Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 57
SVEITARSTJ ÓRNARMÁL
53
Félag íslenzkra sveitarstjórnarmanna.
Hjá frændþjóðum okkar á Norður-
Jöndum hafa nú um langt skeið starfað
félög, sem í hafa verið þeir menn, er á
hverjum tíma hafa gegnt störfum í bæj-
arstjórnum og hreppsnefndum í löndum
þessum.
Félög þessi hafa reynzt mjög þýð-
ingarmikil fyrir málefni sveitarfélag-
anna. Þau hafa orðið til þess að auka
samheldni sveitarstjórnarmanna um
málefni sveitarfélaganna, þó að menn
greindi á að ýmsu leyti í stjórnmálum.
Þau hafa og oft átt upptök að ýmsum
þörfum nýmælum á sviði sveitarstjórn-
armála og eins hafa þau beitt sér gegn
vanhugsuðum tillögum, sem bornar hafa
verið fram um málefni sveitarfélaganna,
bæði af flokkum og einstaklingum.
Félög þessi lialda venjulega aðeins
einn fund á ári. Er til hans vandað eftir
föngurn. Eru þar fluttir fyrirlestrar um
ýmis málefni, sem sveitarfélögin varðar,
rædd frumvörp að lögum, sem fram
hafa komið eða fram eiga að koma á
næstu þingum, rædd fjármál og viðskipti
sveitarfélaganna o. s. frv., auk þeirra
mála, sem félagið sjálft varðar sérstak-
lega.
Hér á landi hefur aldrei verið til neitt
slíkt félag, og því, að ég held, aldrei
verið hreyft að stofna það. En ekki væri
þess síður þörf hér á landi en hjá frænd-
þjóðum okkar, að slíkt félag yrði stofnað
og starfaði ötullega.
Svo má heita, að þeir menn, sem sveit-
armálefnum landsins stjórna, þekkist
ekkert. Þeir eiga þess engan kost að
koma saman og ræða áhugamál sín á
sviði sveitarmálefnanna, og ýmiss konar
óþarfakritur á sér meira að segja oft
stað þeirra í milli, sem gjarnan mundi
liverfa við nánari kynni og meira sam-
starf.
líg vil nú hér á eftir láta í Ijós skoð-
anir mínar á því, með hverjum hætti ég
teldi, að koma mætti á fót slíku félagi
og hvernig því yrði fyrir komið í megin-
dráttum.
Félagsmenn ættu allir að geta orðið,
sem kosniá eru í hæjarstjórn, hrepps-
nefnd og sýslunefnd, hvar sem er á
landinu. Væru þeir félagsmenn meðan
þeir gegndu störfum í þessum nefnduin,
en ættu auk þess að eiga ]>ess kost að
vera félagar áfram, þó að þeir færu úr
nefndunum, en þá án þess að eiga at-
það af því, að sum sveitarfélög halda
rekstri og efnahag ýmissa fyrirtækja, er
þau eiga og ireka, svo sem rafstöðva
o. fk, alveg aðgreindum frá reikningum
sveitarfélagsins, og kemur það því þar
ekki fram.
Eins og vænta má, eru eignirnar mest-
ar í kaupstöðunum. Eru þær taldar vera
þar 41.5 milljón krónur, og af því skuld-
laus eign 26.5 milljón krónur.
Þegar allar skýrslur hafa fengizt frá
sveitarfélögunum fyrir árið 1939, verður
yfirlit birt yfir fjárhagsafkomu þess árs.
Getur það væntanlega orðið að mun full-
komnara og ábyggilegra en þetta yfirlit
er, því að nú er betri aðstaða fyrir hendi
til þess að fá það rétt, þegar grundvöll-
urinn hefur verið lagður. Væri óskandi,
að sveitarstjórnum lærðist það að senda
skýrslur sínar og reikninga svo fljótt
sem verða má, því að það er vitanlega
ekki af öðru en trassaskap, að fyrirskip-
aðir reikningar herast ekki fyrr en tveim
árum eftir að þeir eru gerðir, eins og
því miður oft á sér stað, og fást þó því
aðeins, að eftir þeim sé gengið mjög
freklega.
J. G.