Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Side 5
MAGNÚS H. MAGNÚSSON,
bæjarstjóri:
ELDUR
í
EYJUM
Frá því klukkan 10 að kvöldi þess 22. janúar
og fram undir kl. hálf tvö um nóttina varð ég var
við allmarga minniháttar jarðskjálftakippi, sem
ég setti strax í samband við Kötlu gömlu, en lengi
hefur verið búizt við, að hún léti á sér bæra.
Klukkan tæplega tvö aðfaranótt 23. janúar
var ég vakinn með símahringingu og ég beðinn
að líta til austurs. Nú, jæja, er hún Jaá byrjuð,
hugsaði ég með mér, og var enn með Kötlu í
huga.
Að sjálfsögðu leit ég strax út og sá þá, að jarð-
eldurinn var miklum mun nær, eða við austur-
jaðar kaupstaðarins.
Ég hringdi þegar í stað í loftskeytastöðina í
Vestmannaeyjum, og var mér Jiá tjáð, að búið
væri að kalla úr slökkvilið og lögreglu til að
vekja fólk í austurhluta bæjarins. Ég bað um, að
strax yrði hal't samband við Almannavarnaráð
ríkisins og að flugumferðarstjóri yrði beðinn að
vera til taks í flugturninum. Rétt í Jressu hringdi
forseti bæjarstjórnar til nn'n og lagði til, að
bæjarstjórnin kæmi strax saman til fundar á bæj-
arskrifstofunum.
Þegar ég hafði komið konu minni og börnum
ásamt börnum úr næsta húsi, Jrví foreldrar þeirra
voru í Reykjavík, á öruggari stað í vesturhluta
bæjarins, fór ég ásamt tæknifræðingi kaupstað-
arins til að kanna verksummerki. Síðan fórum
við niður á bæjarskrifstofur, og Jjangað komu
flestir bæjarfulltrúarnir. Ákveðið var að hvetja
alla íbúa kaupstaðarins, sem ekki Jrurftu sérstök-
um skyldustörfum að gegna, til að yfirgefa eyna
sem allra fyrst. Af 5300 íbúum kaupstaðarins
Magnús H. Magnússon, bæjarstjóri við hraunbrúnina.
voru liðlega 5000 farnir eftir um Jjað bil 3 klukku-
stundir, frá Jjví að gosið hófst. Að öðru leyti á-
kvað bæjarstjórnin, að allt skyldi gert, sem í
mannlegu valdi stæði, til að bjarga Jjví, sem bjarg-
að yrði.
51
SVEITARSTJÓRNARMÁL