Morgunblaðið - 07.12.2011, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2011
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Lionsklúbbur Húsavíkur og Heil-
brigðisstofnun Þingeyinga fara af
stað eftir áramót með átak í skimun
fyrir ristilkrabbameini meðal íbúa
svæðisins. Ætlunin er að verkefnið
standi í fimm ár en boðið verður upp á
ókeypis ristilspeglun, fyrsta árið fyrir
konur og karla fædd árið 1957 og
næsta ár, 2013, er komið að þeim sem
fæddust 1958 og síðan koll af kolli.
Leit að þessu tagi hefur ekki áður far-
ið fram hér á landi.
Lionsklúbburinn verður fjárhags-
legur bakhjarl verkefnisins og að
sögn Birgis Þórs Þórðarsonar, for-
manns klúbbsins, hefur fjármögnunin
verið tryggð. Lionsmenn á Húsavík
hafa í mörg ár verið að íhuga verkefni
af þessu tagi.
„Þetta byrjaði með að við fengum
lækni á okkar fund sem greindi okkur
frá þessum sjúkdómi og í kjölfarið
fórum við að tala um að gaman væri
að koma svona forvarnaverkefni á,“
segir Birgir Þór en ristilkrabbamein
er lúmskur sjúkdómur og gerir sjald-
an boð á undan sér. Að meðaltali
greinast 112 einstaklingar á hverju
ári með slíkt krabbamein og þetta er
með skæðustu sjúkdómum á heims-
vísu.
Árið 2005 stóð til að koma verkefn-
inu á en um það leyti voru uppi áform
hjá stjórnvöldum um skimun eftir
ristilkrabba. Árið 2007 var samþykkt
þingsályktun um að ráðast í skimun
eftir sjúkdómnum en það hefur aldrei
farið í gang. „Við ákváðum því að fara
í gang, í samstarfi við Heilbrigðis-
stofnun Þingeyinga, og viðtökur sam-
félagsins hafa verið mjög jákvæðar,“
segir Birgir en fjölmargir aðilar hafa
heitið stuðningi, m.a. Norðurþing og
Tjörneshreppur, bankar á svæðinu,
tryggingafélög, verkalýðshreyfingin
og Lyfja. Kostnaður við verkefnið
liggur ekki fyrir en hann skiptir millj-
ónum. Nýlega voru tekin í notkun
fullkomin speglunartæki hjá HÞ, sem
keypt voru fyrir gjafafé ýmissa fé-
lagasamtaka, einstaklinga og fyrir-
tækja á svæðinu.
Gæti borgað sig margfalt
Verkefnið hefst í janúar nk. Búið er
að senda út dreifibréf til allra Þing-
eyinga og síðan fá þeir sem fæddir
eru 1957, um 60 manns, sérstakt
boðsbréf um ristilspeglun. Enginn
er þó skikkaður heldur er þetta val-
kvætt hjá hverjum og einum. „Ef
hægt er að koma í veg fyrir að einn
af þessum 60 fái sjúkdóminn á háu
stigi þá er þetta búið að borga sig
margfalt, þar sem lyfjakostnaður get-
ur orðið mjög hár,“ segir Birgir
Þór og vonast til að svona
verkefni fari af stað víðar
um land.
Þingeyingar ristilspeglaðir
Lionsklúbbur Húsavíkur og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga í sameiginlegt átak Öllum 55 ára íbú-
um svæðisins boðin ristilspeglun eftir áramót Verkefni til fimm ára og fjármögnun hefur verið tryggð
Húsavík Ristilspeglunin mun fara fram á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Lionsklúbburinn hefur safnað fjármagni.
Ásgeir Böðvarsson, fram-
kvæmdastjóri lækninga á HÞ,
fagnar þessu framtaki Lions-
klúbbsins á Húsavík, sem sýnt
hafi verkefninu áhuga í langan
tíma. Stjórnvöld hafi verið að
áforma landsátak en það dottið
upp fyrir í kjölfar hrunsins.
„Svona skimun er býsna góð,
þetta er góð rannsókn til að
finna krabbamein án mikilla
aukaverkana. Hún er ágætlega
næm og mjög sértæk,“ segir
Ásgeir og tekur undir með Birgi
Þór að vonandi verði farið víðar
í átak af þessu tagi. Lionsklúbb-
urinn hefur áður komið að for-
varnarstarfi í heilbrigðismálum.
Fyrir ári stóð klúbburinn
fyrir átaki í skimun á
sykursýki með blóð-
sykursmælingum á
heilsgæslustöðvum
svæðisins. Það tókst
mjög vel og verður
endurtekið núna 10.
desember
nk.
Fagnar fram-
taki Lions
LÆKNIR Á HÞ
Ásgeir Böðvarsson
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Þeim einstaklingum sem sóttu
eftirmeðferð hjá SÁÁ fækkaði eftir
að byrjað var að innheimta hjá
sjúklingum greiðslur fyrir fæði og
húsnæði í henni árið 2009. Þetta
segir Þórarinn Tyrfingsson, yfir-
læknir á Vogi.
Hann segir fækkunina þó ekki
hafa verið mikla og þakkar hann
það styrktarsjóði SÁÁ sem stofn-
aður var fyrir þremur árum. Hefur
hann verið notaður til þess að
greiða fyrir hlut þeirra sjúklinga
sem ekki geta greitt fyrir áfengis-
og vímuefnameðferð sína.
Byrjað að rukka eftir hrun
Með þjónustusamningi um eftir-
meðferð sem SÁÁ gerði við heil-
brigðisráðuneytið fengu samtökin
heimild til að innheimta gjald fyrir
fæði og meðferð í eftirmeðferð á
Vík og Staðarfelli og gjöld vegna
göngudeildarmeðferðar. Heimildin
var ekki nýtt fyrsta samningsárið
en í kjölfar hrunsins neyddist SÁÁ
til að rukka fyrir fæðið og hús-
næðið árið 2009.
Segir Þórarinn að aðalótti SÁÁ
við gjaldtökuna hafi verið sá að
hún myndi fæla fólk í fjárhagserf-
iðleikum frá því að sækja eftirmeð-
ferðina.
„Aðalkvíði okkar var sá að það
yrðu einhverjir sem myndu þá
lenda í valþröng og segja sem svo
að þeir vildu heldur eyða pening-
unum sínum í börn, fjölskyldu eða
skuldir,“ segir Þórarinn.
Margir séu illa staddir þegar
þeir koma í afeitrun eins og gefur
að skilja. Fólk sé jafnvel búið að
eyða nýútgreiddum örorku- og at-
vinnuleysisbótum þegar það kemur
og það eigi því enga peninga. Aðrir
þurfi að nota fé sitt í nauðsynleg
útgjöld fyrir fjölskyldu sína, segir
Þórarinn.
Starfsmenn byrjuðu að safna
Því var styrktarsjóðurinn stofn-
aður til að sporna gegn því að
nokkur þyrfti að hafna því að fara í
meðferð af fjárhagsaðstæðum. Að
sögn Þórarins hófst söfnunin þann-
ig að starfsmenn SÁÁ gáfu í sjóð-
inn af launum sínum. Í framhaldinu
fengust svo framlög frá styrktarað-
ilum og einstaka stéttarfélögum.
Í fyrra voru greiddar níu millj-
ónir króna úr sjóðnum en í ár
stefnir í að hann styrki sjúklinga
SÁÁ um 13,5 milljónir króna.
Biðlar SÁÁ nú til landsmanna
um að styrkja fátæka alkóhólista í
gegnum styrktarsjóðinn. Verða
valkröfur í heimabanka sendar út
til landsmanna á aldrinum 30-70
ára á næstunni þar sem óskað er
eftir 2.000 króna framlagi. Þá
verða valkröfur einnig sendar út á
fyrirtæki.
Gjöld hafa dregið
úr aðsókn í eftir-
meðferð SÁÁ
Safna í sjóð fyrir fátæka sjúklinga
„Sjúkrasjóðir
verkalýðsfélaga og
félagsþjónusta
mættu taka betur
við sér“
Þórarinn Tyrfingsson
MORKINSKINNA
Morkinskinna er mikið konungasagnarit frá fyrri hluta 13. aldar og
greinir frá þeim konungum sem ríktu í Noregi eftir fall Ólafs helga á
Stiklarstöðum árið 1030. Ritið mun í öndverðu hafa náð fram að valdatöku
Sverris Sigurðarsonar seint á 12. öld, en niðurlagið er glatað. Hér er á ferð
elsta rit þar sem saga margra konunga er rakin ítarlega.
Morkinskinna er hér í fyrsta sinn gerð aðgengileg íslenskum almenningi,
með ítarlegum formála og skýringum. Myndir og kort prýða útgáfuna.
Dreifing
Við óskum þeim Ármanni Jakobssyni og Þórði
Inga Guðjónssyni til hamingju með tilnefninguna.
Nánari upplýsingar um heildarútgáfu Íslenzkra
fornrita er að finna á www.hib.is
HIÐ ÍSLENSKA
BÓKMENNTAFÉLAG
HIÐ ÍSLENZKA
FORNRITAFÉLAG
TVÖ NÝ BINDI
ÍSLENZKRA FORNRITA