Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 31
SVEITARSTJÓRNARMÁL
27
Loftmijnd af Reykjavik, tekin fyrir nokkrum árum. Pái eru íbúarnir orðnir 39 000 manns.
Með þessu fyrirkomulagi er almenn-
ingi gert aðvart um breytingar þær, sem
kunna að verða gerðar á ríkjandi á-
standi. Þó er hér aðeins um að ræða
samþykkt á „beinagrind“ hins raunveru-
lega skipulags, — síðan koma ýmis
smærri atriði, sem athuguð eru sér-
' staklega. Einstök hverfi eru þá tekin út
úr heildaruppdrættinum, og e. t. v. þá
dregin upp í stærri mælikvarða með
hliðsjón af nýrri meðferð, sem skapast
af kringumstæðunum, þegar til þess
kemur að byggja eftir samþykktum upp-
drætti.
Heildaruppdrátturinn er því aðeins
nauðsynleg undirstaða, sem sýna á
glögglega gatnakerfið með reglubundn-
um aðalæðum umferðar, skiptingu bygg-
ingareita ásamt almenningsgörðum,
barnaleikvöllum og helztu hæðarlínur
landsvæðisins, sem byggt er.