Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Side 64
60
SVEITARST.TÓRNARMÁL
eða hreppsins í heild. Verði ágreiningur um fyrirætlanir nýbýlastjórnar annars veg-
ar og tillögur og óskir sveitarstjórnar liins vegar, sker stjórn Búnaðarfélags íslands
úr, en ákvörðun þeirri má skjóta til fullnáðarúrskurðar landbúnaðarráðherra.
9. gr.
Við ákvörðun ábúenda á hinum nýju landnámsjörðum skal nýbýlastjórn cg
lilutaðeigandi lireppsnefnd vera í samráðum. Verði um það ágreiningur, sker ráðu-
neytið úr.
10. gr.
Landbúnaðarráðherra setur með reglugerð ákvæði, er nauðsynleg þykja um
framkvæmd laga þessara.
11. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Lög um jarðakaup ríkisins
vegna kauptúna og sjávarþorpa.
1. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að kaupa jarðir, lönd og lóðir í kauptúnum og sjávar-
])orpum, eða í grennd við þau, eftir því sem fyrir er mælt í lögum þessum.
2. gr.
Skilyrði fyrir því, að ríkið kaupi jarðir, lönd og lóðir samkv. lögum þessum, eru:
a. Að landið sé ekki í eign hlutaðeigandi hrepps, þorps eða kauptúns.
h. Að samþykkt hafi verið á lögmætum hreppsnefndarfundi formleg beiðni um,
að kaupin séu gerð, og fylgi henni rökstuðningur fyrir þvi, að hlutaðeigandi
hreppur sé ekki fjárhagslega fær um að standa undir kaupunum.
c. Að beiðnin hafi verið samþykkt með meiri hluta atkvæða lögmæts fundar kosn-
ingabærra kaupstaðar- eða þorpsbúa, sem hlut eiga að máli, og að tekið hafi
verið fram í fundarboðinu, að atkvæðagreiðsla fari fram í málinu.
d. Að fyrir liggi rökstutt álit Búnaðarfélags íslands um, að þorpið eða kauptúnið
hafi þörf fyrir að fá landið til afnota vegna ræktunar eða annarra framkvæmda
og að lífvænleg atvinnuskilyrði séu fyrir hendi á staðnum og ekki sé hætta á,
að byggð muni leggjast þar niður.
3. gr.
Jarðir þær, lönd og lóðir, er ríkissjóður kaupir samkvæmt lögum þessum, skal
hann leigja hlutaðeigandi hreppi með ævarandi leiguréttindum, sbr. þó 5. gr„ og
sé árleg leiga 4% af kaupverði eignarinnar. Hreppnum er skylt að leigja landið
út til hlutaðeigandi þorps- eða kauptúnsbúa, eftir því sem lög og reglur þar um
mæla fyrir.
4. gr.
Skylt er ríkinu, ef hreppsnefnd óskar þess, að selja hreppnum með hagkvæm-
um greiðsluskihnálum jarðir þær, lönd og lóðir, er rikið kaupir samkvæmt lögum
þessum, með kostnaðarverði. Eignir þessar mega hrepparnir ekki selja aftur, nema
með samþykki ríkisstjórnar.