Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.03.2014, Page 32

Fréttatíminn - 21.03.2014, Page 32
Fitul’til og pr—teinr’k . . . … og passar með öllu www.ms.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Þ að opnast nýr heimur þegar maður kynnist heimspekinni og fer að skoða sjálfan sig upp á nýtt. Ég er öðrum þræði að athuga hvort heimspekin rími við lífsreynslu mína“ segir Ellert B. Schram sem er sestur aftur á skólabekk og nemur heimspeki við Háskóla Íslands, en Ellert fagnar 75 ára afmæli á þessu ári. „Þrátt fyrir alla mína lífsreynslu og allt sem ég hef starfað við, þá opnast nýjar víddir þegar maður les kenningar heimspekinga og vangaveltur þeirra um lífið og tilveruna“. Ellert sker sig vissulega úr hópi nemenda sem sitja að snæðingi í Hámu á Háskóla- torgi. Til öryggis, svo ég myndi nú örugg- lega finna hann, tilkynnti hann mér fyrir fund okkar: „Ég er hávaxinn ungur maður.“ Og Ellert er sannarlega ungur í anda, fas hans og líkamsburðir minna á mann á miðjum aldri, og líklega gerir skólataskan hann enn unglegri. Ellert segist aldrei hafa Aftur á skólabekk eftir hálfrar aldar hlé Ellert B. Schram, fyrrverandi alþingismaður, er sestur á skólabekk og nemur heimspeki við Háskóla Íslands. Hann fagnar 75 ára afmæli á þessu ári og segir að þrátt fyrir mikla lífs- reynslu hafi opnast nýr heimur þegar kann kynntist heimspekinni, en það fag valdi Ellert því hann vill reyna að öðlast skilning á hegðun manneskjunnar. Ellert segir margt hafa breyst frá því hann var áður við nám í HÍ en hann var formaður Stúdentaráðs fyrir 50 árum. stefnt á að læra heimspeki í skóla enda hafi hann alltaf litið á sjálfan sig sem hálfgerðan heimspeking. „Ég hef verið þátttakandi í stjórnmálum, sat á Alþingi með hléum á tímabili sem spannaði næstum 40 ár, var í 15 ár ritstjóri á stóru og útbreiddu blaði – á DV á velmektar- dögum þess blaðs. Ég hef skrifað mikið í blöð og tímarit frá því ég man eftir mér, hef verið virkur í félagsmálum, stjór- nað mannmörgum samtökum meira og minna alla mína æfi. Í öllum þessum störfum hefur reynt á samvinnu, skoð- anaskipti og að jafna ágreining manna á milli. Ég hef með öðrum orðum upplifað ágreining um völd og markmið í mínum störfum og ekki síst þá viðloðandi „reglu“ hvernig menn tala saman með samanbitnar varir, hroka og illindum, Ég er hávaxinn ungur maður. 32 viðtal Helgin 21.-23. mars 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.