Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.03.2014, Blaðsíða 94

Fréttatíminn - 21.03.2014, Blaðsíða 94
fermingar Helgin 21.-23. mars 201422 lÍs en ku ALPARNIR s Trekking Kuldaþol: -20˚C þyngd: 1,65 kg. KÚLUTJALD 2-3ja manna tjald 13.995 kr. 11.196 kr. Micra Kuldaþol: -14˚C þyngd: 0,95-1,0 kg. Kaupvangi 6 • 700 Egilsstaðir • Sími 471 2525 Faxafen 8 • 108 Reykjavík • Sími 534 2727 16.995 kr. 13.596 kr. 24.995 kr. 19.996 kr. 22.995 kr. 18.396 kr. PINGUIN Activent 55 PINGUIN Explorer 75 Góð gæði Betra verð FERMINGARDAGAR SCOUT, 2500mm vatnsheld 24.995 kr. 19.996 kr. 16.995 kr. 13.596 kr. Aura Kitchen-to-go Ferðaeldhús 16.995 kr. 13.596 kr. SALOMON snjóbrettapakkar með 35% afslætti BLACK DRAGON snjóbrettapakkar með 30% afslætti Salomon snjóbrettapoki R ithöfundurinn Þorgrímur Þráins-son, hefur síðastliðin tvö skólaár ferðast um landið og haldið fyrir- lestra fyrir unglinga og er líklegt að fyrir- lestrarnir verði orðnir um 300 talsins í vor. Á fyrirlestrunum ræðir Þorgrímur um lífið og tilveruna og mikilvægi þess að láta drauma sína rætast, sama hverjir þeir eru. „Hvert og eitt okkar er einstakt og við getum alveg náð þeim árangri sem okkur langar til svo fremi sem við leggj- um okkur fram og kennum ekki öðrum um og lítum á okkur sem minni máttar af því eitthvað í okkar vinahópi eða um- hverfi segir að við séum ekki nógu klár eða flink,“ segir hann. Hagkaup og Bónus styrkja Þorgrím til að halda fyrirlestrana og líta þá það sem sitt framlag til samfélagsins. Viðbrögðin hafa verið góð og segir Þorgrímur það hljóta að vera góðs viti að unglingarnir sitji og hlusti í heilar 80 mínútur. „Á fyrir- lestrunum ræði ég um það sem kalla má almenna skynsemi. Við vitum þetta flest en þurfum stundum að láta minna okkur á það hvað við erum æðisleg. Samfélagið á það til að setja alla í sama hólfið. Ef ein- hver skarar fram úr byrja hinir að reyna að draga viðkomandi niður. Skilaboð mín til krakkanna eru að láta ekki neinn segja við sig að það sé eitthvað sem þau geti ekki.“ Rannsóknir sýna að aðeins þrjú pró- sent fólks í heiminum setji sér markmið og skrifi þau niður, hugsi um þau og vinni markvisst að þeim. „Krakkarnir eru langflestir mjög metnaðargjarnir en ég bendi þeim á þessa staðreynd. 97 prósent fólks treystir á guð og lukkuna og ég spyr krakkana hvort þau viti hvor hópurinn það er sem nær árangri í lífinu og segi þeim sögur af fólki sem hefur náð langt á sínu sviði.“ Þorgrímur segir velgengni ekki endi- lega tengjast greindarvísitölu, heldur snúast meira um væntingar fjölskyldu og foreldra, tækifæri og dugnað krakkanna. „Öllum líður okkur stundum þannig, al- veg sama á hvaða aldri við erum, að aðrir séu miklu klárari en við. Það er mikil- vægt að hafa í huga að greindarvísitala er eitt en dugnaður það sem skiptir meira máli. Óttinn við að gera mistök og vera gagnrýndur heldur aftur af flestum.“ Þorgrímur er þriggja barna faðir og á son á fermingaraldri. Hann segir mik- ið álag á þann aldurshóp. „Þau horfa á sjónvarpið, eru í símanum og tölvunni og margir að slást um athygli þeirra. Það er ekki auðvelt fyrir þau að halda einbeit- ingu heima, í íþróttum og í skólanum og því þurfa þau gríðarlega mikinn stuðning og aðhald,“ segir Þorgrímur en leggur þó áherslu á að hann sé ekki fullkominn faðir. „Með aðhaldi á ég til dæmis við að þau komist ekki upp með að gera það sem þau langar til fyrr en þau eru búin að gera það sem skiptir meira máli, eins og að læra heima, hreyfa sig og borða. Börnin þurfa miklu meiri stuðning en við gerum okkur grein fyrir. Væntingar foreldra til barna sinna skipta gríðarlega miklu máli og yfirleitt er það þannig að þau sem fá minni stuðning gengur ekki eins vel.“ Við erum öll einstök Þorgrímur Þráinsson rit- höfundur heldur fyrirlestra fyrir unglinga þar sem hann ræðir um mikilvægi þess að þau hafi trú á sjálfum sér. Skilaboð hans til krakkanna eru að þau láti ekki neinn segja sér að það sé eitthvað sem þau geti ekki. Mikið álag er á unglingum nú til dags og margir að keppast um athygli þeirra og því mikilvægt að foreldrar veiti þeim stuðning og aðhald. Þorgrímur Þráinsson hefur ferðast um landið og haldið fyrirlestra fyrir unglinga. Í fyrirlestrunum ræðir hann meðal annars um mikilvægi þess að setja sér markmið og vinna skipulega að þeim. Rannsóknir sýna að aðeins 3 prósent fólks skrifi markmið sín niður, hugsi um þau vinni markvisst að þeim. Ljósmynd/Hari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.