Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.1976, Blaðsíða 49

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1976, Blaðsíða 49
BALDUR JOHNSEN, dr. phil., yfirlæknir: HREINSUNAR- SVEITIR NÁTTURUNNAR Það liefur mikið verið rætt um skaðsemdar- gripina lirafn, máf og mink í varplöndum og víðar, og voru þessi mál sérstaklega til umræðu á síðasta náttúruverndarþingi. Að sjálfsögðu koma meindýr eins og rottan líka inn i rnynd- ina. Á þinginu var mikið deilt um aðferðir til að eyða fyrstu þremur vágestum, sem herjuðu á náttúru landsins, einkum að sumarlagi. Jafn- framt komu fram gildar rökstuddar skoðanir um það, að hér ættu orðið í lilut, a. m. k. hvað máf og lirafn snerti, eðlilegir og sjálfsagðir l'uglar í fuglaríki landsins, sem ekki mætti stugga of mik- ið við. Náttúran heldur jafnvægi með því, að ýmsar tegundir byggjast upp með því að lifa á öðrum tegundum að vissu marki. Þegar hinum öðrum tegundum fækkar um of, fækkar einnig rán- eða hræfuglum. Það mun vera almennt álit manna, að bann- fœra verði eitrun. En livað er þá, til ráða? Svar: Ráðið er raunar mjög einfalt. Það er að koma í veg fyrir, að fyrrnefndir hræfuglar nái í æti þann tíma, sem harðast er í,búi, þ. e. a. s. á vetrinum. Það verður aðeins gert með því eina móti að skilja ekki eftir ætan úrgang á víðavangi, h\orki á fjörum, við útrás skolpræsa né á opnum sorphaugum. Einnig þarf að loka fisk- og úr- gangsgeymslum síldar- og fiskimjölsverksmiðja (loðnu). Allt þetta kostar að vísu nokkurt fé og umstang, en jjað gæíi á fáum árum mikinn og góðan arð. Undirstaðan undir fjölgun allra jressara mein- dýra er vetrar- eða vorætismagnið á víðavangi, jiegar undirbúningur að fjölgun dýranna fer fram. Því minna æti á Jteim tíma, Jjví minni fjölgun, Javí minni vandræði í varplöndum og á öðrum nytjapeningi og varningi landsmanna. Undir sömu sök eru að sjálfsögðu meindýr eins og rott- urnar seldar. Kjörorðið er Jiví, hreint land og um leið fag- urt, ekki aðeins fyrir augað Iieldur einnig til stórkostlegra búnytja. Það er engin hætta á, að hreinsunarsveitunum verði alveg útrýmt, })ótt maðurinn taki til hendinni, eins og honum er skylt. Þ. e. að brenna eða grafa sorp forsvaran- lega og hreinsa skolp eða leiða niður fyrir stór- straumsfjöruborð eða lengia út eins og lög mæla fyrir um. Að ég ekki tali um að varðveita fisk- slóg og önnur bein verðmæti á öruggan hátt. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.