Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Qupperneq 65
SVEITARSTJÓHNARMÁL
61
5. gr.
Nú stendur hreppur eigi í skilum með umsamda leigu af jörð eða lóðum til
riiíissjóðs, eða ræktun og mannvirki ganga úr sér, eða náttúrugæðum er spillt, svo
að eignin rýrnar í verði, og hefur hann þá fyrirgert leiguréttindum sinum. Er þá
ríkissjóði heimilt að taka í sínar hendur öll umráð hinnar leigðu eignar, svo og
innheimtu lóðar- og erfðafestugjalda.
6. gr.
Nú vill ríkið kaupa lönd eða lóðir samkv. lögum þessum, en eigandi vill ekki
selja eða samkomulag næst eigi um kaupverðið, og er þá heimilt að taka löndin
eða lóðirnar eignarnámi samkvæmt lögum nr. 61 14. nóv. 1917, um framkvæmd
eignarnáms, með eftirfarandi skilyrðum:
a. Að eigandi lands eða lóðar geti haldið eftir hæfilega stóru landi fyrir sjálf-
stæðan búrekstur eða annan atvinnurekstur, samkvæmt áliti Búnaðarfélags
Islands.
b. Að leitað sé ráða og umsagnar Búnafarfélags íslands, áður en eignarnám fer
fram samkvæmt lögum þessum, og má aldrei heimila eignarnám án samþykkis
Búnaðarfélags íslands. Skal Búnaðarfélagið sérstaklega gæta þess, að ekki verði
um of þrengt að hagsmunum annarra aðila í hreppnum, né þeirra, sem eiga það
land, sem tekið er eignarnámi.
Land, sem liggur í öðru hreppsfélagi, má því aðeins taka eignarnámi, að landið
liggi að hreppamörkum. Skal þá jafnframt, ef óskir koma fram um það, leitað samn-
inga um, að hið tekna land verði lagt undir þann hrepp, er það notar, og ákveður
ráðherra, að svo skuli gert, ef hreppsnefndir þær, er hlut eiga að máli, verða ásáttar
um skilmála og sýslunefnd mælir með. Að öðrum kosti verður hreppamörkunum ekki
breytt nema með lögum.
7. gr.
Kostnaður við framkvæmd laga þessara greiðist úr .rikissjóði, enda sé árlega
tekin upp í fjárlög hæfileg fjárhæð i þessu skyni. Framkvæmd laganna má fela stjórn
jarðakaupasjóðs ríkisins.
8. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Lög um heimild fyrir kaupstaði og hreppsfélög
til að koma á þegnskylduvinnu.
1. gr.
Heimilt er bæjarstjórnum og hreppsnefndum, með samþykki atvinnumálaráð-
lierra, að stofna til þegnskylduvinnu eftir þeim reglum, sem felast i lögum þessum.
2. gr. •_
Nú vill hrfepþsnefnd eða hæjarstjórn öll eða meiri hluti þeirra stofna til þegn-
skylduvinnu samkvæmt lögum þessum, eða þeim berast bréflegar áskoranir urn það
frá minnst^% hluta kjósenda innan umdæmisins, og er henni þá skylt að láta atkvæða-
greiðslu fara fram um málið á venjulegan hátt, en áður skal halda almennan fund um