Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Side 20

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1973, Side 20
Tæknistofnun sjávarútvegsins á Akranesi „Aðalfundurinn fagnar sérhverri viðleitni stjórnvalda og Alþingis í þá átt, að opinberum stofnunum sé valinn staður utan höfuðborgar- svæðisins. Fundurinn samþykkir því að beina þeirri áskorun til þess- ara aðila að velja væntanlegri Tæknistofnun sjávarútvegsins að- setur á Akranesi." Samstarf sveitarfélaga um ákveðin verkefni „Aðalfundurinn beinir Jteim til- mælum til sveitarfélaga í kjördæm- inu, að þau kanni möguleika á sam- starfi um framkvæmd einstakra snálaflokka, (eins og til dæmis sorphreinsun og varanlega gatna- gerð.“ Óbreytt stjórn Samþykkt var einróma, að stjórn samtakanna yrði óbreytt næsta starfsár. Stjórnin er þannig skip- uð: Alexander Stefánsson, oddviti Olafsvík, formaður; Húnbogi Þor- steinsson, sveitarstjóri í Borgarnesi, ritari; Gylfi ísaksson, bæjarstjóri á Akranesi, gjaldkeri; Sigurður Sigurðsson, oddviti Skilmanna- hrepps, og Haraldur Árnason, odd- viti Laxárdalshrepps. í varastjórn eiga sæti Valdimar Indriðason, bæjarfulltrúi, Akra- nesi; Bergþór Guðmundsson, odd- viti Leirár- og Melahrepps; Þórð- ur Ivristjánsson, oddviti Norðurár- dalshrepps, Ágúst Bjartmars, odd- viti Stykkishólmshrepps og Gísli Þorsteinsson, oddviti í Miðdala- hreppi. Endurskoðendur voru kjörnir Jém Þór Jónasson, oddviti Stafholts- tungnahrepps, og Árni Emilssoti, sveitarstjóri í Grundarfirði, og til vara Gísli Þórðarson, oddviti Kol- beinsstaðahreppi, og Skúli Alex- attdersson, oddviti Neshreþps utan Ennis. FRÁ SAM- STARFS- NEFND UM SKÓLA- KOSTNAÐ EndurgreiÖsla á aksturs- kostnaði heekkar Hinn 13. febrúar sl. skrifuðu fulltrúar sambandsins í skólakostn- aðarnefnd menntamálaráðuneyt- inu og fóru þess á leit, að viðmið- unartölur, sent lagðar et u til grund- vallar við útreikning á endur- greiðslum til sveitarfélaga vegna aksturs nemenda, verði endurskoð aðar og hækkaðar til samræntis við verðlag. Menntamálaráðuneytið hefir nú svarað þessari málaleitun og til- kynnt, að við endurgreiðslu á hluta ríkissjóðs af aksturskostnaði sveitar- félaga vegna skyldunámsnemenda SVEITARSTJÓRNARMÁL skólaárið 1972—73 muni ráðuneytið hækka áður samjtykkta viðmiðunar- taxta í samræmi við leyfðar hækk- anir á töxtum sérleyfishafa. Hækkanir Jtessar koma á akstri frá og með gildistöku áðurnefndra hækkana á töxtum sérleyfishafa. Rýmkun álivœða um stœrðanorm og kostnaðarviðmiðun. Þegar gengið var frá endanleg- um tillögum að reglugerð nr. 159/ 1969 um stofnkostnað skóla, létu fulltrúar Sambands íslenzkra sveit- arfélaga í samstarfsnefnd um skóla- kostnað bóka eftir sér fyrirvara um nauðsyn sveigjanleika í framkvæmd reglugerðar, enda var um algjört nýmæli að ræða, Jtar sem var viðmið un við ákveðin stærða- og kostn- aðarnorm við skiptingu stofnkostn- aðar og eignaraðildar. Fulltrúar sambandsins töldu sér- staka ástæðu til að gera mjög á- kveðinn fyrirvara varðandi grunn- tölu þá, sem lögð var til grund- vallar viðmiðunum, j>.e. kr. 11.200 pr. m2, miðað við vísitölu 332 stig, enda töldu Jteir, að byggingarkostn- aður skíila Jjá væri allmiklu liærri en grunnskóli þessi gerði ráð fyrir, jafnvel um 20 % hærri. Að undanförnu hefur starfað nefnd, er endurskoða skal reglu- gerð 159/1969, m.a. ákvæði og grunntöiu kostnaðarviðmiðunar. Nefndin hefur Jtegar látið fara frá sér tillögu um rýmkun stærða- norma íþrótlaliúss og sundlaugar, og var sú breyting staðfest með reglugerð 148/1972. Innan tíðar má vænta frekari tillagna um lagfær- ingar og rýmkun ákvæða um stærð- arnorm. Endurskoðun á grunntölu kostnaðarviðmiðunar er mjög mik- ið og vandasamt verk, sem ekki verður lokið fyrr en eftir nokkurn tíma. En til Jjess að flýta þessari endurskoðun og jafnframt tryggja eins rétta niðurstöðu og unnt er, er mjög áríðandi, að sveitarfélög, sem byggt hafa skóla skv. liinum nýju ákvæðum, sendi byggingadeild menntamálaráðuneytisins eða full- trúum sambandsins sundurliðað uppgjör byggingarkostnaðar. En alveg sérstaklega á þetta við um þá aðila, er byggingardeild hefur Jjegar beðið um Jressi uppgjiir, en hafa ekki skilað Jjeim enn.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.