Sveitarstjórnarmál - 01.04.1975, Blaðsíða 51
ir þingið því til iðnþróunarnefnd-
ar og skrifstofu F. S. N., að kannað
verði, hvaða nýjar iðngreinar geti
komið til greina á hinum ýmsu
þéttbýlisstöðum og í dreifbýli fjórð-
ungsins.
Framsögumaður iðnþróunar-
nefndar var Jón ísberg, oddviti á
Blönduósi.
Hlutafélag
um gatnagerð
Fjórðungsjring Norðlendinga
samjrykkir stofnun gatnagerðarfyr-
irtækis sveitarfélaganna á Norður-
landi.
Jafnframt leggur Jringið ríka
áherzlu á, að félagið taki til starfa
sem f)Tst.
Verkaskipting ríkis
og sveitarfélaga
Fjórðungsþing Norðlendinga
telur orðið tímabært, að verka-
skipting ríkis, sveitarfélaga og sam-
taka þeirra verði tekin til heildar-
endurskoðunar i jieim tilgangi að
einfalda hana. í jrví sambandi legg-
ur fjórðungsþingið áherzlu á eftir-
farandi grundvallaratriði:
a. Sameiginlegum verkefnum ríkis
og sveitarfélaga verði fækkað.
b. Einstök verkefni framkvæmda-
valdsins verði falin þeim aðila,
sem eðlilegast er að liafi þau
með höndum, jiannig að saman
fari hjá sama aðila frumkvæði
að framkvæmd, umsjón fram-
kvæmda og rekstrarleg ábyrgð.
c. Ríkið hafi með höndum verk-
efni, sem varðar alla landsmenn
nokkurn veginn jafnt án tillits
til búsetu, svo og verkefni, sem
fela í sér jöfnun á aðstöðu ein-
stakra byggðarlaga.
d. Ríkisvaldið verði fært út í liér-
uðin eftir því sem unnt er á hag-
kvæman hátt, með því að veita
sveitarfélögum og samtökum
jieitra aukið sjálfsforræði, og
með flutningi stofnana eða
deilda frá þeim út á land.
e. Sveitarfélögin annist staðbund-
in verkefni, sem varða fyrst og
fremst daglegt líf íbúanna.
f. Sveitarfélögin liafi samvinnu
um að leysa tiltekin verkefni á
sýslugrundvelli eða á vegum
einstakra landshlutasamtaka.
Sýslurnar verði samtök allra
sveitarfélaga í héraðinu. Réttar-
staða Jieirra allra verði hin sama,
en verkefnum, sýslumörkum og
skipan sýslunefnda verði breytt
til samræmis við breyttar aðstæð-
ur og kröfur. Oddvitar eða sveit-
arstjórar og kjörnir fulltrúar
sveitarfélaga verði fulltrúar
Jseirra í sýslunefnd og lands-
hlutasamtökum sveitarfélaga.
Sýslunefndin myndi 3—5 manna
sýsluráð, sem haldi reglulega
fundi. Sýslunefndum verði heim-
ilað að ráða sér framkvæmda-
stjóra. Tekjustofnar sýslnanna
verði ákveðnir í samræmi við
verkefni.
Almenn þjónusta
og stjórnsýslumiðstöðvar
Fjórðungsþing Norðlendinga
samþykkir, að stofnananefnd í
samráði við fjóðungsstjórn taki
upp viðræður við ráðuneyli, ríkis-
stofnanir og starfsmenn stofnana í
fjórðungnum, sem sjá um opin-
bera þjónustu í þeim tilgangi að
auka og bæta opinbera Jtjónustu
við alla íbúa fjórðungsins. Bent er
m.a. á eftirfarandi starfsemi:
lieilbrigðisþjónustu og heilsu-
gæzlu,
þjónustu frá skattstofu,
jrjónustu sýsluskrifstofu,
jjjónusl u Tryggingarstofnunar
ríkisins og sjúkrasamlaga,
Rafmagnsveitur ríkisins,
Póst og síma,
Vegagerð ríkisins,
skipulagsmál og byggingaeftirlit,
Hafnarmálastofnun ríkisins.
Hugmyndin um stjórnsýslumið-
stöðvar hefur hlotið svo jákvæðar
undirtektir sveitarfélaga í fjórð-
ungnum, að nauðsyn ber til að
fjórðungsráð taki án tafar upp
könnun á leiðum til að útvega
fjármagn, til að koma slíkum
stofnunum á fót, þar sem Jtörf
krefur.
Bygging leiguíbúða
Fjórðungsþing harmar jrann
drátt, sem orðið hefur á fram-
kvæmd laga um byggingu leigu-
íbúða. Þingið telur, að með sam-
jjykkt laganna liafi ríkið tekið á
sig Jrá skyldu, að fjármagna þessar
framkvæmdir að hluta á þessu ári.
Þá átelur fjórðungsþingið það
orðalag reglugerðarinnar um leigu-
ibúðir, sem einungis heimilar, en
ekki skyidar Húsnæðismálastjórn
lil að fjármagna framkvæmdir jress-
ar. Þeim til áréttingar vísast í lög
um Framkvæmdanefndir bygging-
aráætlana í Reykjavík, sem skylda
Húsnæðismálastjórn til að veita
80% lán til hliðstæðra fram-
kvæmda.
Framsögumaður nefndarinnar
var Stefán Stefánsson, bæjarverk-
fræðingur.
Meðan á jnnginu stóð, héldu
Vestur-Húnvetningar þingfulltrú-
unt kvöldverðarboð. Jón íslterg,
sýslumaður, var veizlustjóri, en
Ingólfur Guðnason, sparisjóðsstjóri
á Hvammstanga lýsti liéraðinu.
Aður en þingi lauk bauð Heimir
Ingimarsson, sveitarstjóri á Rauf-
arhöfn, að næsta fjórðungsjjing
yrði Jjar haldið að ári. Var jjað
samjjykkt.
Brynjólfur Sveinbergsson, ný-
kjörinn formaður Fjórðungssam-
bandsins, jjakkaði traust og sagði
jjingi slitið.
S VEITAR S TJ Ó R NARMÁL