Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Page 8
eyjum. Margir fréttamenn segja, að þetta hefði
livergi getað gerzt, nema á íslandi.
Þá hefur og verið reynt af fremsta megni að
verja hús skemmdum t.d. af völdurn raka og
frosta, jafnframt því sem áfram var haklið björg-
un og flutningi lrvers konar verðmæta úr einka-
heimilum og atvinnufyrirtækjum og stöðugt
hreinsað gjall af þökum, auk þess sem þau lrafa
verið styrkt innan frá. Nú er einnig hafin hreins-
un af götum kaupstaðarins og fara afköstin stöð-
ugt vaxandi með auknum og bættum tækjakosti.
Fyrst í stað var þessi starfsemi á vegurn bæjar-
stjórnar, Almannavarnaráðs ríkisins og Almanna-
varnanefndar Vestmannaeyja, en síðar meir tók
Viðlagasjóður við þessari starfsemi, samkvæmt
lögum, sem Alþingi setti um starfsemi þessa.
Fyrstu vikurnar voru björgunarstörfin lang
flest unnin í sjálfboðavinnu, og satt að segja undr-
aðist ég mjög, hve afkastamiklir menn voru, þótt
unnið væri hvíldarlítið sólarhringum saman.
Um jarðeldana er það að segja, að flestir vís-
indamenn eru sammála um, að þeir séu mjög í
rénum, og að sáralítil hætta sé á því, að nýjar
jarðsprungur myndist.
Þegar flestallir íbúar kaupstaðarins voru konin-
ir til lands, flestir til Reykjavíkur og annarra
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og á suð-
vesturhorni landsins, var ljóst, að þar biði bæj-
arstjórnarinnar ærinn vandi og vandasöm verk-
efni varðandi aðbx'mað bæjarbúa, einkum er
snerti húsaskjól, skólavist nemenda á öllum
skólastigum, velferð ungra og aldraðra, atvinnu-
mál og þá einkurn útgerðaraðstöðu Eyjabáta á
vetrarvertíð, sem var rétt að hefjast, þegar jarð-
eldarnir brutust út.
Varðandi starfsemina í Reykjavík leyfi ég mér
fyrst að vitna í skýrslu bæjarlögfræðings.
„Það var strax ljóst þann 24. janúar, að Vest-
mannaeyjakaupstaður yrði að flytja til bráða-
birgða eitthvað af starfsemi sinni til Reykja-
víkur. Auk þess var svo fyrirsjáanlegt, að strax
yrði að snúast gegn margs konar vandamálum,
sem þessar einstæðu aðstæður sköpuðu, og ekk-
ert sveitarfélag hafði nokkru sinni þurft að glíma
við.
Strax þennan dag bauð borgarráð Reykjavík-
Á húsmæni við áður fjölfarna götu.
Hraðfrystistöð Vestmannaeyja verður hraunflóðinu að bráð og stendur
f Ijósum logum.
Ein af götum kaupstaðarins grafin út.
SVEITARSTJÓRNARMÁL