Morgunblaðið - 07.12.2011, Síða 10
Kaolin listmunagallerí er öðruvísi gallerí í Ingólfsstræti
sem samanstendur af sölugalleríi og sýningarrýmum sem
eru leigð út til myndlistarmanna. Átta keramikerar reka
saman og selja listmuni sína í Kaolin og þau fögnuðu eins
árs afmæli síðastliðinn föstudag með opnu húsi og
hringdu inn jólin með sínum hætti, buðu upp á afmælis-
kaffi og Kaolinköku.
Listamennirnir sem standa að baki Kaolin eru:
Arnlaug Borgþórsdóttir, Ása Tryggvadóttir, Bjarni Sig-
urðsson, Gegga Helga Birgisdóttir, Jóna Thors – Steinar
og mósaik, Kolbrún Sigurðardóttir KolSi, Íris Rós Söring
og Þórdís Baldursdóttir. Þó svo að þau reki galleríið saman
þá eru þau öll með vinnustofur, hvert á sínum stað. Þeim
finnst gaman að vera með ýmsar uppákomur í Kaolin, t.d
hafa þau verið með súpudaga og þeir sem keyptu sér skál
fengu súpu og brauð í nýju skálarnar sínar.
Átta keramikerar saman á einum stað
Kaolin gallerí fagnar eins árs afmæli
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Keramikerar Hér eru þær kampakátar, sex af þeim átta sem reka saman Kaolin gallerí.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2011
Kirstín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta er bara hamingja, í matog notalegheitum. Það erbara svoleiðis,“ segir Nunosem er einn af þeim fimm
sem eiga og reka Sushisamba, nýjan
veitingastað í Ingólfsstræti. „Matur-
inn sem við bjóðum upp á byggist á
þeirri matarhefð sem varð til í byrjun
síðustu aldar þegar þúsundir Japana
fluttust til Suður-Ameríku. Brasilía
og Perú eru þau lönd sem við horfum
helst til og við bjóðum upp á Ceviche,
sem eru kaldir réttir með hráu kjöti,
bragðmikið Anticuchos á spjótum,
suðrænar steikur og sushi sem við
köllum „djúsí“ sushi eða „new style“
sushi, en það byggist mikið á því að
blanda saman öðruvísi hráefnum en
venjan er og með því koma allskonar
sósur. Við erum einnig með fjöl-
marga smárétti, til dæmis taquitos,
hrefnu Tataki og vatnsmelónufr-
anskar, svo fátt eitt sé nefnt.“
Reynslubolti frá Köben
Aðalmeistarinn í eldhúsinu er
Eyþór Mar matreislumeistari og
einn sushi-kokkurinn er Ari Alexand-
er, einn af virtustu sushi-kokkum
landsins. Einn af þremur aðal sushi-
kokkum staðarins er Carlos Oliveira,
portúgalskur sushi-kokkur sem hef-
ur starfað í Kaupmannahöfn í árarað-
ir á Sticks and Sushi, Umami og
Custum House. „Vinur minn vinnur
hér og hann lét mig vita að hér vant-
aði sushi-kokk og mig langaði að
prófa að flytja til Íslands. Svo ég sló
til. Þetta verður spennandi, við ætl-
um að prófa okkur áfram með ís-
lenska hráefnið og mér líst vel á ís-
lenska fiskinn. En vissulega þurfum
við að flytja inn sumar tegundir, eins
og túnfiskinn,“ segir Oliveira sem
hlakkar til að vinna með japanska
sushi-meistaranum Schinichiro
Matarhamingja frá
Japan og S-Ameríku
Hún er notaleg stemningin inni á nýja veitingastaðnum Sushisamba þar sem eru
meðal annars fuglabúr frá Japan og 500 handgerðar brúður frá Brasilíu.
Morgunblaðið/Kristinn
Meistari Kokkurinn Carlos Oliveira með mjög svo girnilega Surf & turf
rúllu sem inniheldur nautalund, humar tempura, avókadó, chili mayo.
Vefsíðan shutterbean.com er full af
fallegum matarmyndum og krútt-
legum hlutum. Höfundur síðunnar er
hún Tracy – eða Shutterbean eins og
hún kýs að kalla sig. Hún segist á síð-
unni ætíð hafa haft mikinn áhuga á
öllu sem húslegt er, þá sérstaklega
mat og matargerð og hafi fjölskyldu
hennar jafnvel þótt sá áhugi óeðli-
lega mikill þegar hún var á unglings-
árunum. Nú er Tracy hins vegar á þrí-
tugsaldri og leyfir þessum áhuga að
blómstra sem aldrei fyrr.
Matarmyndirnar hennar Tracy eru
veisla fyrir augað og uppskriftir
fylgja. Meðal þeirra má nefna upp-
skriftir að girnilegum kókos- og lím-
ónustöngum, peruböku og pasta með
sveppum og graskeri. Á síðunni má
líka sjá alls konar fallega hluti fyrir
heimilið og lista í léttum dúr. Til að
mynda yfir það hvernig forðast megi
vandræðalegar samræður í jólaboði.
Vefsíðan www.shutterbean.com
Kókos Tracy gefur uppskrift að girnilegum kókos- og límónustöngum.
Blómstrandi mataráhugi
Nú er sannarlega rétti tíminn fyrir
dágott jólabíómyndamaraþon. Enda
fátt eins freistandi í þessum kulda að
skríða upp í sófa eftir skóla eða vinnu
og horfa á eitthvað skemmtilegt.
Christmas Vacation um Griswold fjöl-
skylduna er t.d. alltaf jafn skemmti-
leg og svo má ekki gleyma Love Actu-
ally og The Santa Clause. Bara til að
nefna örfáar. Nú eru líka nokkrar jóla-
legar myndir í bíó. Hjem til jul er ein
þeirra en í kvikmyndinni eru sagðar
nokkrar litlar sögur af ólíku fólki. Ljúf
og mannleg mynd sem minnir mann á
að samkennd og kærleikur skiptir
mestu máli á þessum árstíma.
Endilega…
… horfið á jólabíómyndir
Morgunblaðið/Golli
Úrval Nú er að velja uppáhalds jólamynd sína.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
OSTABÚÐIN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG
Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00
Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00
Gjafavörur
Ostabúðarinnar
f yr ir sælkerann