Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 65

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 65
SVEITARSTJÓHNARMÁL 61 5. gr. Nú stendur hreppur eigi í skilum með umsamda leigu af jörð eða lóðum til riiíissjóðs, eða ræktun og mannvirki ganga úr sér, eða náttúrugæðum er spillt, svo að eignin rýrnar í verði, og hefur hann þá fyrirgert leiguréttindum sinum. Er þá ríkissjóði heimilt að taka í sínar hendur öll umráð hinnar leigðu eignar, svo og innheimtu lóðar- og erfðafestugjalda. 6. gr. Nú vill ríkið kaupa lönd eða lóðir samkv. lögum þessum, en eigandi vill ekki selja eða samkomulag næst eigi um kaupverðið, og er þá heimilt að taka löndin eða lóðirnar eignarnámi samkvæmt lögum nr. 61 14. nóv. 1917, um framkvæmd eignarnáms, með eftirfarandi skilyrðum: a. Að eigandi lands eða lóðar geti haldið eftir hæfilega stóru landi fyrir sjálf- stæðan búrekstur eða annan atvinnurekstur, samkvæmt áliti Búnaðarfélags Islands. b. Að leitað sé ráða og umsagnar Búnafarfélags íslands, áður en eignarnám fer fram samkvæmt lögum þessum, og má aldrei heimila eignarnám án samþykkis Búnaðarfélags íslands. Skal Búnaðarfélagið sérstaklega gæta þess, að ekki verði um of þrengt að hagsmunum annarra aðila í hreppnum, né þeirra, sem eiga það land, sem tekið er eignarnámi. Land, sem liggur í öðru hreppsfélagi, má því aðeins taka eignarnámi, að landið liggi að hreppamörkum. Skal þá jafnframt, ef óskir koma fram um það, leitað samn- inga um, að hið tekna land verði lagt undir þann hrepp, er það notar, og ákveður ráðherra, að svo skuli gert, ef hreppsnefndir þær, er hlut eiga að máli, verða ásáttar um skilmála og sýslunefnd mælir með. Að öðrum kosti verður hreppamörkunum ekki breytt nema með lögum. 7. gr. Kostnaður við framkvæmd laga þessara greiðist úr .rikissjóði, enda sé árlega tekin upp í fjárlög hæfileg fjárhæð i þessu skyni. Framkvæmd laganna má fela stjórn jarðakaupasjóðs ríkisins. 8. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Lög um heimild fyrir kaupstaði og hreppsfélög til að koma á þegnskylduvinnu. 1. gr. Heimilt er bæjarstjórnum og hreppsnefndum, með samþykki atvinnumálaráð- lierra, að stofna til þegnskylduvinnu eftir þeim reglum, sem felast i lögum þessum. 2. gr. •_ Nú vill hrfepþsnefnd eða hæjarstjórn öll eða meiri hluti þeirra stofna til þegn- skylduvinnu samkvæmt lögum þessum, eða þeim berast bréflegar áskoranir urn það frá minnst^% hluta kjósenda innan umdæmisins, og er henni þá skylt að láta atkvæða- greiðslu fara fram um málið á venjulegan hátt, en áður skal halda almennan fund um

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.