Morgunblaðið - 07.12.2011, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2011
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Indverskur fjárfestir, Bala Kamallak-
haran, áformar að byggja upp ferða-
þjónustu á jörðinni Skálabrekku í
Þingvallasveit. Hann eignaðist meiri-
hluta í Fasteignafélaginu Skála-
brekku, sem á jörðina, fyrir einu ári
og hefur síðan undirbúið tillögur um
skipulag á jörðinni.
Kamallakharan er giftur íslenskri
konu og er með íslenskan ríkisborg-
ararétt. Hann þurfti því ekki að sækja
til innanríkisráðuneytisins um undan-
þágu frá lögum um jarðakaup útlend-
inga hér á landi.
Hallgrímur Hólmsteinsson, einn
eigandi Fasteignafélagsins Skála-
brekku, segir að salan til Kamallak-
haran hafi verið hluti af samkomulagi
hans við Landsbankann um skulda-
uppgjör. Samkomulagi hafi falið í sér
að nýr fjárfestir kæmi að þeim hug-
myndum sem uppi voru um fjárfest-
ingar á jörðinni. Hallgrímur segist
áfram eiga hlut í félaginu sem á jörð-
ina en Bala Kamallakharan eigi hins
vegar meirihlutann.
Undirbúa skipulagstillögu
Hallgrímur segir uppbyggingu fyr-
irhugaða á þeim hluta landsins sem er
óskipulagður, en það er því landi sem
er ofan við veg, þ.e. fjær vatninu. Eft-
ir sé að fá samþykki skipulagsyfir-
valda fyrir framkvæmdum. Áformin
hafi verið kynnt bréflega fyrir sveit-
arstjórn Bláskógabyggðar.
„Hugmyndirnar snúast um upp-
byggingu á ferðaþjónustu. Það er öfl-
ugur fjárfestir sem að þessu kemur.
Hann hefur reynslu og þekkingu á
þessu sviði og ég hef trú á að það eigi
eftir að nýtast afskaplega vel. Hug-
myndir hans og okkar eru að gera
þetta í sem bestu samkomulagi við
það fólk og náttúruna sem þarna er.
Við munum taka fullt tillit til um-
hverfissjónarmiða. Þetta verður ekki
stórt í sniðum, en metnaðarfullt og til-
hlýðilegt á þessum stað.“
Skálabrekka er um 500 hektarar að
stærð. Ekki hafa enn verið lagðar
fram neinar teikningar eða skipulags-
uppdrættir til skipulagsnefndar Blá-
skógabyggðar. Hallgrímur segir mál-
ið sé enn á frumstigi, en unnið sé að
því.
Ekki verður gengið endanlega frá
skuldauppgjöri milli Landsbanka og
Hallgríms fyrr en í maí 2012 og þá
verður jörðinni afsalað til nýs félags.
Indverskur maður fjár-
festir í Þingvallasveit
Ætlar í metn-
aðarfulla uppbygg-
ingu í ferðaþjónustu
Um 500 hektarar
» Land Skálabrekku var upp-
haflega um þúsund hektarar,
en jörðinni var skipt um miðja
síðustu öld. Fasteignafélagið
Skálabrekka á 50% jarð-
arinnar.
» Skálabrekka er við Þing-
vallavatn, í jaðri þjóðgarðsins á
Þingvöllum.
Skálabrekka í Þingvallasveit
Skálabrekka
Kárastaðir
Þingvallavegur (36)
Heiðarbær
Brúsastaðir
Selkot
Stíflisdalur
Þingvellir
Vatnskot
ArnarfellÞingvallavatn
Skógarkot
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ég hef fengið stuðning frá mús-
limum, hvítasunnumönnum og hitt
Votta Jehóva sem segjast styðja
mig þótt þeir séu
ekki endilega
sammála mér í
öllum efnum,“
sagði Bjarni
Randver Sigur-
vinsson, stunda-
kennari í guð-
fræði- og
trúarbragða-
fræðideild Há-
skóla Íslands
(HÍ). Hann
kvaðst vart hafa haft undan að
svara símhringinum og bréfum og
fylgjast með umræðunni frá því að
mál hans vegna kæru Vantrúar
komst í hámæli í fjölmiðlum.
„Margir þeirra sem hafa stutt
mig hvað mest eru guðleysingjar,
efahyggjumenn eða yfirlýstir trú-
leysingjar. Einstaklingar sem hafa
sterka réttlætiskennd og er annt
um akademískt frelsi og fagleg
akademísk vinnubrögð,“ sagði
Bjarni. Hann sagði að stuðningur
fjölda háskólakennara hefði verið
sér mikils virði. „Þessi stuðningur
helgast af því að viðkomandi fræði-
menn hafa kynnt sér málið og kom-
ist að þeirri niðurstöðu að máls-
meðferðinni hafi verið stórlega
ábótavant og að ég hafi á engan
hátt gerst brotlegur við siðareglur
Háskóla Íslands.“
Fram hefur komið að lögfræði-
kostnaður Bjarna vegna málsins
nemi rúmlega 1,3 milljónum króna.
Þar við bætist mikið vinnutap.
„Það fór gríðarlegur tími í að
verja mig þannig að ég var ekkert í
vinnu í á annað ár,“ sagði Bjarni.
Hann sagði að háskólinn hefði ekki
sett sér stólinn fyrir dyrnar með
vinnu meðan deilan vegna kærunn-
ar stóð sem hæst. Hann hefur verið
stundakennari við guðfræði- og
trúarbragðafræðideild HÍ og einn-
ig eini starfsmaður Trúarbragða-
fræðistofu Hugvísindasviðs HÍ.
Fjármagn Trúarbragðafræðistofu
kláraðist og var ekki var farið í að
afla henni meira fjármagns meðan
á kærumálinu stóð. En kemur til
greina að Bjarni höfði mál gegn HÍ
til að fá málskostnað sinn og annað
tjón bætt?
„Það kemur allt til greina en ég
vil reyna að ganga frá þessum mál-
um innan háskólans með faglegum
hætti, ef þess er nokkur kostur,“
sagði Bjarni. Hann byrjaði aftur að
vinna í haust og hefur verið stunda-
kennari bæði við HÍ og Háskólann
á Bifröst í vetur. Bjarni sagði fjölda
einstaklinga hafa stutt sig með
margvíslegum hætti. Meðal annars
lögðu nokkrir þeirra lið varðandi
lögfræðikostnaðinn en sjálfur hefur
hann þurft að bera töluverðan hluta
kostnaðarins.
Hefur fundið víð-
tækan stuðning
Mikið vinnutap og lögfræðikostnaður
Bjarni Randver
Sigurvinsson
Af Vantrú.is
» Í grein sem birtist á heima-
síðu félagsins Vantrúar í gær
er því algerlega hafnað að það
hafi lagt Bjarna Randver Sigur-
vinsson í einelti.
» Bjarni er sakaður um að
hafa orðið sér úti um þjófstolin
gögn af lokuðum spjallvef fé-
lagsins og sagt að málið hafi
verið kært til lögreglu.
» Bjarni og fjölmiðlar eru sak-
aðir um að hafa notast við
skrumskælda útgáfu af gögn-
um af umræðuvefnum.
» Fram kemur að Vantrú hafi
alltaf verið reiðubúin til sátta í
málinu en Bjarni ekki.
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Kjóladagar
20% afsláttur af öllum kjólum
St. 36-52
Pelsfóðurkápur
og -jakkar
Þúsundir fjölskyldna þurfa mataraðstoð fyrir jólin.
Vörumóttaka alla virka daga kl. 9-17
að Eskihlíð 2-4, 105 Reykjavík.
Söfnunarreikningur 546-26-6609
Kt. 660903-2590
Fjölskylduhjálp Íslands
Getur þitt fyrirtæki
hjálpað fjölskyldum í neyð?
S Sæmundurbókaútgáfa
Kanill
eftir Sigríði í Arnarholti.
Ljóð og ævintýri um kynlíf.
„En skírlífisbrækurnar runnu
niður um lærin
og þvældust um
fótleggina.“
GLÆSILEG JÓLAHLAÐBORÐ
Kalt jólahlaðborð með heitu meðlæti
Hátíðarkvöldverður
Jólahlaðborð
Kalkúnaveisla
Hangikjötsveisla
JÓLAVEISLUR
2011
„Við erum stolt og glöð að vera í
þeirri stöðu að geta umbunað
starfsfólki okkar með þessum hætti
nú,“ er haft eftir Þorsteini Má
Baldvinssyni,
forstjóri
útgerðarfyrir-
tækisins Sam-
herja á Akureyri,
í tilkynningu um
að starfsmenn
fyrirtækisins fá
greidda 300 þúsund króna launa-
uppbót nú í desember til viðbótar
við umsamda 64 þúsund króna des-
emberuppbót. Þá tvöfaldaði Sam-
herji jafnframt orlofsuppbót starfs-
manna í maí og mun því greiða 360
þúsund krónur á hvern starfsmann
umfram kjarasamninga á árinu.
Fram kemur í frétt á vefsíðu
Samherja að þeir starfsmenn fyr-
irtækisins sem njóti þessarar
launauppbótar séu um 450 talsins
en hún nái til starfsmanna sem unn-
ið hafa hjá fyrirtækinu í föstu starfi
í ár eða meira. Þeir starfsmenn sem
unnið hafa hjá Samherja í 6-12
mánuði fá helming upphæðarinnar.
Skaðar sjávarútveginn
„Rekstur félagsins hefur gengið
vel og starfsmenn hafa skilað af-
burða góðu verki,“ er haft eftir Þor-
steini. Hann segir að það sé mjög
ánægjulegt í ljósi þess að íslenskur
sjávarútvegur eigi í mjög harðri
samkeppni erlendis. Keppinautar
noti neikvæða umræðu hér á landi í
garð sjávarútvegarins gegn ís-
lenskum sjávarútvegsfyrirtækjum
erlendis og því hafi starfsfólks
Samherja þurft að leggja enn harð-
ar að sér til þess að verja hagsmuni
fyrirtækisins þar. hjorturjg@mbl.is
Fá 300 þús-
und krónur
í uppbót
Samherji umbun-
ar starfsfólki sínu
Ákveðið hefur verið að fjarlægja
Símaskrána 2011 úr verslunum
Símans. Egill Einarsson, sem er
einnig þekktur sem Gillz, prýðir
forsíðuna. Hann og unnusta voru
nýverið kærð til lögreglu fyrir að
nauðga 18 ára gamalli stúlku.
Sigríður Margrét Oddsdóttir,
forstjóri Já, segir að í ljósi þessa
máls hafi fyrirtækið ákveðið að
taka til hliðar símaskrárstanda sem
hafi verið í nokkrum Símaversl-
unum. Hún bætir við að þetta sé
gert af virðingu við alla hlutaðeig-
andi. Málið sé harmleikur fyrir alla
sem málið varði.
Símaskráin fjarlægð úr verslunum