Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Side 14

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Side 14
10 SVEITARSTJÓRNARMÁL og það, sem það þægi þar, yrði ekki endurkræft frá öðrum sveitarfélögum. Gátu þær breytingar ekki talizt óvið- ráðanlegar fjárbagslega vegna þess, að sveitarfélögin, sem endurgreiða áttu styrk framfærsluþurfa sinna til kaup- staða og kauptúna, voru hætt að greiða að miklu leyti, og skuldir vegna þessara mála hrúguðust upp. Kom þetta mjög greinilega í ljós við uppgerð þessara skulda í Kreppulánasjóði bæjar- og sveitarfélaga árin 1936 og 1937. Komu þá fram á hendur 82 hreppsfé- lögum framfærsluskuldir við önnur sveitarfélög, er námu samtals 880 þúsund krónum, og er þó alveg víst, að allar skuldir komu ekki fram, þvi þau sveitar- félög, er ekki fengu lán úr sjóðnum, munu hafa skuldað öðrum sveitarfélög- um allmildar upphæðir, eins og síðan hefur komið á daginn. En einmitt um það bil, er framfærslu- lögin nýju komu til fullra framkvæmda, hófst hér í landinu það atvinnuástand, sem öllum er kunnugt og landsmenn hafa stunið undir, einkum við sjávar- síðuna. Fiskmarkaðirnir þrengdust eða jafnvel lokuðust alveg. Vöruskiptaverzl- unin (clearing-viðskiptin) með öllum sínum stórkostlegu óþægindum komst í algleyming, aflinn brást víðast hvar á landinu og atvinnuleysið, sem þessu öllu var samfara, lagðist með meginþunga sínum á sveitarfélögin og kom þar fram í aukinni fátækraframfærslu. Ýmsir hafa viljað kenna framfærslulögunum nýju um hið aukna fátækraframfæri síðustu ára. Þeir telja, að lögin hafi gert mönn- um hægara um vik að komast á sveitina en áður hafi verið, og sérstaklega hafi þau ýtt undir, að fátælct fólk streymdi til kaupstaða og kauptúna. Að mjnum dómi er þetta ekki rétt nema að sáralitlu leyti. Það eru áreiðan- lega hinir miklu erfiðleikar atvinnu- og viðskiptalífsins, sem sök eiga mestrar aukningarinnar. Nákvæmlega hið sama hefur átt sér stað á öllum erfiðleikaár- um, sem yfir þjóð vora hafa gengið, að fólkið streymir þá að sjávarsíðunni, því þar er lielzt von um hetri afkomu, ef ár- gæzka verður til sjávarins. Þar raknar fljótar fram úr, ef aflinn glæðist. Hér er ekki tími til þess að rökstyðja þetta nánar. Hins vegar er það rétt, að fullkunnugt er, að nokkrar sveitar- stjórnir hafa reynzt svo vanþroska, að þær hafa misnotað frelsið, sem fékkst með framfærslulögunum, til þess bein- línis að ýta fátæku fólki af sér í kaup- staðina. Þetta gerðu þær að vísu áður en lögin komu, en vegila sveitfestitimans var það erfiðara þá. Með slíkri skammsýni hafa þær nú unnið það, að ný ákvæði hefur orðið að setja um sveitfesti þeirra, er áður hafa á sveit verið, ef þeir flytjast búferlum, og er illa farið, að til þess þurfi að koma, og engu um að kenna öðru en skamm- sýni nokkurra hreppsnefnda. Það liggur í hlutarins eðli, að þegar landið allt er gert að einu framfærslu- héraði, eins og gert var með framfærslu- lögunum 1936, verður þeirri hreytingu að fylgja það, að fátækraframfærslan sé á einhvern hátt jöfnuð, þannig að sum hæjar- eða hreppsfélög beri ekki allt of miklar byrðar, og fái þau því endur- greiðslu, svo útgjöld þeirra verða í hlut- falli við efni þeirra og ástæður eða af- komumöguleika. Fyrir því var það, að í framfærslulög- unum 1936 var svo ákveðið, að fram- færslan skyldi jöfnuð eftir sérstökum reglum, er ákveðnar voru í lögunum, og var ætlazt til, að ríkissjóður hæri þau útgjöld. Sú óheillabreyting komst þó inn í lögin, að þessi jöfnun var bundin við ákveðna fjárupphæð, — 250 þúsund krónur —, og reyndist hún þegar á fyrsta ári allt of lág. Með lögum 1937, um tekj- ur bæjar- og sveitarfélaga, fékkst loks ákveðið, að af tekjum ríkissjóðs skyklu renna 700 þúsund krónur til sérstaks sjóðs, er héli: „Jöfnunarsjóður bæjar- og sveitarfélaga," og skyldi hlutverk hans fyrst og fremst vera það að jafna til fulls fátækraframfærsluna I

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.