Sveitarstjórnarmál - 01.04.1976, Blaðsíða 14
68
Byggðin hefur vaxið jafnt og
þétt á síðari árum. Margt ibúðar-
húsið ber meistara sínum fagurt
vitni. Meðal þeirra, sem þar eiga
margt handtakið, er Kristján Gunrt-
arsson, byggingameistari, Aust-
firðingur að ætt. Hann fluttist
norður til þess að byggja þar
mjólkurstöð árið 1946, fyrir réttum
30 árum, og hefur ekki farið
þaðan síðan.
Ný slökkvistöð við Norðurlandsveg
á Blönduósi. Slökkvistöðin er
stálgrindarhús, 315 m- að flatarmáli.
Bifreiðaeftirlit ríkisins hefur þriðjung
hússins á leigu undir starfsemi
sína. Ljósmyndina tók Sigursteinn
Guðmundsson, héraðsiæknir.
Hús Barna- og miðskólans á
Blönduósi, norðan Blöndubrúar.
Eldri hluti hússins, til hægri, var
tekinn í notkun árið 1946, en
viðbyggingin, til vinstri á myndinni,
var reist á árunum 1970—1971.
Ljósm. Sigursteinn Guðmundsson.
SVEITARSTJÓRNARMÁL