Fréttatíminn - 21.03.2014, Blaðsíða 92
fermingar Helgin 21.-23. mars 201420
Þ að er alltaf gaman að skoða ferm-ingartískuna ár hvert og óhætt að segja að úrvalið sé mjög fjölbreytt og
flott í ár. Það er gaman að sjá þennan aldur
og hvað það eru breyttir tímar. Þegar ég
fermdist voru allir einhvern veginn eins.
Mér finnst krakkar á fermingaraldri í dag
svo flottur hópur. Það þykir „kúl“ hjá þeim
að lifa heilbrigðu lífi, standa sig og hafa
gaman,“ segir Eva Dögg Sigurgeirsdóttir
hjá Tiska.is. Hún segir oft hafa verið minna
í boði fyrir strákana en stelpurnar en að í
ár sé margt skemmtilegt í verslunum fyrir
þá. „Hefðbundnu jakkafötin eru auðvitað
áberandi og oft er tekið vesti með. Svo eru
sumir sem sleppa jakkanum og taka bara
buxur, vesti og flotta skyrtu.“
Þverslaufur vinsælar
Þverslaufur njóta mikilla vinsælda í ár og
margir fá sér líka klút í vasann. „Þeir hjá
Herragarðinum sögðu mér til dæmis að
margir strákar tækju slaufu, klút og erma-
hnappa. Svo tíðkast líka að strákar fái sér
dökkar, fínar gallabuxur og fallega skyrtu
og jakka við sem auðvitað eykur notagildi
fatanna mikið,“ segir Eva.
Strigaskór við fermingarfötin
Það er af sem áður var og eru dökkir
strigaskór vinsælustu fermingarskórnir í ár
og segir Eva það mjög hagkvæmt því hægt
sé að nota þá dagsdaglega um sumarið.
„Fermingarnar eru heldur seint í ár svo
það er um að gera að vera í strigaskóm við
fermingarfötin.“
Dökkblá jakkaföt eru ekki síður vinsæl
en svört enda hefur dökkblátt verið vinsælt
á tískupöllunum að undanförnu. Eva segir
strákana hugrakka að velja sér ýmsa liti á
skyrturnar og ófeimna við að vera öðruvísi
sem sé mjög skemmtilegt.
Útvítt pils hjá stelp-
unum
Blúnda er vinsæl hjá
stelpunum og segir Eva
helstu breytinguna í ár
vera þá að sniðin á kjól-
um og pilsum eru núna
útvíð. „Í dag eru bæði
pils og kjólar í tísku
en margar velja pilsin
og þá er hægt að
nota þau við ólíka
jakka og toppa.
Helstu litirnir eru
auðvitað hvítur
sem er sígildur en
svo koma bleikur
og kóralbleikur
sterkir inn. Skater
pilsin svokölluðu
Með hækkandi
sól styttist í
fermingar og
því gaman að
kíkja á ferm-
ingartískuna
í ár. Eva Dögg
Sigurgeirs-
dóttir hjá
Tiska.is segir
tískuna í ár fela
í sér notagildi
því vinsælustu
skórnir hjá
strákunum
séu svartir
strigaskór og
hjá stelpunum
er vinsælt að
klæðast pilsi
og toppi við.
Fermingartískan í ár
er fjölbreytt og flott
Eva Dögg Sigur-
geirsdóttir hjá
Tiska.is.
Dagný Hulda
Erlendsdóttir
dagny@frettatiminn.is
Falleg fermingarföt frá Galleri
Sautján. Dökkir strigaskór eru
vinsælir hjá strákum í ár og
sniðug kaup því þá er hægt
að nota skóna áfram í sumar.
Blúndur eru vinsælar hjá
stelpum og á myndinni má sjá
bleikan blúndutopp og léttan,
fallegan jakka yfir. Fyrir-
sætur eru þau Sigurður Steinar
Gunnarsson og Guðrún Diljá
Agnarsdóttir.
Ljósmynd/Hari
Á myndinni
klæðist Sigurður
Steinar fötum
frá versluninni
Outfitters Nation
í Kringlunni. Þver-
slaufur, klútar
og ermahnappar
eru vinsælir hjá
strákunum í ár og
er hann með dopp-
ótta slaufu. Guð-
rún Diljá klæðist
fötum frá Topshop
í Kringlunni, litríku
pilsi og hvítum
blúndutopp. Pils
eru vinsæl fyrir
fermingarnar í ár
og hægt að nota
þau áfram við
ýmsa toppa og
jakka.
Ljósmynd/Hari