Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Page 46

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Page 46
AFMÆLI Björn Hafþór Guömundsson, framkvæmdastjóri S5A, og Broddi B. Bjarnason, bæjarfulltrúi á Egilsstööum og formaöur SSA, finna gott orðalag á samþykkt. snerust öndverðir gegn þeim. Árið 1988 ræddi ég við Gunnlaug Jónasson um starfsemi fjórðungsþingsins, en eins og fyrr segir var hann einn helsti forsvarsmaður þess. Gunnlaugur var þá á 93. aldursári en vel em og minnisgóður. Hann sagði að helstu áhrifamenn þjóðar- innar hefðu ekki sýnt tillögunni um nýja stjómarskrá minnsta áhuga en þó hefði Jónas frá Hriflu álitið tillög- una athyglisverða, helsti gallinn við hana væri sá að hún væri 30 ámm of snemma á ferðinni. Upp úr 1950 dofnaði mjög umræðan um stjómskipun- armál innan fjórðungsþingsins en síðustu samþykktir um slfk mál voru gerðar á þinginu 1959. Gunnlaugur tjáði mér að þá hefðu menn verið orðnir leiðir á að sam- þykkja tillögur um stjómkerfisbreytingar sem enginn tók mark á. Þegar áherslan á stjómskipunarmálin fór minnkandi innan fjórðungsþingsins jókst að sama skapi umfjöllun þingsins um önnur málefni. Fjórðungsþingið tjallaði um fjölmörg hagsmunamál Austfirðinga og verða hér einungis nokkur nefnd. Kauptún á Fljótsdalshéradi Eitt þeirra mála sem þingið ályktaði oft um var nauð- syn þess að kauptún myndi rísa á Fljótsdalshéraði og ekki fer á milli mála að fjórðungsþingið átti sinn þátt í því að Egilsstaðahreppur var stofnaður með lögum árið 1947. Einnig hvatti þingið mjög til stofnunar bankaúti- búa í landshlutanum. Þá reyndi þingið að stuðla að stofnun Sögufélags Austfirðinga og Héraðsskjalasafns Austfirðinga en þær stofnanir komust þó ekki á fót fyrir tilstuðlan fjórðungsþingsins. Eins og nærri má geta vom atvinnumál, samgöngu- mál, menntamál og orkumál al- geng umfjöllunarefni á fundum fjórðungsþingsins og sannast sagna lét þingið sér fátt mannlegt óviðkomandi og notaði að sjálf- sögðu það orðaval sem þá tíðkað- ist í ályktunum. Á fjórðungsþingi 1950 var t.d. samþykkt að kjósa nefnd til að athuga möguleika á samstarfi sveitarfélaga á Austur- landi um stofnun og rekstur „heimilis fyrir fávita og vand- ræðafólk“. Nefndin starfaði á milli þinga og skilaði áliti árið eftir og þá samþykkti þingið að skora á Alþingi að koma heimili af þessu tagi á fót í fjórðungnum. Réttlátari skömmtun á sykrí Vömskömmtun var líka til um- ræðu á fjórðungsþingum á árunum eftir stríð og skal hér tekið dæmi um ályktun um það efni sem sam- þykkt var í einu hljóði á fjórðungsþingi 1948 en ályktun- in fjallar fyrst og fremst um sykur og sýnir það misrétti sem þá rikti á milli landsbyggðarfólks og höfuðborgar- búa á sviði möguleika manna til að neyta sætinda. Álykt- unin er svofelld: „Fjórðungsþing Austfirðinga skorar á ríkisstjómina að láta hætta skömmtun á matvörum og vinnufatnaði, þar sem skömmtun á þessum vörum virðist ekki byggjast á skorti á þeim, en gjaldeyrisspamaður vegna þessarar skömmtunar er ekki mikill. Þyki ekki fært að afnema skömmtun á þessum vömm, vill fjórðungsþingið mælast til þess að skömmtun mat- vara einkum sykurs verði réttlátari framvegis en hún hef- ir verið undanfarið, þar sem kaupstaðabúar, einkum þeir sem í Reykjavík búa, hafa stómm betri aðstöðu en aðrir landsmenn til þess að drýgja hinn takmarkaða sykur- skammt með því að kaupa miðalaust sætt brauð og syk- urvörur frá brauð- og efnagerðum. Leggur fjórðungs- þingið til að sykurskammtur til einstaklinga verði aukinn sem svarar því magni sem nú fer til brauðgerðarhúsa og efnagerða. Nokkrum hluta sykurmiðanna á skömmtunar- seðlunum verði skipt í smærri einingar sem nota megi til kaupa á sætu brauði og sykurvöru, en brauðbúðir og efnagerðir fái sykurskammt til sinnar framleiðslu gegn skiluðum sykurreitum. Telur fjórðungsþingið að með þessu móti fái brauð og efnagerðir eðlilegan starfsgrund- völl, þar sent þessi fyrirtæki fengju þá aðstöðu til þess að framleiða nákvæmlega það magn af sætu brauði og syk- urvörum sem menn vilja fúslega af þeim kaupa.“ Fulltrúar á fjórðungsþingi vildu draga úr höftum og milda skömmtunarreglur alla vega hvað varðaði sykur, 1 08

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.