Morgunblaðið - 07.12.2011, Blaðsíða 11
Sýnishorn Brot af þeim listmunum sem eru til sölu hjá Kaolin gallerí.
Brúður 500 brasilískar brúður skornar í tré í Amazon.
Hara, sem kemur til starfa í janúar,
en sá hefur starfað í Japan, Kali-
forníu og Mónakó.
Brúður sóttar í frumskóginn
Leifur Welding sá um innan-
húshönnun á Sushisamba og hann
segir útgangspunktinn hafa verið
þann að skapa asíska og suðuramer-
íska stemningu. „Við Íslendingar vilj-
um hafa notalega stemningu þegar
við förum út að borða, viljum láta um-
vefja okkur hlýju. Þess vegna völdum
við að fara þá leið í hönnun hér inni.
skera í hann, því annars verður hann
að mjöli. Þetta er afskaplega léttur
viður og frauðkenndur og við erum
með um fimm hundruð trébrúður
hangandi í stóru ljósi hér, gerðar sér-
staklega fyrir okkur. Ég hafði uppi á
brasilískri konu sem býr hér á Ís-
landi og hún hafði samband við son
sinn sem býr ekki svo langt frá þorp-
inu þar sem hægt er að fara með
ferju til þessa einstaka svæðis. Hann
gekk í málið og þetta tók langan tíma
en tókst að lokum. Og við erum mjög
ánægð með útkomuna.“Fuglabúr Stemningin er notaleg og fuglabúraljósin gefa hlýlega birtu.
Kjöt Þeir eru margskonar kjötréttirnir sem Sushisamba býður upp á.
Við ætlum
að prófa okk-
ur áfram
með ís-
lenska hrá-
efnið og mér
líst vel á ís-
lenska fisk-
inn.
Morgunblaðið/Júlíus
Namm „Djúsí“ sushi eða „new style“ sushi, sósur og öðruvísi hráefni.
Meðal annars eru fimmtíu japönsk
fuglabúr sem gegna hlutverki ljósa-
stæða yfir borðunum,“ segir Leifur
og bætir við að suma hlutina á
Sushisamba hafi verið erfitt að nálg-
ast. „Mesta ögrunin var að nálgast
handgerðu trémunina frá Brasilíu, en
ég hafði rekist á slíka hluti fyrir
löngu. Staðreyndin er sú að það er
tuttugu og tveggja manna ættbálkur
lengst inn í Amazon-frumskóginum
sem sker út þessa hluti, úr sérstökum
við sem einungis er í fjórar vikur á ári
í réttu rakastigi til að hægt sé að
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2011
Björk Viggósdóttir mun á morgun
klukkan 18 ræða við gesti um sýn-
inguna Flugdrekar sem stendur nú
yfir í Hafnarhúsi Listasafns Reykja-
víkur. Myndmálsheimur Bjarkar er
ljóðrænn og táknmyndirnar eru
margræðar. Flugdrekar eru eitt af
viðfangsefnum hennar, en þeir eiga
sér langa sögu og hafa í gegnum ald-
irnar spilað fjölbreytt hlutverk. Þeir
hafa meðal annars verið notaðir til að
senda skilaboð, á mannamótum,
íþróttaleikjum og jafnvel til rann-
sókna.
Björk Viggósdóttir (f. 1982) út-
skrifaðist frá Listaháskóla Íslands ár-
ið 2006. Hún hefur lagt áherslu á
gerð myndbandsverka og innsetn-
inga, þar sem hún leikur á ofurnæmi
skynfæranna sem kallast á við
ímyndunarafl áhorfandans.
Listamannsspjall
Morgunblaðið/Jim Smart
Flug Flugdrekar eiga sér langa sögu.
Skilaboð send
með flugdreka