Morgunblaðið - 07.12.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2011
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Miele uppþvottavélar
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Guðmundur Felix Grétarsson, sem hygg fara í
handaágræðslu í Frakklandi, fékk afhentar rúm-
ar þrjár og hálfa milljón króna í gærkvöldi á
jólafundi Svalanna, félags flugfreyja og -þjóna.
„Þau söfnuðu peningunum með því að halda jóla-
markað og með jólakortasölu,“ segir Guð-
mundur Felix. Hann hóf fjársöfnun í september
og hefur gengið framar vonum. „Ég held að nú
séu komnar 33 milljónir,“ segir Guðmundur.
Morgunblaðið/Kristinn
Söfnuðu á fjórðu milljón fyrir handaágræðslu
Svölurnar, félag flugfreyja og -þjóna seldu jólakort og héldu markað til styrktar Guðmundi Felix Grétarssyni
Stórauknu atvinnuleysi félags-
manna Verslunarmannafélags
Reykjavíkur var mótmælt í gær-
kvöldi með táknrænum hætti þegar
hengdir voru upp endurskins-
borðar við Kringlumýrarbraut,
einn fyrir hvern atvinnulausan fé-
laga VR.
Um 8,8% félagsmanna, eða 2.465
félagar, voru á atvinnuleysisskrá í
september og hefur atvinnuleysið
nær fimmfaldast á þremur árum.
Auknu atvinnuleysi
meðal verslunar-
manna mótmælt
Morgunblaðið/Golli
Mótmæli Félagar í VR hengja upp endur-
skinsborða við Kringlumýrarbraut.
Fimm skip voru í gær á loðnuveið-
um norður af Vestfjörðum; Beitir,
Ingunn, Faxi, Börkur og Hákon.
Fleiri skip voru á leið á miðin, en
lítið var að hafa. „Það var kalda-
skítur á mánudag, en í nótt og í dag
háir veðrið okkur ekki. Það er bara
ekkert að sjá og nú spáir versnandi
veðri,“ sagði Leifur Þormóðsson,
stýrimaður á Beiti frá Neskaupstað
um hádegi í gær.
Samkvæmt bráðabirgðatölum á
vef Fiskistofu var í gær búið að
landa tæplega 8.400 tonnum af
loðnu frá því að vertíðin hófst 1.
október. Upphafsheimildin á loðnu-
vertíðinni er 180 þúsund tonn.
aij@mbl.is
Lítil veiði var
hjá loðnuskipum
Samgönguáætlun hefur ekki verið
lögð fram á Alþingi, en til stóð að
það yrði gert fyrir jól. Þingflokkar
stjórnarflokkanna fengu hana í
hendur fyrir um viku og hjá þing-
flokki Samfylkingarinnar er stefnt
að því að afgreiða hana á morgun.
Þá á eftir að mæla fyrir tillögunni,
hún þarf að fá umsögn hjá um-
hverfis- og samgöngunefnd og fara
í gegnum þrjár umræður á þingi.
„Þetta er viðamikil áætlun,“ segir
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, for-
maður umhverfis- og samgöngu-
nefndar. „Það verður mikil vinna í
kringum hana, en ég get ekki rætt
einstaka þætti.“ annalilja@mbl.is
Samgönguáætl-
unarinnar er beðið
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
Reykjavíkur segja gjalda- og skatta-
hækkanir í borginni undanfarin tvö
ár samsvara einum mánaðarlaunum
árlega, eða um 300.000 kr. Þessu
hafnar meirihlutinn og segir búsetu í
Reykjavík mun hagstæðari en í öðr-
um stórum sveitarfélögum á landinu.
„Við viljum lækka skatta og spara
meira í miðlægri stjórnsýslu,“ segir
Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn
Reykjavíkur. Hún segir það skjóta
skökku við að verið sé að fjölga störf-
um í stjórnsýslunni í Ráðhúsinu á
meðan skattar og gjaldskrár hækki.
„Það er sorglegt en Reykvíkingar
verða að horfast í augu við það að
þessi brandari er löngu hættur að
vera fyndinn er og að auki orðinn
okkur öllum afar kostnaðarsamur.“
Skatttekjur borgarinnar frá 2010
hafa hækkað um 15%. Dagur B.
Eggertsson, formaður borgarráðs
og oddviti Samfylkingarinnar í
Reykjavík, segir að skýringin sé að
stærstum hluta flutningur á málefn-
um fatlaðra. Þessu hafnar Hanna
Birna og segir að flutningurinn skýri
í mesta lagi um þriðjung.
Dagur segir það ekki rétt að
tekjur vegna gjaldskrárhækkana
hafi hækkað um tæp 40% frá 2010,
eins og sjálfstæðismenn halda fram
og segir gjaldtökur í borginni lægri
en víða annars staðar. Reynt sé eftir
fremsta megni að stilla álögum á
borgarbúa í hóf. „Auðvitað þarf að
standa undir rekstri borgarinnar
með tekjum. En útsvarstillaga Sjálf-
stæðisflokksins er gamaldags lýð-
skrum sem engin innistæða er fyrir.“
Hanna Birna segir auðvelt að bera
gjaldskrána sem tekur gildi um ára-
mótin saman við gjaldskrána 2010.
„Þetta eru opinberar tölur sem eru
gefnar út af fjármálaskrifstofu borg-
arinnar. Það geta allir skoðað þær.“
Dýr brandari eða lýðskrum
300.000 króna gjaldahækkun fyrir 5 manna fjölskyldu, segja sjálfstæðismenn
Reynum að stilla álögum í hóf Þetta er gamaldags lýðskrum, segir Dagur B.
Hækkanir
» Leikskólagjald fyrir eitt barn
hefur hækkað um 3.846 kr. á
mánuði. Það eru 42.306 kr. á
ári sé miðað við að leik-
skólagjöld séu greidd í 11 mán-
uði.
» Sorphirðugjöld hafa hækkað
um 12.600 kr. á ári.
» Gjöld til OR hafa hækkað um
55.296, miðað við orkunotkun í
90 fermetra íbúð.
» Hér er tekið mið af gjaldskrá
2010 og nýrri gjaldskrá sem
tekur gildi um áramótin.
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Dagur B.
Eggertsson
Aflaskipið Vilhelm Þorsteinsson EA lá við bryggju í Ak-
ureyrarhöfn í frostinu í fyrrakvöld umvafið frostþoku og
lét kuldabola lítt á sig fá, annað en mannfólkið. Ekkert
lát er á kuldanum en óvenjukalt hefur verið það sem af
er aðventu. Veðurstofan spáir um 20°C frosti í dag, með-
al annars á Akureyri og í Mývatnssveit.
Mikið frost mældist víða í gær, mest var það við Mý-
vatn eða 27,3 stig. Í höfuðborginni mældist frost þó ekki
yfir fjórum stigum, en á sama tíma var um fimmtán stiga
frost á Akureyri. Útlit er fyrir áframhaldandi kuldatíð,
ýmsum til ánægju en öðrum til mestu armæðu.
Veðurstofa Íslands spáir snjókomu víða um land í há-
deginu í dag. Bjart veður verður þó á Vestfjörðum og úr-
komulaust og stöku él verða við ströndina. Frost verður
1 til 16 stig, minnst syðst en kaldast í innsveitum norð-
anlands. Kaldast verður á Norðurlandi, um fjórtán stiga
frost á Akureyri en um tveggja gráða frost verður í há-
deginu í Reykjavík. Þá verður hiti við frostmark í Vest-
mannaeyjum.
Í janúar 2012 verða liðin 94 ár frá því að kaldast varð í
Reykjavík og víðar um land frá því að mælingar hófust.
Það var Frostaveturinn 1918, þá mældist frost í Reykja-
vík mest 24,5°C og fór víða í um 30°C. Mesta frost 21.
aldarinnar til þessa er rétt rúm 30°C að því er segir í
pistli Trausta Jónssonar á vef Veðurstofunnar.
annalilja@mbl.is
Kuldaboli áfram í kortunum
Snjókoma víða um land og
allt að 16 stiga frost í dag
Ljósmynd/Þórhallur Jónsson
Frost Villhelm Þorsteinsson EA við bryggju í frostinu á
Akureyri. Þar spáir Veðurstofan 14 stiga frosti í dag.