Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1963, Side 21

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1963, Side 21
TRYGGINGAMAL ----- RITSTJÓRI: GUÐJÓN HANSEN - Heildarendurskoðun almannatryggingalaga lokið. Stj órnarfrumvarp lagt fram á Alfjin^i. Nefnd sú, sem skipuð var fyrir tveimur og hálfu ári til þess að endurskoða í lieild lögin um almannatryggingar, hefur nýlega lokið störfum, og liefur ríkisstjórnin lagt frumvarp nefndarinnar óbreytt fram á Alþingi. I frumvarpinu felast fjölmörg nýmæli, en meðal helztu breytinga má nefna eftirfarandi: 1. Allir lífeyrissjóðir verði viðbótarsjóðir við almannatryggingar. 2. Fjölskyldubætur verði greiddar með öllum börnum, þ. e. einnig þeim, sem njóta barnalífeyris eða eiga framfærsluskyldan föður utan fjölskyld- unnar. 3. Fæðingarstyrkur og ekkjulífeyrir hækki verulega. 4. Dánarbætur slysatrygginga til ekkju eða ekkils hækki verulega og greiðist á 8 árum í stað eingreiðslu. 5. Lágmark sjúkradagpeninga hækki stórlega og dagpeningaákvæðum verði breytt mjög. 6. Slysa- og sjúkradagpeningar renni til vinnuveitanda, ef hann greiðir hin- um tryggða kaup á dagpeningatímabili. 7. Héraðssamlög taki við tryggingu langvarandi sjúkrahúsvistar af sjúkra- samlögum. Gert er ráð fyrir gildistöku 1. janúar 1964. I athugasemdum við frumvarpið gerir nefndin rækilega grein fyrir starfi sínu og tillögum. Fer hér á eftir hinn almenni hluti greinargerðarinnar svo og áætlun Tryggingastofnunarinnar um útgjaldaaukningu þá, sem samþykkt frumvarpsins mundi hafa í för með sér.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.