Fréttatíminn - 21.03.2014, Blaðsíða 82
Mulligatawny súpa
• 8 dl kjúklingasoð
• 2 kjúklingabringur (má sleppa)
• 1 msk. ólífuolía
• 2 gulir laukar, fínt skornir
• 2 rauður chili, fínt skorinn (með fræjum)
• 3 hvítlauksrif
• 8 cm púrrulaukur, fínt skorinn
• 3 meðalstórar gulrætur, skornar í litla bita
• ½ rófa, skorin í litla bita
• 2 meðalstórar kartöflur, skornar í litla bita
• 2 tsk. karrýkrydd
• 2 epli, afhýdd og skorin í litla bita
• 1 msk. ferskt timjan (bara laufin), fínt skorið eða 1
tsk. þurrkað timjan
• 1 msk. hunang
• 400 gr kókósmjólk
• ferskt timjan til að skreyta með
• salt og pipar eftir smekk
Setjið kjúklingasoðið í pott og fáið suðuna upp.
Léttsteikið laukinn í öðrum súpupotti ásamt hvítlauk,
chili, salti, gulrótum, rófu og púrrulauk.
Bætið karrý út í, látið malla áfram á lágum hita í 3 til
5 mínútur, hrærið í á meðan.
Hellið soðinu varlega út í ásamt kartöflunum. Hrærið
vel og fáið suðuna upp. Lækkið hitann og látið malla í
30 mínútur.
Notið töfrasprota til að mauka hráefnið í pottinum
enn frekar.
Bætið kjúklingnum saman við ásamt
eplum, timjan og hunangi. Látið
malla áfram í 15 til 20 mínútur
eða þangað til kjúklingurinn er
fulleldaður.
Bætið kókosmjólk og jóg-
úrt út í og látið malla áfram
í nokkrar mínútur. Saltið
og piprið með nýmöluð-
um svörtum pipar. Hellið
í súpuskál og skreytið
með fersku kóríander
eða steinselju.
Súpan á að vera
sterk en um leið
sæt. Bætið hun-
a ng i , kókos -
m j ó l k e ð a
kókos ef þið
viljið fá sæt-
ara bragð.
Helgin 21.-23. mars 201410
Jansen +co diskarnir eru úr keramiki, fallegir og
fást í mörgum litum. Þeir henta fyrir kökur, konfekt,
ávexti eða hvað sem skipa skal í öndvegi. Fyrst
og síðast eru diskarnir þó góðir staðir fyrir vini og
vanda menn að safnast kringum, jafnt í salnum sem
stofunni heima.
laugavegi 47, opið mán.- fös. 10-18, lau. 11-17 www.kokka.is kokka@kokka.is
Standandi gleði!
Sterk og sæt súpa í
fermingarveisluna
Yesmine Olsson bauð upp á þessa dásamlegu
súpu í fermingarveislu stjúpsonar síns í fyrra. Í
súpunni er grænmeti og ferskt timjan og hægt er
að elda hana með eða án kjúklingakjöts.
KYNNING
Förðun: Kristjana Guðný
Rúnarsdóttir.
Módel: Andrea Þorvaldsdóttir.
Vörur sem ég notaði
á Andreu:
Miracle Air De Teint no 010
Hypnôse mono augnskuggi
no p102
Hypnôse Doll eyes 01
Blush subtil kinnalitur no3
Le crayon sourcils no020
Gloss in love no 144
Fermingarförðun Lancôme
Byrja á því að gefa húðinni góðan
raka, hydra zen er mjög gott, það er
til fyrir allar húðgerðir .
Augabrúnir: Léttar strokur með
blýantinum í sömu átt og hárin
Augun: Við byrjum á því að setja
augnskuggann á allt augnlokið,
hann er léttur og gefur fallegan
ljóma
Maskari: Hann má ekki klessa,
þess vegna er Hypnôse Doll eyes
fullkominn. Vinna hann með zikk
zakk hreyfingum bæði uppi og
niðri.
Farði: Léttur, púðurkenndur og
gefur fallegan ljóma, Miracle Air
De Teint . Hann er borinn á með
farðabusta, byrja í miðju og vinna
út til hliðar . (Vanda skal valið á
litnum svo við endum ekki í því að
mála alla bringuna líka )
Kinnar: Gott er að brosa til að
finna út hvar við eigum að setja
kinnalitinn en hann á að fara á
eplið og mildast út á við (betra
er að setja minna í einu og bæta
frekar við heldur en að vera að
reyna að draga úr )
Varir: Fallegur sumar gloss full-
komnar förðunina.
Þá er bara að fara að æfa sig fyrir
þennan frábæra dag.
Gangi ykkur vel.
Kristjana Guðný Rúnarsdóttir.
Nba Lancôme.