Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Side 24

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Side 24
20 SVEITARSTJÓRNARMÁL ur ráðherra hverju sinni, hvernig hjálp þeirri skuli hagað og hversu mikil hún skuli vera til hvers þess aðila, sem slíkrar hjálpar þarf. Samkvæmt þessu bráðahirgðaákvæði framfærslulaganna var varið af tekjum Jöfnunarsjóðsins á s. 1. ári kr. 88 549.00. Skiptist þessi»upphæð milli 11 sveitar- félaga, sem sum hver áttu í svo miklum fjárhagsörðugleikum, að krafizt hafði verið sölu á eignum þeirra og tekjum. Um helmingur þessa fjár fór þó til styrktar einu sveitarfélagi, Eskifjarðar- lireppi, sem nú um allmörg ár hefur not- ið heins styrks frá ríkissjóði, en hjálpin til hans var nú greidd af þessu fé, enda fór fram fullnaðaruppgerð á öllum við- skiptum og skuldbindingum þessa sveit- arfélags, er það var sett undir sérstakt eftirlit, scm þi»ð verður háð þar til séð er fram úr fjárhags- og atvinnuörðugleik- um þess. Því fé, sem þá var eftir, var skipt upp milli sveitarfélaganna í réttu hlutfalli við framlög þeirra hvers og eins til fra.m- færslumála, ellitrygginga og kennara- Jauna, svo sem lög mæla fyrir. Eitt af því, sem einna erfiðlegast geng- ur með að fá upplýst, er, hve margir menn raunverulega þiggja framfærslu- styrk hér á landi. í reikningum sveitarsjóðanna er skýrsluform, sem ætlazt er til, að útfyllt sé árlega í þessu skyni, en ákaflega mikill misbrestur er á því, að það sé gert, og þar, sem það er gert, er ekki nærri alltaf farið eftir sömu reglum við útfyllinguna, svo á þessum skýrslum verður ekkert hvggt. Hér á landi eru þvi ekki til neinar skýrslur, sem hægt er að sanna með, hversu margir verði aðnjótandi fram- færslustyrks eða hafi orðið það á und- anförnum árum. Eina skýrslan um þetta, sem til er, er frá árinu 1901, þegar nefnd sú, sem samdi fátækralögin gömlu, safnaði slíkum skýrslum fyrir allt landið og vann úr þeim. Er sú skýrsla hin merkilegasta. Voru þá taldir á fátækraframfæri á ís- landi samtals 6098 menn. Eru þetta fjöl- skyldur þær og einhleypt fólk, sem styrksins varð aðnjótandi. Þá voru samanlögð útgjöld til fátækramála á öllu landinu 167 131 krónur. Landsmenn voru þá alls 78 470 að tölu, svo styrks liafa notið 7,8% af öllum íbúum landsins. Fátækrabyrði á mann neinur þá kr. 2,13. Á síðasta ári ATar ákveðið, að safna skyldi skýrslum um alla þá, sem verið hefðu á framfæri á landi hér árið 1939, orsakir styrkþágunnar, aðstæður styrk- þeganna og hve mikið hver hefur þegið. Hafa nú skýrslur þessar borizt úr öllum hreppum landsins, og er verið að vinna úr þeim. Verður þar mikinn fróðleik að fá um framfærsluna í landinu 1939, þegar full- unnið er úr þessum skýrslum. Samkv. yfirliti, sem þegar hefur verið gert eftir skýrslum þessum, hafa alls 10 246 manns notið framfærslustyrks árið 1939. Af þessu fólki eru: í Reykjavik ........... 4 224 - öðrum kaupstöðum ... 2 448 - kauptúnunum ......... 1 216 - hreppsfélögum ....... 2 358 Nokkuð má deila um, hvernig upp skuli taka slíkar skýrslur sem þessar, en aðal- atriðið er þó, að sömu reglu sé ávalít fylgt, svo samanburðurinn verði réttur. Er hér fylgt þeirri reglu að telja á fram- færslu alla þá meðlimi fjölskyldu þeirrar, er þiggur, sem eru undir 16 ára aldri. Hins vegar er þeirri reglu fylgt um óskil- getin börn að telja aðeins börnin sem þiggjendur styrksins, en hvorki föður né móður harnsins, þar sem styrkurinn gengur ekki til framfærslu þcirra, held- ur eingöngu til framfærslu harnsins. Tala „framfærenda", þ. e. þeirra, sem taldir eru fyrir styrknum, og tala „fram- færðra“, þ. e. þeirra, se.m ásamt fram- færendum njóta hans, var í nokkrum sveitarfélögum þessi:

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.