Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.02.1964, Blaðsíða 133
Flóra
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI
RITSTJÓRN:
Helgi Hallgrímsson Pósthólf 269, Akureyri.
Höröur Kristinsson Arnarhóli við Akureyri.
Steindór Steindórsson Pósthólf 66, Akureyri.
ÚTGEFANDI:
Bókaforlag Odds Björnssonar, Pósthólf 45, Akureyri.
Iíemur út einu sinni á ári, minnst 6 arkir árlega. Því er ætlað að birta
greinar og ritgerðir um grasafræði íslands, svo sem um flóru og gróður
þess eða einstakra landshluta, auk hvers kyns athugana á islenzkum
plöntum, gróðursögu, forngrasafræði, frjókornafræði o. fl., ennfremur
alls konar fróðleik, fornan og nýjan, um íslenzk grös, grasnytjar og
grasanöfn. Greinar um almenna grasafræði verða einnig teknar eftir því
sem rúm vinnst til.
Ritgerðir skulu að jafnaði skrifaðar á íslenzku, en undantekningar
verða þó gerðar ef sérstaklega stendur á. Öllum ritgerðum um frum-
rannsóknir skal fylgja stuttur útdráttur á einhverju heimsmálanna.
Heimildaskrá skal og fylgja öllum meiri háttar ritgerðum.
Höfundar bera ábyrgð á efni ritgerða sinna og fá eina próförk af
þeim til leiðréttingar. Ritlaun eru engin, en höfundar fá ókeypis 50
sérprent af greinum sínum. Áskriftarverð er kr. 120.
EFNISYFIRLIT
Formáli .......................................................... 3
Steindór Steindórsson: Um hálendisgróður Íslands. Fyrsti hluti .. 5
Guðbrandur Magnússon: Flóra Siglufjarðar......................... 51
Hörður Kristinsson: íslenzkar engjaskófir........................ 65
Helgi Hallgrímsson: De Rhodiolae................................. 77
Helgi Jónasson: Frá Vestfjörðum.................................. 83
Steindór Steindórsson: Flóra Grimseyjar.......................... 89
Smágreinar ...................................................... 95
Flórunýjungar .................................................. 104
Ritfregnir ..................................................... 109