fórum svo á fullt að undirbúa
þetta fyrir svona sex mánuðum. Þetta er
svona lítið fjölskyldufyrirtæki og gaman
að geta gert þetta saman.“
Súpuvagninn verður opinn alla daga frá
klukkan 11 - 21, staðsettur við Mæðragarð
í nágrenni Menntaskólans í Reykjavík og
um helgar verður hann líka opinn á nótt-
unni frá klukkan 22 - 05 og verður þá á
Lækjartorgi. „Þetta er hin fullkomna mál-
tíð fyrir fólk sem er búið að vera úti á lífinu,
og við erum vissir um að erlendum ferða-
mönnum langi í íslenska kraftmikla súpu
á ferðum sínum um borgina.“
„Við ætlum að hafa opnun á laugardag-
inn klukkan 12 og verðum með blöðrur
fyrir börnin og mikið húllumhæ í tilefni
af því. Súpan verður á opnunartilboði í
hádeginu, aðeins 500 krónur, en annars
verður skammturinn á 1000 krónur, sem er
mjög gott verð því skammtarnir eru stórir.
Á sama tíma er verið að halda opnunar-
skemmtun með lifandi tónlist, og markaðs-
stemningu á Bernhöftstorfunni fyrir neð-
an Lækjarbrekku um kvöldið. Veðurspáin
er frábær svo við vonumst til þess að sjá
sem flesta,“ segir Gabríel og er greinilega
orðinn spenntur fyrir helginni.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
MatUr SúpUvagninn tHe eSSenCe Of vikingS OpnaðUr í MiðbænUM
Á laugardaginn fer fram árlegt „Tweed
Ride“ í Reykjavík. Árið 2009 tóku reið-
hjóláhugamenn í London sig saman og
stóðu fyrir hóphjólreiðum í borginni.
Þessi atburður var þó ekki bara að
koma saman og hjóla, heldur klæddu
þáttakendur sig í klassísk föt og draktir
í anda breskra hefðamanna og -kvenna.
Hjólin sem hjólað var á voru á sama hátt
klassísk og virðuleg borgarhjól. Þessi
hugmynd barst svo til Reykjavíkur árið
2012 og var þá haldið „Tweed Ride“ í
Reykjavík og voru um 70 hjólreiðamenn,
karlar og konur, skráðir til leiks. Enn fleiri
tóku svo þátt í fyrra og í ár er skráning
enn í gangi og lítur allt út fyrir að
hjólreiðatúrinn verði fjölmennur.
Hjólaður er léttur hringur um
Reykjavík þar sem farið verður frá
Hallgrímskirkju klukkan 13 með við-
komu á Satt Restaurant þar sem fólki
verður boðið upp á létta hressingu
og endað á KEX hostel klukkan 16,
þar sem boðið verður upp á „High
Tea“ ásamt verðlaunaafhendingu.
Veitt verða verðlaun fyrir fallegasta
hjólið, best klædda herrann og best
klæddu dömuna. Verðlaunin verða frá
Herrafataverzlun Kormáks og Skjaldar,
versluninni Geysi og Reiðhjólaverslun-
inni Berlín, svo það er til mikils að
vinna. Skráning fer fram á slóðinni
www.tweedridereykjavik.weebly.com
og enn er hægt að skrá sig.
Virðulegur hjólreiðatúr
– fyrst og fre
mst
– fyrst og fre
mst
ódýr!
47%
afsláttur
FRÁBÆR KAU
P
Blandaðu í ka
ssann,
þínum uppáha
lds tegundum
24 stk. í kas
sa!
Hámark 4 ka
ssar á mann
meðan birgðir
endast!
Hámark
4 kassar
á mann meða
n
birgðir endas
t!
998kr.kassinn
Verð áður 1896 kr.kassinn
Egils Appelsín, Mix, Kristall,
Mountain Dew og 7Up,
24 x 33 cl dósir
70 dægurmál Helgin 6.-8. júní 2014