Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Blaðsíða 17
Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga
í Vesturlandskjördæmi:
ÖLL SVEITARFÉLÖGIIM
KOMIIM í SAMTÖKIIM
Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga
í Vesturlandskjördæmi var hald-
inn að Hótel Akranesi sunnudag-
inn 5. nóvember 1972. Fundinn sátu
34 fulltrúar frá 24 af 39 sveitarfé-
lögum í kjördæminu.
Fundarstjórar voru Daníel Ag-
ústínusson, bæjarfulltrúi á Akra-
nesi, og Björn Arason, lirepps-
nefndarmaður í Borgarnesi, en
Öll sveitarfélögin
í samtökunum
Formaður, Alexander Stefánsson,
cddviti í Ólafsvík, flutti skýrslu
stjórnar um starfsemi samtakanna.
Skýrði liann frá jní, að nýlega
hefði náðst sá áfangi, að öll sveit-
Frá aðalfundinum á Akranesi, viS vinstri brún myndar sér á GuSmund Vésteinsson, bæjar-
fulltrúa á Akranesi, síSan sér traman á Harald Árnason, oddvita í BúSardal, Alexander Stef-
ánsson, fundarstjórana Björn Arason og Daníel Ágústínusson, Gylfa jsaksson, bæjarstjóra,
Ólaf Ragnar Grímsson, lektor og Gísla ÞórSarson, Mýrdal, en framar sér aftan á BöSvar
Bjarnason, hreppsnefndarmann í Ólafsvík. Fremst á myndinni vinstra megin er Óskar Eggerts-
son, stöðvarstjóri Andakílsárvirkjunar. í ræðustóli er Benedikt Gröndal, alþingismaður.
fuudarritarar Húnbogi Þorsteins-
son, sveitarstjóri í Borgarnesi; Guð-
mundur Vésteinsson, Itæjarfulltrúi
á Akranesi, og Halldór Finnsson,
hreppsnefndarmaður í Grtundar-
firði.
arfélög kjördæmisins væru orðin
aðilar að samtökunum, en þau eru
39 talsins með 13. 199 íbúa. Bauð
hann velkomin í samtökin þau,
sem óskað hefðu eftir aðild á starfs-
árinu.
Brýn lagasetning
Formaður lagði áherzlu á, að
landshlutasamtökin væru að verða
sameiginlegur starfsvettvangur sveit-
arfélaganna og raunhæfur tengi-
liður milli sveitarfélaga og stofn-
ana stjórnkerfisins. „Gert var ráð
fyrir því á síðasta Alþingi," sagði
formaður, „að staða landshluta-
samtakanna yrði afmörkuð í lög-
um, af [íví varð j)ó ekki, hefur
þetta orsakað mikla erfiðleika og
óvissu í verkefnum samtakanna og
takmörkun til að hafa áhrif á
stefnumörkun í stórmálum, sem
nú eru á döfinni, sem varða miklu
sveitarfélögin. Við formenn og
framkvæmdastjórar landshlutasam-
takanna höfum átt viðræður við
félagsmálaráðherra og önnur
stjórnvöld um jjetta mál og gengið
hefur verið frá uppkasti að frum-
varpi til laga um breytingu á sveit-
arstjórnarlögunum, sem við vænt-
um, að ríkisstjórnin leggi fram til
samjjykkis á þessu þingi. Hér er
aðeins um að ræða brýna lagasetn-
ingu til staðfestingar á [>eirri þró-
un, sem þegar er orðin veruleiki,
liins vegar er endurskoðun sveitar-
stjórnarlaganna í lreild í undirbún-
ingi. „Reynslan sýnir,“ sagði for-
maður að lokum, „að sveitarstjórn-
arkerfið í núverandi mynd leysir
ekki J)ann vanda, sem við er að
etja í byggðum Jjessa lands. Spurn-
ingin er nú, livort svarið er ekki að
SVEITARSTJÓRNARMÁL