Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Blaðsíða 28
STJÓRNSÝSLA
Reykjavík mælti gegn leyfi til
áfengissölu á tónleikum Eltons
Johns á Laugardalsvelli á þeim for-
sendum að eftirlit á opnu svæði eins
og þar væri erfítt. Borgarráð sam-
þykkti samt sem áður leyfí til sölu
áfengis. A tónlistarhátíð í Laugardal
var veitt leyfi til vínveitinga í sér-
stökum stöðum og aldurstakmark
sett um inngöngu eins og á öðrum
vínveitingahúsum.
Ábyrgö íbúa
Þó að sveitarstjómir geti sett nán-
ari reglur um tilhögun vínveitinga í
hverju umdæmi ber þeim ekki
skylda til þess. Þeim ber heldur ekki
skylda til þess að kanna vilja íbú-
anna í þessum efnum þó að vissu-
lega sé æskilegt að fram fari
grenndarkynning þegar til stendur
að veita leyfi til að reka vínveitinga-
stað, sérstaklega ef honum hefur
verið valinn staður nálægt íbúða-
hverfi. I einu hverfi í Reykjavík
hafa íbúamir t.d. oftar en einu sinni
af tilviljun frétt af umsóknum um
leyfi fyrir vínveitingastað í hverfinu.
Þeir hafa brugðist við með undir-
skriftasöfhun gegn því að leyfi verði
veitt, sent það borgarráði og tekist
að koma í veg fyrir að leyfi til vín-
veitinga hafi verið samþykkt í
hverfinu. Það er mikilvægt að íbúar
í hverju sveitarfélagi gefi sveitar-
stjórn skýrt til kynna hvemig þeir
vilja hafa umhverfi sitt hvað varðar
vínveitingar. Vilji þeirra sem búa í
sveitarfélaginu hlýtur að vega þyn-
gst þegar taka á ákvarðanir sem
þessar.
Tilraun í Reykjavík
I Reykjavík stendur nú yfir tilraun
um breyttan afgreiðslutíma vínveit-
ingahúsa. Tilraunin hófst í júlí
1999, átti að standa í þijá mánuði en
var framlengd í eitt ár. Tilrauna-
tímabilinu lauk í lok júlí. Menn hafa
haft misjafnar skoðanir á hvaða
áhrif breytingin hefur. Sumir telja
hana vera til bóta og leysa úr öng-
þveiti sem oft hefur myndast í mið-
bænum þegar veitingastaðimir loka
allir á sama tíma. Aðrir óttast að
breytingunni fylgi aukin drykkja og
þar af leiðandi meiri ölvun og vand-
ræði. Veitingamenn sjálfir telja
margir að lítið sé á breytingunni fyr-
ir þá að græða, lengri afgreiðslutími
þýði að þeir þurfi að halda lengur
úti dým starfsfólki yfir fáum þaul-
setnum gestum. Nú hefur vel á
fjórða tug vínveitingastaða fengið
leyfi fyrir fijálsum afgreiðslutíma til
vínveitinga. Margir veitingamann-
anna halda sig þó nokkum veginn
áfram við fyrri reglur og loka klukk-
an 3 um helgar en geta gripið til
þess að halda lengur opnu ef stemn-
ingin á staðnum gefur tilefni til
þess. Aðrir nýta sér leyfið út í ystu
æsar og þess em dæmi að staðir séu
opnir til klukkan 10 árdegis. Eftir er
að meta tilraunina í Reykjavík og
taka afstöðu til þess hvort af-
greiðslutími vínveitinga verður með
sama hætti til frambúðar. Það
hvemig til tekst hlýtur að vera undir
íbúunum komið og hvemig gildandi
lögum og reglum, sem hljóta að telj-
ast mjög rúmar, er fylgt eftir af lög-
reglu og borgaryfirvöldum.
-------------------------------------------------\
HÚ S AFRIÐUNAR-
SJÓÐUR
Húsafriðunarnefnd ríkisins auglýsir eftir umsóknum til Húsa-
friðunarsjóðs, sbr. ákvæði í 47. gr. þjóðminjalaga þar sem segir:
„Hlutverk Húsafriðunarsjóðs er að veita styrki til viðhalds og end-
urbóta á friðuðum húsum og mannvirkum. Heimilt er að veita
styrki til viðhalds annarra húsa en friðaöra, sem að dómi Húsa-
friðunarnefndar hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi.“
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostnaðar vegna:
1. undirbúnings framkvæmda, áætlanagerðar og tæknilegrar
ráðgjafar.
2. framkvæmda til viðhalds og endurbóta.
3. byggingarsögulegra rannsókna og útgáfu þeirra.
4. húsakannana.
Að gefnu tilefni er hlutaðeigendum bent á að leita eftir áliti
Húsafriðunarnefndar ríkisins og sækja um styrk áður en fram-
kvæmdir hefjast.
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 1. desember 2000 til Húsa-
friöunarnefndar ríkisins, Lyngási 7, 210 Garðabæ, á umsóknar-
eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin verða póstlögð til þeirra
sem þess óska.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 530 2260 milli kl. 10.30
og 12.00 virka daga.
Húsafriðunamefnd ríkisins
_________________________________________________/
2 1 8