Fréttatíminn - 21.03.2014, Blaðsíða 32
Fitul’til og
pr—teinr’k . . .
… og passar með öllu
www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Þ
að opnast nýr heimur þegar
maður kynnist heimspekinni
og fer að skoða sjálfan sig upp
á nýtt. Ég er öðrum þræði að
athuga hvort heimspekin rími
við lífsreynslu mína“ segir Ellert B. Schram
sem er sestur aftur á skólabekk og nemur
heimspeki við Háskóla Íslands, en Ellert
fagnar 75 ára afmæli á þessu ári. „Þrátt
fyrir alla mína lífsreynslu og allt sem ég
hef starfað við, þá opnast nýjar víddir þegar
maður les kenningar heimspekinga og
vangaveltur þeirra um lífið og tilveruna“.
Ellert sker sig vissulega úr hópi nemenda
sem sitja að snæðingi í Hámu á Háskóla-
torgi. Til öryggis, svo ég myndi nú örugg-
lega finna hann, tilkynnti hann mér fyrir
fund okkar: „Ég er hávaxinn ungur maður.“
Og Ellert er sannarlega ungur í anda, fas
hans og líkamsburðir minna á mann á
miðjum aldri, og líklega gerir skólataskan
hann enn unglegri. Ellert segist aldrei hafa
Aftur á skólabekk eftir hálfrar aldar hlé
Ellert B. Schram, fyrrverandi alþingismaður, er sestur á skólabekk og nemur heimspeki við
Háskóla Íslands. Hann fagnar 75 ára afmæli á þessu ári og segir að þrátt fyrir mikla lífs-
reynslu hafi opnast nýr heimur þegar kann kynntist heimspekinni, en það fag valdi Ellert því
hann vill reyna að öðlast skilning á hegðun manneskjunnar. Ellert segir margt hafa breyst
frá því hann var áður við nám í HÍ en hann var formaður Stúdentaráðs fyrir 50 árum.
stefnt á að læra heimspeki í skóla enda
hafi hann alltaf litið á sjálfan sig sem
hálfgerðan heimspeking. „Ég hef verið
þátttakandi í stjórnmálum, sat á Alþingi
með hléum á tímabili sem spannaði
næstum 40 ár, var í 15 ár ritstjóri á stóru
og útbreiddu blaði – á DV á velmektar-
dögum þess blaðs. Ég hef skrifað mikið
í blöð og tímarit frá því ég man eftir mér,
hef verið virkur í félagsmálum, stjór-
nað mannmörgum samtökum meira og
minna alla mína æfi. Í öllum þessum
störfum hefur reynt á samvinnu, skoð-
anaskipti og að jafna ágreining manna á
milli. Ég hef með öðrum orðum upplifað
ágreining um völd og markmið í mínum
störfum og ekki síst þá viðloðandi
„reglu“ hvernig menn tala saman með
samanbitnar varir, hroka og illindum,
Ég er hávaxinn
ungur maður.
32 viðtal Helgin 21.-23. mars 2014